Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Side 76

Skessuhorn - 16.12.2020, Side 76
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202076 Mjög víða stunda áhugaljósmynd- arar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín byggðarlög; fanga þann- ig atvinnusöguna, menninguna, mannlífið eða náttúruna. samtíma- skráning af þessu tagi er mikilvæg. Hér á Vesturlandi eru fjölmarg- ir sem stunda áhugaljósmyndun af kappi. Í jólablöðum skessuhorns á liðnum áratugum hafa áhuga- ljósmyndarar á Vesturlandi verið kynntir, einn á hverju ári. Við köll- um þetta fólk samtímasöguritara, fólkið sem á í fórum sínum þúsund- ir mynda frá liðnum árum. Myndir sem varðveita annars glötuð augna- blik. Hefur alltaf verið listrænn Atli Harðarson er sagnaritari sam- tímans að þessu sinni. Atli er sunn- lendingur að uppruna, bjó og starf- aði lengi á Akranesi en er nýlega fluttur til Reykjavíkur. Atli hefur alltaf verið listrænn í sér og byrjaði ungur að teikna myndir. „Ég teikn- aði daginn út og inn sem krakki og var alltaf með teikniblokkina við höndina og gerði kennarana mína í barnaskóla efalaust oft pirraða á því að ég var alltaf á kafi í teikniblokk- inni. Ég var á tímabili á báðum átt- um um hvort ég ætti að fara í mynd- listarnám en endaði svo í heimspeki í háskólanum,“ segir Atli og bæt- ir við að áhugi hans á formum og myndbyggingu hafi þó áfram verið til staðar. „Ég hélt svo bara áfram að búa til myndir en í staðin fyr- ir að teikna fór ég að nota mynda- vél. Ég er ekki að taka ljósmyndir sem heimildir eða eitthvað slíkt eða til að segja frá einhverju sérstöku, heldur er ég bara að búa til mynd- ir af formum í umhverfinu,“ segir hann. Pælir lítið í búnaðinum Aðspurður segist Atli ekki spá mik- ið í búnaðinum sem hann notar við myndatökur. „Ég man varla sjálfur hvað myndavélin mín heitir og mér þykir það í raun algjört aukaatriði. Ég hugsa ekki mikið um vélina þeg- ar ég tek myndir, ég veit jú svona lágmarkið eins og hvert ljósopið er og þar með hvað mikið er í fókus en ég eyði ekki hugarorkunni í að spá of mikið í tæknilega hlutann. Ég hugsa nær eingöngu um ramm- ann og hvaða möguleika ég sé í því sem ég hef fyrir framan mig. Ég er bara að taka myndir en ekki að fikta í græjum,“ segir Atli. spurð- ur hver sé lykillinn að góðri mynd segir hann það vera þjálfun. „Aðal atriðið er að gera sér grein fyrir að myndavélin sér hlutina ekki eins og augun og læra inn á það og þá get- ur maður náð góðri mynd. Þegar maður horfir á eitthvað venjulega sér maður það sem grípur athygl- ina og er beint fyrir framan mann. Maður tekur í raun ekki eftir því sem er á jaðrinum. en myndavél- in virkar ekki þannig, hún tekur allt sem er innan rammans og maður þarf þjálfun til að læra að láta allt myndefnið í rammanum vera sam- ræmda heild. Til þess þarf í raun að snúa upp á skilningarvitin og það er okkur ekki eðlilegt. Þetta er eitt- hvað sem tekur tíma að þjálfa og það gerir maður bara með að taka myndir og æfa sig,“ segir Atli. Fuglarnir í uppáhaldi Atli hefur alltaf verið hugfanginn af myndlist og segir það ekki skipta hann neinu máli hvort það sé tré- litamynd eða ljósmynd. en hvern- ig myndir þykir honum skemmti- legast að taka? „Myndir af stygg- um fuglum,“ svarar hann. „en mér þykir líka gaman að taka myndir af sjónum og Langisandur er í miklu uppáhaldi. Hann er algjört ævintýri fyrir ljósmyndara því hann breytist svo hratt. Þú getur komið á Langa- sand að taka myndir með klukku- tíma millibili og hann hefur alveg breytt um lit og form og myndirn- ar geta verið gjörólíkar. stundum er sandurinn eins og gull, stund- um svartur eða hvítur og svo stund- um eins og spegill,“ segir Atli. „Ég hef mjög gaman að litum og birtu en fuglarnir eru númer eitt. Ætli það sé ekki því það er mátulega erf- itt fyrir mig að ná góðum mynd- um af þeim,“ segir hann og hlær. „Þú segir fuglinum ekki að stilla sér upp og bíða á meðan þú tekur mynd. skemmtilegustu myndirn- ar eru þær sem maður hefur unnið fyrir eins og myndir af spörfuglum eða krummanum. Þetta eru kvik- ir og styggir fuglar sem fara þegar maður kemur of nálægt. Það þarf því oft langar samningaviðræður til að komast að þeim. Maður tek- ur bara eitt skref í einu og nálgast þá mjög hægt og svo verður mað- ur að komast að þeim frá réttri hlið svo það verði eitthvað úr myndinni. Ég hef ekki farið út í það að kaupa svakalegar linsur til að ná myndum af þeim eða liggja í byrgi og bíða. Ég bara tek tímann minn og kem mér eins nálægt fuglinum og ég get, nógu nálægt til að hægt sé að sjá blik í auga. Það er svo skemmti- legt að eiga við þessi dýr, fá að heilsa þeim svona og semja við þau svo maður nái af þeim myndum,“ segir Atli. Rekist á myndirnar sínar víða Atli hefur séð myndirnar sínar birt- ar víða, til dæmis í auglýsingum, en hann segir það bara skemmtilegt. „Ég hef svolítið ferðast til Grikk- lands og í einni ferðinni sá ég mynd eftir mig í túristabæklingi þar og á heimasíðu þorps í Grikklandi. Ég er alltaf að rekast svona á mynd- ir eftir mig hingað og þangað. Ég birti myndirnar mínar á Flickr síðu og fólki er velkomið að nota þær svo lengi sem það er ekki að breyta myndunum eða selja þær. Þeg- ar ég er búinn að taka mynd á ég hana í raun ekki, þetta var bara eitt- hvað fyrir framan mig sem ég sá og tók mynd af og ef aðrir geta notið þess er það bara frábært,“ segir Atli. Hægt er að skoða myndirnar hans Atla á flickr.com/photos/atlih. arg Sagnaritari samtímans 2020 Ljósi brugðið á ljósmyndir og áhugamál Atla Harðarsonar Atli Harðarson. Atli heldur mikið upp á Langasand á Akranesi. Atli segir það skemmtilegast að mynda stygga fugla. Matartími.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.