Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 88
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202088
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
lýsti árið 2020 sem ár hjúkrunar-
fræðinga og ljósmæðra. sennilega
hefur engan þar rennt í grun um
hversu sannspáir þeir voru því að á
fáum stéttum hefur mætt meira en
einmitt þeim það sem af er árinu
2020. Að auki á Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga 100 ára afmæli í
ár. einn af hjúkrunarfræðingunum
okkar er sigrún Guðný Pétursdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur á bráðamót-
töku Landspítalans í Fossvogi. Það
er hins vegar ekki það eina sem sig-
rún fæst við því auk þess er hún for-
maður björgunarfélags Akraness.
sigrún brennur fyrir skyndihjálp og
hefur haft leiðbeinenda réttindi á
því sviði í meir en 20 ár. Hún hefur
kennt m.a. björgunarsveitarmönn-
um, leiðsögumönnum og nemend-
um í stýrimannaskólanum, auk þess
að kenna á vegum Rauða Kross Ís-
lands. Þá hefur hún setið í endur-
lífgunarráði sem er fagráð sérfræð-
inga á sviði endurlífgunar. Megin-
markmið þess er að auka upplýsing-
ar, stuðla að fræðslu og bæta staðla
í endurlífgun með það að leiðar-
ljósi að bjarga mannslífum. sigrún
er að klára nám til sérfræðiréttinda í
bráðahjúkrun. sérfræðingar í hjúkr-
un hafa viðmikla klíníska þekkingu,
eru leiðtogar á sínu sviði og hafa
það hlutverk að stuðla að faglegum
vinnubrögðum og efla fræðastörf.
Að lokum má nefna að sigrún er að
leggja lokahönd á rannsókn um slys
á rafhlaupahjólum.
Þegar Covid hópsmit braust út á
Landakotsspítala nýverið var hún í
hópi sjálboðaliða sem gekk til liðs
við sérstaka Covid deild sem var
sett á stofn vegna hópsmitsins. Það
var því ekki úr vegi að fræðast meira
um þessa kraftmiklu skagakonu.
„Það er engin kona
í slökkviliðinu“
sigrún er það sem hún kallar að-
flutta skagamanneskju. Hún út-
skrifaðist sem stúdent frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands árið 1996.
„Ég fór til námsráðgjafa í fjöl-
brautaskólanum því mig langaði að
verða sjúkraflutningamaður. Ég hef
alltaf haft áhuga á skyndihjálp og
langaði einfaldlega til þess að verða
sjúkraflutningamaður. Námsráð-
gjafinn var hins vegar ekki bjart-
sýnn á það; „það væri engin kona
í slökkviliðinu,” voru svörin sem
ég fékk.“ Að sögn sigrúnar byrj-
aði svo fyrsta konan í slökkvilið-
inu í Reykjavík árið 2001. Þannig
varð úr að heilbrigðisfræðin urðu
samt fyrir valinu; sigrún lærði til
sjúkraliða og kláraði stúdentspróf
og fór að því loknu í nám í hjúkr-
un. „Markmiðið var alltaf að vinna
á bráðadeild, fyrst ég gat ekki orðið
sjúkraflutningamaður, og ég sé ekki
eftir því vali í dag,“ segir sigrún.
Hún lauk námi í hjúkrunar-
fræði frá Háskólanum á Akureyri
árið 2002 og meistaraprófi í bráða-
hjúkrun 2017. Lokaverkefni henn-
ar fjallaði um slys í óbyggðum á Ís-
landi. sem skyndihjálparleiðbein-
andi hefur sigrún sérhæft sig í
fyrstu hjálp í óbyggðum og hefur
leiðbeinendaréttindi frá Wilderness
Medical Associates í bandaríkjun-
um „Það er búið að vera mjög gam-
an að hafa náð að sameina svona
faglegu þekkingu mína og reynslu
sem hjúkrunarfræðingur og svo
áhuga minn á skyndihjálp, björg-
unarsveitarstörfum og kennslu.“
Aðspurð um hvernig áhuginn á
björgunarstörfum hafi byrjað segir
sigrún: „Ég hef alltaf verið í björg-
unarsveit og hef verið í alls fjórum
sveitum frá upphafi. Þetta er hálf-
gerður lífsstíll, þannig að þegar ég
hef flutt í annað bæjarfélag hef ég
leitað uppi björgunarsveit og þar
fundið fólk og eignast vini með
sama áhugamál og ég. Ég var í skát-
unum sem krakki og unglingur og
byrjaði í Hjálparsveit skáta á Akra-
nesi árið 1993. Var að klára nýlið-
ann þegar snjóflóðin á Flateyri og
súðavík voru, það er einmitt eftir-
minnilegt að hafa komið á Flateyri,
en ég fór þangað á vegum björg-
unarsveitarinnar með hóp sem var
sendur í verðmætabjörgun daginn
eftir að björgunstörfum var lok-
ið. Þegar ég flutti norður á Akur-
eyri gekk ég í Hjálparsveit skáta
Akureyri sem heitir núna björg-
unarsveitin súlur. svo hef ég starf-
að með Hjálparsveit skáta í Kópa-
vogi og björgunarsveitinni Ársæli í
Reykjavík. Nú er ég komin aftur á
Akranes og tók að mér að vera for-
maður björgunarsveitarinnar í vor.
Þar kemur reynsla mín af hjúkr-
unarfræðinni sér vel þar sem ég
hef lært um stjórnun og er vön að
vera í því hlutverki í vinnunni auk
þess sem ég hef verið með allskon-
ar verkefni á lofti og þurft að halda
utan um þá vinnu.“
Einstök upplifun
Þegar Covid skall á kom eins og
kunnugt er upp hópsmit á Landa-
koti. Þá var öldrunardeild sem
hafði verið lokað nokkru fyrr ver-
ið enduropnuð og til þess að manna
deildina var sent ákall til bráðamót-
tökunnar og bakvarðasveitarinn-
ar sem er hópur fólks með reynslu
af starfi innan heilbrigðiskerfisins
en vinnur ekki endilega þar leng-
ur. „Það gerði þessa starfsemi alveg
einstaka upplifun, það voru allir að
koma þarna inn til þess að hjálpa
til, bregðast við ástandinu,“ segir
sigrún. „Það er ekkert auðvelt að
vera klæddur í nauðsynlegan bún-
ing. Maður var max í tvo klukku-
tíma inni í einangraða svæðinu í
einu. Þarna vorum við til dæmis í
fullum sóttvarnarskrúða að baka
vöfflur, mjög sérstök upplifun. Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á hóp-
slysaviðbúnaði og viðbrögðum við
neyðarástandi og mætt á allskonar
hópslysaæfingar, en aldrei datt mér
í hug að í fyrsta sinn sem Landspít-
alinn er settur á neyðarstig yrði ég
að vinna í smitvarnarbúningi að
hjúkra öldruðum. Þetta er aldeil-
is búið að kenna manni að vera við
öllu búinn.“
Kostnaðarsamur rekstur
björgunarsveitarinnar
Það er ærið kostnaðarsamt að reka
björgunarsveit og björgunarfélag
Akraness hefur víðfeðma starfsemi
og sinnir björgunarstörfum bæði
á landi og sjó. Það kallar á mikinn
og dýran tækjabúnað auk þess sem
rekstur alls þessa er mjög kostnað-
arsamur. „Þá er ekki nóg að eiga
bara flott tæki heldur þarf að hafa
vel þjálfaðan mannskap. bA býr
að því að vissu leyti að hafa nokk-
uð stóran hóp af félögum sem hafa
sérhæft sig á ýmsum sviðum og
hafa orðið mikla reynslu af björg-
unarstörfum. björgunarstörf sem
við förum í eru mjög margvísleg og
því þarf alltaf að vera fræðsla og æf-
ingar en því miður hefur þurft að
hægja á starfseminni vegna Covid,“
segir sigrún.
Á landi á og rekur björgunar-
félag Akraness bæði jeppa, vél-
sleða og sexhjól. Á sjó rekur félagið
björgunarskip, einn harðbotna bát
og tvo slöngubáta þar af einn létt-
an meðfærilegan. sá kom sér vel í
björgun á skorradalsvatni á dög-
unum. Þá gerði smæð hins litla
báts mönnum mögulegt að koma
bátnum mjög hratt á flot og sækja
mann út á vatnið sem var í vanda
staddur. björgunarskipið er núna í
slipp vegna viðhalds og skoðanna,
svona slippur er á fimm ára fresti og
er töluvert kostnaðarsamur. Harð-
botna báturinn er orðinn of gam-
all og stenst ekki lengur þær kröfur
sem gerðar eru til björgunartækja,
til stendur að endurnýja hann. Fé-
lagið mun fá bát frá Rafnar báta-
verksmiðjunni svo tryggt er að við-
bragð á sjó sé til staðar á meðan
skipið er í slipp.
Það verður sífellt erfiðara að fá
fólk til starfa í björgunarsveitun-
um, að sögn sigrúnar. „Áður mátti
gera ráð fyrir að ef þú rakst á mann
í fjallgöngu væri hann mjög líklega
björgunarsveitarmaður og senni-
lega undanfari. Nú er framboð af
alls kyns útiveru gríðarlega mik-
ið og annar hver maður gangandi
á fjöll og það þykir ekki endilega
spennandi að vera í björgunarsveit
með öllum þeim verkum sem því
fylgja umfram bara ferðamennsku,“
segir sigrún.
Flugeldasala
„Nú er að ganga í garð tími flug-
eldasölu sem er sá tími sem björg-
unarsveitirnar reiða sig mest á
varðandi fjáröflun. Fyrirkomulag
á flugeldasölu verður nokkurn veg-
inn með eins sniði í ár og undan-
farin ár, auðvitað með þeim smit-
varnareglum sem gilda í verslunar-
ferðum og við erum orðin vön. Íbú-
ar hafa reyndar margir haft þann
sið að koma að versla rétt fyrir ára-
mót en ég myndi vilja hvetja fólk
til að koma fyrr til að dreifa mann-
skapnum betur,“ segir sigrún.
björgunarsveitin mun í ár bjóða
upp á netsölu á flugeldum en þar
sem heimkeyrsla er ólögleg verður
fólk að ná í pantanir. sigrún seg-
ist ekki óttast að neitt fari úrskeið-
is við flugeldasöluna þó óvenjuleg
sé enda sé björgunarsveitafólk sér-
fræðingar í skipulagningu. slóðin á
vefverslun björgunarfélags Akra-
ness er www.akranes.flugeldar.is og
verður hún opnuð þann 20. des-
ember.
Lífið fer ekki alltaf eins og mað-
ur hugsar sér það í upphafi, hvort
sem málið varðar framtíðarstarfs-
val eða heimsfaraldur. en ljóst er
eftir spjall við þennan öfluga hjúkr-
unarfræðing að starf innan hjúkr-
unarfræða býður upp á allskonar
fjölbreytta möguleika.
frg/ Ljósm. úr einkasafni
Sigrún vel hrímuð á sjóbjörgunaræf-
ingu.
Langaði að verða sjúkraflutningamaður
Sigrún Guðný Pétursdóttir er formaður Björgunarfélags Akraness
Sigrún í óbyggðaferð á Grænlandi 2019.
Sigrún ásamt maka sínum Inga Hauki Georgssyni.
Spottavinna í Akrafjalli. Sigrún með félögum sínum í Björgunarfélagi Akraness.
Sigrún við vöfflubakstur í covid
búningi.