Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 79
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 79
Bílasprautun Vesturlands óskar þér
og þínum gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Óska starfsmönnum mínum og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þakka samskiptin á árinu sem er að líða.
Eiríkur Ingólfsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Við kynningarstarf á Bifröst.
Óskar núverandi og
fyrrverandi nemendum,
starfsfólki og velunnurum öllum,
gleðilegra jóla og þakkar gott
samstarf á liðnum árum.
Hlökkum til
2021
ann og ræðum einhverja bók sem
allir hafa lesið. Því miður er eng-
inn karl í hópnum. Ég held að það
sé af því að þeir halda að hópurinn
lesi bara kerlingabækur, þótt ég hafi
raunar ekki fengið skilgreiningu á
þeim bókmenntum,“ segir Guðrún
Lilja kímin.
Sérstakt brúðkaup
Fyrrverandi hjónaleysin Gunn-
ar Jökull og Guðrún Lilja tóku þá
ákvörðun, árið 2019, að gifta sig.
Þau vildu ekkert vesen, ekkert til-
stand, enga veislu, heldur bara
stutta, látlausa athöfn í lítilli kirkju.
Í þessu augnamiði var brunað aust-
ur á land, nánar tiltekið á bakka-
fjörð þar sem vinur þeirra býr.
Með í för voru æskuvinir Guð-
rúnar Lilju sem voru einu brúð-
kaupsgestirnir ásamt húsráðanda.
Reyndar sögðu vinirnir að það væri
ekkert endilega víst að presturinn
myndi koma, hann ætti það til að
vera gleyminn. Guðrún Lilja hafði
verið í sambandi við prestinn áður
og reynt að útskýra hvernig þau
vildu hafa athöfnina og meðal ann-
ars að það yrði alls enginn söngur.
Þau væru öll laglaus og söngur væri
ekki uppi á borðinu. „Presturinn
kemur nú um kvöldið og fer yfir
með okkur hvernig allt muni ganga
til og dregur síðan svaramennina
út fyrir vegg. Við vissum ekkert
hvað þeim fór á milli, enda nokkuð
sama. en daginn eftir mætir prest-
urinn og athöfnin hefst. Í ræðunni
segir hann meðal annars að við eig-
um að njóta fegurðar, hlúa hvort að
öðru og eitthvað slíkt og að hjóna-
band sé allavega, bæði fyrir kon-
ur og konur og líka fyrir karla og
karla. Líklega hefur presturinn
komist svona að orði vegna þess að
æskuvinur minn og svaramaður er
samkynhneigður, svo hann hefur
eflaust ætlað að passa upp að jafn-
vægis væri gætt í ræðunni.“
Söngurinn
„Þegar þessari undarlegu ræðu er
nú lokið standa nú svaramennirnir
upp og hefur presturinn upp raust
sína og syngur: „bjart er yfir betle-
hem“ og svaramennirnir taka und-
ir. Þá var okkur nú eiginlega öll-
um lokið. Það var september og
kannski engan veginn viðeigandi
að syngja þetta lag. Þegar við geng-
um á svaramennina, þá sögðu þeir
að prestur hefði krafist þess kvöld-
ið áður að eitthvað yrði sungið og
það eina sem þeim datt í hug var
þetta lag, af því að ég væri svo mik-
ið jólabarn. Það er alveg ljóst að
brúðkaupsdeginum okkar gleym-
um við aldrei,“ segja þau Guð-
rún Lilja Magnúsdóttir og Gunnar
Jökull Karlsson brosandi að lokum.
bgk
Með svaramönnunum eftir brúðkaupið. Frá vinstri eru Sveinn Haraldsson, Gunnar Jökull Karlsson, Guðrún Lilja Magnúsdóttir
og Pétur Andrésson.
Við opnun bókamarkaðar. F.v. Guðbjörg Jenni Ríkharðsdóttir, Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Jónína Herdís Björnsdóttir.