Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 51
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 51
Kveðjur úr héraði
ÓSKUM STARFSMÖNNUM OG LANDSMÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Runólfur Hallfreðsson ehf.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jólakveðja úr Snæfellsbæ:
Töfralandið Ísland með
norðurljósum, Geysi
og 13 jólasveinum
Norðurljós, Geysir, 13 jólasveinar,
Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn.
Hafið, jöklar, eldfjöll, firðir, hreint
vatn, ferskt loft, falleg náttúra og
margt, margt fleira sem hægt er að
tala um! Þetta er allt töfralandið Ís-
land!
Ég elska Norðurlöndin. Ég var
alltaf hrifin af sögu þessara landa,
tónlistarhefð, menningu og fleiru.
Ég flutti beint til Ólafsvíkur frá
norður Rússlandi árið 2002 og hef
starfað sem tónlistarkennari frá
þeim tíma og sem skólastjóri við
Tónlistarskóla snæfellsbæjar frá
árinu 2007. Ég er gift íslenskum
manni sem er fæddur og uppalinn í
Ólafsvík. Við eigum dóttur, tengda-
son og tvær elskulegar og yndisleg-
ar afa- og ömmustelpur sem eru 5
og 1 árs. Mér líður mjög vel að búa
í snæfellsbæ. Þetta er yndislegur
og fallegur bær með frábæru fólki.
Það er mikið og blómlegt starf í
gangi um allt sveitarfélagið og allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Á heimasíðu snæfellsbæjar,
www.snb.is, er að finna allar helstu
upplýsingar um þjónustu og mann-
líf snæfellsbæjar.
Aðventan er besti tími ársins.
Þetta er tími ljóss og friðar, þegar
ilmur jólanna liggur í loftinu. All-
ur bærinn er ljósum skrýddur og
gaman er að fara í bíltúr á kvöld-
in og njóta skreytinganna. Í félags-
heimilinu Klifi er alltaf skemmti-
legur jólamarkaður eldri borgara,
þar sem hægt er að kaupa fallega
handgerða gjafavöru og góðgæti
og fylgjast með hvernig handverk
er unnið. Það er líka nóg að gera
hjá börnunum á þessum tíma. Des-
ember er besti mánuður krakkanna
af því að jólin eru að koma með
fullt af gjöfum til þeirra. Við vitum
öll að jólin eru hátíð barnanna og
þau byrja að bíða eftir jólunum frá
því í lok september. Ég skil krakk-
ana mjög vel þar sem ég upplifði
þetta líka sem lítið barn.
Ég er fædd og uppalin í Úk-
raínu. Þar eru jólin haldin hátíðleg
tveimur vikum seinna en í evrópu
og annarsstaðar. Flestir Rússar og
Úkraínumenn eru í Rétttrúnaðar-
kirkjunni sem heldur jól 7. janúar
í samræmi við júlíanska tímatalið.
Gamlárskvöld var vinsælla en jól-
in. Að sjálfsögðu er fallega skreytt
lifandi jólatré á heimilum. Ég man
eftir þegar mamma faldi nammi á
jólatrénu. Hún gerði þetta oft bara
til að hafa gaman. Það var mik-
ið fjör fyrir mig og systur mína að
finna það! Alltaf var góður mat-
ur, svipaður og á Íslandi: kalkúnn,
svínakjöt, nautakjöt, salöt og kök-
ur. Hér heima á Íslandi held ég ís-
lensk jól með fjölskyldunni minni.
Ég borða skötu og lambakjöt, ég
baka fimm tegundir af smákökum
þar á meðal sörur. Að sjálfsögðu er
til jólasveinn úti, rauðklæddur og
með hvítt skegg. Krakkarnir köll-
uðu hann Afa Frost. Raunin er sú
að hinn rauðklæddi jólasveinn á
rætur sínar að rekja til sögulegrar
persónu, heilags Nikulásar sem bjó
í borginni Mýra í Tyrklandi á 4. öld
e.Kr. (þess má geta að íslensku jóla-
sveinarnir eru af allt öðrum uppruna
og eiga sér rætur í íslenskum þjóð-
sögum þó svo að þeir hafi í seinni
tíð blandast að einhverju leyti sam-
an við hinn rauðklædda jólasvein).
Hann kemur til byggða með gjafir
í stórum poka og með barnabarnið
sitt, stúlku sem heitir snegurochka.
en fólk gefur gjafir frekar á gaml-
árskvöld en á aðfangadag jóla. eft-
ir jólin kemur vika „svjatki“ sem er
líkt þrettándanum hér á Íslandi. Þá
fóru krakkar milli húsa, sungu jóla-
söngva og fengu í staðinn gjafir eða
nammi. Mig langar ekki að tala
mikið um Covid í þessum pistli.
Auðvitað er það þannig að árið
2020 verður fyrst og fremst minnst
vegna Covid. en ánægjulegt er að
sjá hvernig íbúar tóku á því að lifa
með Covid. einnig er gott að sjá
hvernig stofnanir gátu haldið að
mestu sinni starfsemi og þjónustu
þrátt fyrir faraldurinn. Til dæm-
is, árið 2020, hófust framkvæmdir
við byggingu sambýlis fyrir fatlað
fólk sem tekin verður í notkun árið
2021. bundið slitlag var lagt á síð-
ustu kílómetrana á Fróðárheiði og
hafin var bygging þjóðgarðsmið-
stöðvar á Hellissandi sem tekin
verður í notkun árið 2022.
Já, Covid hafði einhver áhrif á
mitt líf og starf en ekki mikil.
Ég og maðurinn minn elskum
að ferðast, en við fórum ekki til út-
landa á árinu 2020. Það var kom-
inn tími til að sjá landið okkar. Við
ferðuðumst því um Ísland í sumar.
sumarið var mjög gott, veður var
ágætt og fólk nýtti sér það. Mik-
ill fjöldi Íslendinga kom til okkar
í sumar sem ferðamenn og gaman
að sjá þá á okkar svæði – skemmti-
legt að sjá líf í sveitarfélaginu þrátt
fyrir fækkun erlendra ferðamanna.
Íbúar notuðu árið til að hreyfa sig
og njóta þeirra forréttinda sem við
búum við að hafa mikið pláss til
að fara um okkar fallegu náttúru. Í
sambandi við starfið mitt á þessum
tíma. starfsstöðvar Tónlistarskóla
snæfellsbæjar eru þrjár; í Ólafsvík,
á Hellissandi og á Lýsuhóli. Áður
en Covid kom, tóku nemendur og
kennarar tónlistarskólans virkan
þátt í menningarlífi bæjarfélagsins.
Þau komu fram víðs vegar í bæn-
um, m.a. fóru þau einu sinni í mán-
uði á dvalarheimilið Jaðar með tón-
listaratriði. Það var spilað við guðs-
þjónustur í kirkjunum og það voru
tónfundir einu sinni á hverri önn.
Að auki voru haldnir jólatónleikar
og vortónleikar þar sem allir bæj-
arbúar voru velkomnir. Því miður
höfum við misst þetta síðan Co-
vid dundi yfir. en við erum bjart-
sýn um betri tíð og blóm í haga.
Mjög ánægjulegt að sjá að foreldrar
eru að halda áfram að skrá börnin í
tónlistarskóla þrátt fyrir þessar að-
stæður sem hafa fylgt Covid. Von-
andi getum við hafið hið eðlilega líf
sem fyrst á nýju ári.
Gleðileg jól!
Jólakveðja frá Snæfellsbær.
Valentina Kay
Valentina í Osló. Ljósm. úr einkasafni.