Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 66

Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 66
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202066 ir sunnan en flaug svo til Ísafjarð- ar þar sem hann átti eftir að dvelja næstu 13 árin. „Tengdaforeldrar systur minnar, elías og Ásthildur sem nú er látin, reyndust mér eins og fósturforeldrar og börnin þeirra eins og systkini, ég varð bara hluti af fjölskyldunni. Ég bjó hjá þeim fyrst um sinn og þau sáu um alla papp- írsvinnuna fyrir mig. Þau hjálpuðu mér líka að sækja um vinnu. elías kenndi mér að keyra í snjó en það hafði ég aldrei gert áður. Þá hjálp- aði Magnús Hauksson mér mikið.“ Þegar Rolando kom til Íslands var hann með þrjátíuþúsund krónur í vasanum, eina tösku og bakpoka. Hann hafði selt bílinn sinn áður en hann fór og nýtt stóran hluta af pen- ingnum sem hann fékk fyrir bílinn til þess að greiða skuldir og fleira. Rolando lýsir því að hann hafi ekki verið í jafnvægi á þessum tíma: „Ég hugsaði ekki rökrétt á þessum tíma. Ég ætlaði bara að skreppa aðeins til Íslands og koma svo aftur. Fjöl- skyldan hafði skilið allt eftir í el salvador, fyrirtækið, húsið og all- ar sínar eigur. Þó að þetta væri um miðjan desember var ég ekki með nein hlý föt, ekki peysu einu sinni, enda el salvador mun heitara land en Ísland. Ásthildur fór með mig í verslunarleiðangur og keypti á mig stígvél, snjóbuxur, úlpu, vettlinga og húfu.“ Tvo daga með fyrsta balann Rolando lýsir því hvernig honum leið í fyrstu hér á landi: „Fyrsta vinnan sem ég fékk var við beitn- ingu á suðureyri. elías keyrði mig á staðinn og þegar ég sá hvað ég átti að fara að gera hélt ég að það væri eitthvert djók! Í el salvador hafði ég aldrei unnið við neina líkamlega vinnu, aðeins skrifstofustörf. Ég hafði verið að læra byggingatækni- fræði, unnið í banka og í fjölskyldu- fyrirtækinu sem innkaupastjóri. Ég hafði ferðast mikið erlendis í vinnunni og var alltaf í jakkafötum og með bindi. Þegar mér var sagt að ég fengi greiddar tvöþúsund krónur fyrir hvern bala leist mér nú aðeins betur á og fannst það mikl- ir peningar. Ég spurði hvað menn væru að beita marga bala á dag og fékk þau svör að átta til níu balar væri svona eðlilegt. Mér leist því betur og betur á þetta. Ég byrjaði bara að beita og var tvo daga með fyrsta balann. Mér leið eiginlega ömurlega fyrstu dagana og hugs- aði stöðugt um að hér ætti ég ekki heima, þetta var svo erfitt og ólíkt öllu sem ég hafði gert á ævinni. Ég saknaði lífsins míns í el salvador, vinanna og fjölskyldunnar. smátt og smátt fór mér að líða betur, fólk var næs við mig og ég fer að eignast vini. Tungumálið var mér samt erfitt. Þegar ég fór í partí með vinunum skildi ég ekki neitt og sat bara úti í horni. Ég var ekki að fíla þetta því ég drekk ekki en þarna sátu allir að drekka og spjalla. Þegar ég hafði verið í nokkra mánuði á Ís- landi koma foreldrar mínir hingað. Við fluttum saman í íbúð og bjugg- um saman í nokkurn tíma. Árið 2002 flyt ég út frá þeim og á sama tíma kynnist ég konunni minni, Guðrúnu Olgu Árnadóttur. Við eigum í dag saman tvö börn; Isobel Líf sem er 16 ára og Isaac Loga en hann er 14 ára. Fyrir átti konan mín börnin sigurð erling sem er 29 ára í dag og evu Rut sem er 23 ára. Foreldrar mínir búa enn á Ísafirði og ég bjó þar í alls þrettán ár.“ Björgunarhundarnir en nú snúum við umræðunni að störfum Rolando við björgunar- og hjálparstörf. björgunarhundar Rolando eru tveir; Aska og Max. Aska er tík af þýsku fjárhunda- kyni (schäfer) og Max er Labra- dor úr Kolkuós ræktun. Aska hef- ur lokið C prófi og er í þjálfun sem snjóflóðaleitarhundur. Hún er ekki komin á útkallslista. Max hefur lok- ið A prófi og er sérþjálfaður sem víðavangs-leitarhundur og er á út- kallslista björgunarhundasveitar- innar. Að sögn Rolando fá hund- arnir eingöngu hráfæði. samstarfs- fólk hans færir þeim gjarnan poka af ýmsu sem fellur til við slátrun. Hundarnir fá bein og kjöt af kjúk- lingum og svínum auk fisks en hval- kjöt vilja þeir ekki sjá. Rolando seg- ir hundana fá mikilvæga fitu úr hrá- fæðinu sem ekki fæst úr hefðbundn- um hundamat en fitan er afar mikil- væg fyrir þefskyn hundanna. Gríðarlega mikil vinna liggur að baki þjálfun hunds sem lokið hefur öllum prófum sem björgunarhund- ur. Á vef björgunarhundasveitar Ís- lands segir m.a: „Frá upphafi þjálf- unar þar til hundateymið er kom- ið á útkallslista geta liðið a.m.k. tvö til þrjú ár. Á því tímabili er æft einu sinni til tvisvar í viku. best er að byrja með einföldum æfingum þegar hundurinn er aðeins nokk- urra mánaða gamall en þess eru mörg dæmi að eldri hundar hafi náð góðum árangri. Þegar teym- ið hefur staðist C, b og að lokum A próf tekur við tímabil þar sem eigandinn þarf að viðhalda þjálfun hundsins. Þjálfunin á sér stað með jákvæðum stuðningi við hegðun hundsins. Það þýðir að geri hund- urinn það sem af honum er ætl- ast er hann verðlaunaður með því að leika við hann eða gefa honum nammibita. Leik- og matarhvöt hundsins er notuð til þess að þjálfa hundinn og láta hann gefa til kynna hvar týndi einstaklingurinn er. Afar mikilvægt er að hundaeigandinn sinni umhverfis þjálfun frá ungum aldri hundsins og kenni hundinum almennar hlýðnireglur. Allir leit- arhundar þurfa að taka hlýðnipróf með eiganda sínum.“ Byrjaði í björgunarsveit Rolando byrjaði að starfa með björgunarsveitinni Tindum í Hnífsdal árið 2007. Hann segist hafa byrjað í björgunarsveit vegna þess hvað Ísland og Íslending- ar tóku vel á móti honum. Hann vildi gefa eitthvað til baka og fannst þetta góð leið til þess. Hann seg- ir frá því að björgunarsveitir þurfi oft að aðstoða ökumenn jeppa í erf- iðri færð á fjöllum. björgunarmenn sjái þá stundum um að keyra jepp- ana til byggða. „Oft horfa þessir ökumenn jeppanna á mig skrýtnir á svip, eru greinilega að hugsa; þetta er útlendingur, svona dökkur á hör- und. Það getur ekki verið að hann kunni að keyra í snjó,“ segir Rol- ando og hlær. Jafnframt lýsir hann því hvernig björgunarmönnum líð- ur þegar þeir finna týnda mann- eskju heila á húfi. „Það er geggjuð tilfinning og maður hættir að hugsa um allt erfiðið sem fylgir þessu starfi.“ Árið 2009 byrjar hann í björgun- arhundasveit Íslands. Rolando legg- ur mikla áherslu á mikilvægi þess að gefast aldrei upp. Labradorinn Max er fjórði hundurinn sem hann þjálf- ar. Fyrri hundar reyndust ekki vel, voru með skapgerðargalla og hent- uðu ekki til þess að vera björgunar- hundar. Hann hafði fengið þá sem fullorðna hunda og vissi því ekki af þessum göllum. Það er ekki fyrr en með Max að hann nær árangri og Max og Rolando hafa nú lok- ið öllum prófum sem tilskilin eru fyrir björgunarhunda og eigendur þeirra. Flutt á Bifröst Árið 2013 ákvað Rolando að halda áfram námi og flutti fjölskyldan þá að bifröst. Rolando og Guðrún Olga hefja nám í Háskólagátt við skólann, sem er brú inn í háskóla- nám fyrir þá sem ekki eru með stúd- entspróf. Rolando var með stúd- entspróf en vildi sjá hvernig hon- um gengi að læra íslensku áður en hann skellti sér í sjálft háskólanám- ið. eftir Háskólagáttina fór hann í viðskiptafræði og Guðrún Olga í viðskiptalögfræði. Rolando hafði lært og unnið við smíðar á Ísafirði. Hann byrjaði að vinna við viðhald á Háskólanum á bifröst árið 2014. Hann segir að þau kunni mjög vel við sig á bifröst og séu ekki á leið- inni að flytja annað. Drónar Rolando er löggiltur slökkviliðs- maður og hefur sem slíkur tek- ist á við krefjandi verkefni að und- anförnu. Hann hefur unnið mikið með dróna frá björgunarsveitinni Heiðari, bæði fyrir slökkviliðið og björgunarsveitina. Rolando útskýrir hversu ómetanlegt sé að hafa dróna við slökkvistörf. Hægt er að greina með drónanum heita fleti sem ekki eru sjáanlegir með berum augum auk þess sem dróninn býður upp á sjónarhorn sem ekki væri annars í boði. Með hitamyndavél drónans er hægt að greina eld inni í hólfum bygginga og hægt er að sjá hvernig eldurinn er að þróast og ferðast eft- ir byggingum. Hitamyndavélin gef- ur einnig upplýsingar um hitastig á yfirborði bygginga sem er mjög mikilvægt fyrir slökkvilið. Dróninn nýtist því slökkviliðinu en ekki síð- ur björgunarsveitinni. Dróninn er nýttur til þess að leita að fólki úr ákveðinni hæð með hitamyndavél. Þegar einstaklingurinn er fundinn er hægt að setja hátalara á drón- ann og koma þannig skilaboðum til viðkomandi. síðan er hægt að setja vinnuljós á drónann sem nýtist við vinnu björgunarmanna við dimm- ar aðstæður. Rolando lýsir því jafn- framt hversu öflugt það er að geta leitað með dróna og leitarhundi á sama tíma. Þakklátur frelsinu og örygginu Þegar líður að lokum þessa spjalls okkar vill Rolando undirstrika hversu þakklátur hann er landi og þjóð fyrir að hafa tekið svona vel á móti sér og gefið sér svona mörg tækifæri, frelsi og öryggi. Honum finnst bara mjög eðlilegt að hann standi í þessu öllu því hann er bara að leggja sitt að mörkum til sam- félagsins, það sé það minnsta sem hann geti gert. Hann kunni afar vel við Íslendinga og segist ekki hafa hitt óheiðarlegan mann öll þessi tuttugu ár sem hann hefur dvalið á Íslandi. Honum líði frábærlega hér á landi og hann segist vera virkilega hamingjusamur með stöðu sína í dag. frg/ Ljósm: Rolando Díaz og úr einkasafni. Rolando með drónann. Björgunarhundasveit Íslands. Rolando og snjó- og rústaleitarhundurinn Aska. Rolando og víðavangsleitarhundurinn Max.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.