Skessuhorn - 16.12.2020, Side 104
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020104
Þetta máltæki; „Þá mega jólin koma fyr-
ir mér,“ er gjarnan notað yfir athafnir
sem fólki finnst nauðsynlegt í aðdraganda
jóla. Byggir á hefðum og venjum viðkom-
andi og getur verið afar persónubund-
ið eða tengt fjölskyldum. Við heyrðum í
nokkrum íbúum á Vesturlandi og spurð-
um þessara spurningar; hvað er nauðsyn-
legt að gera í aðdraganda jóla?
Guðrún Jónsdóttir, Borgarnesi
Skreytir inni og
föndrar jólakort
Jólin. skelfing eða hamingja? Ég kýs það síð-
ara. Til að byrja með er undirbúningurinn
skemmtilegur. skítt með þrifin (betra að þrífa
á vorin þegar afraksturinn sést) og eiginmað-
urinn mikilhæfi annast matinn og útiskreyt-
ingarnar. Jólagardínur eru ekki á dagskrá. Ég
sérhæfi mig í að skreyta inni og að hugsa til
minna nánustu með því að finna gjafir, skrifa
jólabréf, föndra jólakort og senda fjarstödd-
um ættingjum og vinum rafrænar fréttir og
myndir. Því fylgja hlýjar hugsanir og góðar.
svo erum við svo lánsöm að börn og tengda-
börn kjósa að eiga samverustundir með okk-
ur. Jólin eru tíminn þar sem raunveruleg
verðmæti eru í hávegum höfð og við hugsum
um þá sem okkur þykir vænt um.
Hafþór Ingi
Gunnarsson, Borgarnesi
„Fötin skapa jólin“
Jóla undirbúningur hjá mér felst í því að
kaupa jólakerti, henda nokkrum jólaljósum í
glugga og taka niður kassann með jólafötun-
um. Þetta er stór kassi, IKeA kassi, 10 lítra
kassi. Í þessum kassa eru tvær jólapeysur; ein
rafmagns og hin útskreytt af jólahestum, pip-
arkökum og einhverju tré. skyrta sem lyktar
ekki alveg eins vel og síðustu jól en lítur samt
vel út. Á skyrtunni eru fullt af piparkökuköll-
um. buxur með snjókörlum, og aftur ein-
hverju tréi og jólaskrauti. Lopasokkar sem
amma prjónaði árið 2012 og eru jólasokkarn-
ir. Þrír jólabolir. einn merktur, „Festivus for
the rest of Us.“ Annar bolur sem ég skil ekki
alveg enda pantaði ég hann frá Ali express og
sá þriðji hinn rammíslenski „Jól“.
Ég verð í þessum fötum, til skiptis auðvitað,
allan desember. Gleðilega hátíð.
Inga Maren Ágústsdóttir,
Akranesi
Mikilvægt að vera
sveigjanlegur
Það sem mér finnst best við jólin er eiginlega
tilhlökkunin, pælingarnar og spennan. Lang
flestir í kringum mig eru að pæla í skreyting-
um, pakkakaupum, matargerð og undirbún-
ingi.
Mér finnst það skipta miklu máli að vera
ekki of fastur á sínu, geta verið sveigjanleg-
ur með alls konar hefðir og tímasetningar á
þeim. Hefðirnar geta alveg haldið sér og nýj-
ar bæst við, þó að tímasetningarnar geti riðl-
ast eitthvað. Það eru samt nokkur atriði sem
eru alltaf eins hjá minni fjölskyldu eins og t.d.
laufabrauðsgerð og möndlugrautur á esju-
völlunum í hádeginu á aðfangadag. Jólatréð
er svo skreytt á Þorláksmessu og heitt kakó
og smákökur yfir jólatónlist eða jólamynd á
eftir. Aðfangadagur er svo á esjó, hamborg-
arhryggur er eini fasti liðurinn þar en eftir-
réttur er misjafn á milli ára en kaffi og kon-
fekt alltaf með pakkaflóðinu. Frá því að ég var
lítil hefur sá sem fékk möndluna fengið það
hlutverk að lesa á pakkana. Jólaundirbúning-
urinn byrjar þó alltaf með skemmtilegasta
leynivinaleik í heimi hjá okkur í vinnunni.
Anna Margrét Ólafsdóttir,
Stykkishólmi
Endurtekið ritúal
frá ári til árs
Alltumlykjandi eru þau skilaboð að framþró-
un, breytingar og nýjungar séu nauðsynlegar,
að stöðnun sé andlegur dauði hvers manns.
sitt sýnist hverjum en jólin mega fyrir mér
vera meitluð í stein, endurtekið ritúal frá ári
til árs. Jólaandinn minn býr í hefðunum sem
ég reyni að breyta og aðlaga eins lítið og ég
kemst upp með. Auðvitað verða vissar mála-
miðlanir að eiga sér stað í samfélagi við aðra
menn en ég reyni að ríghalda í mínar hefðir
eins og ég get. Það skiptir máli hvenær jóla-
tréð fer upp, það er ekki í lagi að byrja að spila
jólalög í október (þótt menn verði að beita
sig hörðu), smákökurnar hennar mömmu eru
bestar og jólalög samin eftir 1995 eiga erfitt
með að fljúga undir radarinn. en hvað sem
öllum hefðum líður er þó það allra besta við
jólin blessuð aðventan sem er svo notaleg og
dimm og gerir viðkvæman kertalogan svo fal-
legan.
Jóhanna Lóa Sigurbergsdóttir,
Borgarnesi
Möndlugrauturinn
uppáhalds hefðin
Jólin og aðventan er eitt af mínum uppá-
haldstímum á árinu. Ég starfa sem hár-
snyrtir í borgarnesi svo það er nóg að gera í
vinnunni minni á þessum tíma, en alltaf jafn
gaman. Við fjölskyldan nýtum þó tímann eins
vel og við getum. Við bökum saman, skreyt-
um piparkökuhús, horfum á jólamyndir, för-
um á tónleika, jafnvel í leikhús, njótum úti-
verunnar og margt fleira notaleg. Mín uppá-
halds hefð á aðventunni eða jólunum er þegar
við stórfjölskyldan hittumst hjá ömmu minni
í hádeginu á aðfangadag. Þar borðum við
möndlugraut, rífumst um möndluna og eig-
um yndislegan tíma saman áður en allir fara
heim til sín að undirbúa jólin.
Karen Lind Ólafsdóttir,
Akranesi
Margar hefðir á
jólunum
einfaldar hefðir eins og að mála piparkökur
með krökkunum, horfa á sígildar jólamyndir.
eftir að við vorum búsett í Danmörku höf-
um við alltaf farið í desember og sagað okk-
ur jólatré í nærliggjandi skógum með kakó og
smákökur, núna síðustu ár höfum við farið í
Akrafjallið þar sem skógræktarfélga Akraness
er með opið fyrir fólk í slögu að saga sér tré.
Þessar ferðir hafa endað misvel. einu sinni
var mjög þungfært og eitthvað gekk erfiðlega
að finna hið fullkomna tré, á endanum voru
allir farnir að grenja úr kulda og í þokkabót
neitaði bíllinn að fara í gang og við þurftum
að láta sækja okkur. svo finnst mér alltaf til-
heyra að fara á Akratorg og sjá þegar kveikt
er á jólatrénu okkar og jólasveinarnir kíkja í
heimsókn. Afmælisveislur tilheyra líka því tvö
af börnunum okkar eiga afmæli á Þorláks-
messu og pabbinn annan í jólum. Þá er mik-
il hefð fyrir tveimur réttum sem við bjóðum
alltaf upp á, en það er heimabakað rúgbrauð
með ákveðinni hvítlaukssíld og heit kæfa með
beikoni og sveppum.
svo hef ég og tvær vinkonur mínar yfirleitt
farið á rúntinn um Akranes og valið flottasta
og ljótasta jólaskrautið.
Gamli fótboltavinkonuhópurinn minn hef-
ur í mörg ár hist og bakað sörur og ýmislegt
góðgæti, hlegið og sýnt einstaka hæfileika í
eldhúsinu.
Eiríkur Jónsson, Borgarnesi
Heitt hangikjöt á
Þorláksmessu
Í minni fjölskyldu hefur skapast sú hefð að
borða heitt hangikjöt með smjörsmurðu
franskbrauði á Þorláksmessukvöld. Það er
þannig til komið að þegar faðir minn var ung-
ur sauð amma alltaf hangkjöt á Þorláksmessu.
Þar sem amma mín var afar eftirlátssöm féll
hún fyrir suði krakkaskarans og leyfði þeim
að smakka. Þegar þau síðan uxu úr grasi og
stofnuðu sínar fjölskyldur tóku þau til við að
sjóða kjötið sérstaklega til að gæða sér á því
heitu á Þorláksmessu. Í minni útfærslu þarf
þetta að gerast frekar seint að kvöldi, njótast
með skjannahvítu samlokubrauði frá Geira
og vel möltuðum jólabjór. Þá mega jólin
koma fyrir mér.
Hilmar Már Arason, Ólafsvík
Jólaútvarpið kemur
með jólaskapið
Það sem er mikilvægast að gera fyrir jól-
in er að njóta þessa tíma og vera í samvist-
um við sína nánustu sem er erfitt við núver-
andi ástand. Það er oft falleg vetrarveður í
desember, búið að skreyta hús og híbýli svo
unun er að labba um og skoða. sá góði siður
er að festa sig í sessi hjá okkur í snæfellsbæ
að skólinn okkar er með jólaútvarp sem kem-
ur manni í jólaskap nú þegar hátíðin er að
ganga í garð. eins er boðið upp á í skógrækt-
inni í Ólafsvík að fólk getur valið sér sín eigin
tré og myndast góð jólastemming í kringum
þann viðburð. Gleðileg jól!
„Þá mega jólin koma fyrir mér“