Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Side 110

Skessuhorn - 16.12.2020, Side 110
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020110 “Hvað langar þig mest í í jólagjöf?” Spurning vikunnar (Kaupmenn á Akranesi spurðir.) Ingþór Bergmann Þórhallsson í versluninni Omnis Mig langar í fjallahjól. Ásta Björg Gísladóttir í versluninni Bjargi. Mig langar í veirufrí jól. Heimir Jónasson í versluninni Nínu Mig langar í gott ilmvatn. Guðni Tryggvason í versluninni Model Allt milli himins og jarðar. Hrefna Björnsdóttir í verslun- inni Hans og Grétu Mig langar í nýju bókina hennar evu bjargar Ægisdóttur, Næt- urskuggar. Í síðustu viku tilkynnti Körfuknatt- leikssamband Íslands þá leikmenn sem valdir hafa verið í sína fyrstu æfingahópa yngri landsliðanna fyrir U15, U16 og U18 ára lands- lið drengja og stúlkna fyrir verk- efni sumarsins 2021. Þar á með- al má finna nokkra galvaska Vest- lendinga. Frá snæfelli í stykkishólmi voru tveir leikmenn valdir; Ingigerður sól Hjartardóttir í U16 ára lands- lið kvenna og Tinna Guðrún Al- exandersdóttir í U18 ára. skalla- grímur á alls sjö leikmenn sem hafa verið valdir í æfingahóp. Í æfinga- hópi U15 stúlkna eru þær Aðal- heiður ella Ásmundsdóttir, Díana björg Guðmundsdóttir, Kolfinna Dís Kristjánsdóttir, Valborg elva bragadóttir og Victoría Lind Kol- brúnardóttir. Að lokum, í æfinga- hópi U16 stúlkna eru svo Lisbeth Inga Kristófersdóttir og Heiður Karlsdóttir. Á venjulegu ári er hefðbundið að hefja landsliðsæfingar milli jóla og nýárs en vegna ástandsins og sótt- varna í landinu þá mun KKÍ ekki standa fyrir neinum æfingum á þeim tíma. glh „Þetta er búið að vera ævintýri lík- ast eftir að ég kom til IFK Norr- köping árið 2018. bæði það að mér hefur gengið vel með liðinu og vegnað vel með landsliðum Ís- lands, bæði með U-21 árs liðinu og svo var auðvitað alveg ógleyman- legt að koma inn á í mínum fyrsta A- landsleik gegn englendingum á Wembley leikvanginum í nóvember síðastliðnum,” segir Ísak bergmann Jóhannesson í samtali við skessu- horn, en hann nú í jólafríi og stadd- ur í foreldrahúsum á Akranesi. Ísak lék upp yngri flokka ÍA og einn leik með meistaraflokki skagamanna gegn Þrótti Reykjavík í lokaleik 1. deildar haustið 2018, þá aðeins 15 ára gamall. Þá hélt hann utan og gekk til liðs við IFK Norrköping í desember sama ár ásamt frænda sínum Oliver stefánssyni. Mikil Skagatenging við Norrköping Það er mikil skagatenging við IFK Nörrköping og samstarf er á milli liðsins og ÍA. Hér áður fyrr léku bræðurnir stefán Þórðarson og Þórður Þórðarson með liðinu. Þá lék Arnór sigurðsson með því en var síðan seldur til CsKA Moskvu. Nú hefur Ísak bæst í þann hóp og verður væntanlega ekki langt að bíða að hann hverfi á braut til ann- ars félags. Ísak flutti til svíþjóðar ásamt fjöl- skyldu Olivers í byrjun árs 2019. en foreldrar Olivers eru stefán Þórð- arson og Magnea Guðlaugsdóttir móðursystir Ísaks. Þeir Ísak og Oli- ver bjuggu saman í íbúð í fjölbýlis- húsi og stefán og Magnea ásamt fjölskyldu sinni í sama húsi og voru þeim til halds og trausts. Ísak segir að þetta hafi hentað þeim mjög vel í byrjun, en síðasta hálfa árið hefur hann búið í sinni eigin íbúð í Norr- köping. „Mér hefur liðið mjög vel í borginni. Hún er vinaleg og falleg en þar búa um eitt hundrað þúsund manns og er tíunda stærsta borg svíþjóðar. Hún er vel staðsett fyr- ir sunnan stokkhólm í suðurhluta svíþjóðar. Ég fékk strax tækifæri til að æfa með aðalliðinu aðeins 15 ára gam- all og það var mikil áskorun fyrir mig. Ég lék til að byrja með í U-19 ára liði félagsins til þess að komast í leikæfingu.“ Þrátt fyrir ungan aldur er Ísak mjög agaður því auk hefð- bundinna æfinga tekur hann sjálfur sínar aukaæfingar meðal annars til að auka snerpu og úthald. Lagði upp tvö mörk í sínum fyrsta leik „Ég lék síðan minn fyrsta leik í Alls- venskan sem er efsta deild í svíþjóð þann 27. júní í sumar. Það var leik- ur gegn Östersunds FK á útivelli. Þessi leikur er mér minnisstæður þar sem ég lagði upp tvö mörk í leiknum. Við vorum undir í leikn- um 1:2 þegar um tíu mínútur voru eftir og tókst mér að leggja upp tvö mörk eftir það í 4:2 sigri. einnig er mér minnisstæður leikurinn gegn IFK Göteborg þar sem ég skoraði mitt fyrsta mark sem atvinnumað- ur í 3:1 sigri. Mín uppáhaldsstaða á vellinum er framarlega á miðjunni en einnig hef ég leikið nokkra leiki vinstra megin á miðjunni.“ IFK Norrköping hafnaði í sjötta sæti í Alsvenskan aðeins þremur stigum frá liðinu í þriðja sæti. „Það var gríðarlega svekkjandi að enda ekki ofar í deildinni,“ viðurkennir Ísak, enda metnaðarfullur eins og hann á kyn til. „Í lokaumferðinni áttum við heimaleik gegn Helsing- borg sem var í næstneðsta sæti. en við töpuðum leiknum 3:4 og misst- um þar af tækifærinu á að ná evr- ópusæti. Þessi lokaleikur liðsins var dálítið dæmigerður fyrir liðið. Jens Gustafsson þjálfari liðsins hefur lagt mikla áherslu á skemmtileg- an sóknarleik en það er stundum á kostnað varnarleiksins. en hann er samt frábær þjálfari sem er óhrædd- ur við það að gefa yngri leikmönn- um tækifæri með liðinu og naut ég meðal annars góðs af því.“ Fyrsti landsleikurinn var á Wembley en þetta var líka frábært ár hjá Ísak með landsliðum Íslands. Undir 21 árs liðið náði að tryggja sig í úrs- tlitakeppnina sem fram fer í Ung- verjalandi í lok mars og verða Ís- lendingar þar í riðli með Rússum, Dönum og Frökkum. „Við náð- um að tryggja okkur í úrslitin með tveimur góðum sigrum á lokasprett- inum gegn svíum 1:0 á Víkingsvell- inum og fræknum sigri gegn Írum ytra þar sem Valdimar Þór Ingi- mundarson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma í 2:1 sigri. Ég náði að leika minn fyrsta landsleik með landsliði Íslands í Þjóðadeildinni núna í nóvember þegar ég kom inn á sem varamaður gegn englend- ingum á Wembley leikvangnum í Lundúnum. Þrátt fyrir tap var þetta ógleymanlegt að fá mitt fyrsta tæki- færi með liðinu á þessum sögur- fræga leikvangi,”segir Ísak. eins og áður sagði er Ísak í jóla- fríi heima á Akranesi. „Það er alveg frábært að koma heim og vera hérna um jól og áramót en æfingar hefj- ast að nýju hjá mér 7. janúar. síð- an verður bara að koma í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Ísak að endingu. se/ Ljósm. aðsendar. Valborg Elva Bragadóttir sækir hér ákveðin að körf- unni. Hún var meðal þeirra sem valin var í æfingahóp U15 ára landsliðs stúlkna. Ljósm. glh. Skallagrímur með sjö leikmenn í æfingahópi yngri landsliða Búið að vera ævintýri líkast segir Ísak Bergmann Jóhannesson, sem slegið hefur í gegn með sænska liðinu IFK Norrköping og vakið athygli stórliða í Evrópu „Þetta er búið að vera ævintýri líkast eftir að ég kom til IFK Norrköping árið 2018.“ „Ég fékk strax tækifæri til að æfa með aðalliðinu aðeins 15 ára gamall og það var mikil áskorun fyrir mig.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.