Morgunblaðið - 04.06.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 04.06.2020, Síða 35
FRÉTTIR 35Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 4. júní 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 135.21 Sterlingspund 169.82 Kanadadalur 100.04 Dönsk króna 20.258 Norsk króna 14.152 Sænsk króna 14.46 Svissn. franki 140.62 Japanskt jen 1.2547 SDR 186.04 Evra 151.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.4289 Hrávöruverð Gull 1740.25 ($/únsa) Ál 1511.5 ($/tonn) LME Hráolía 37.56 ($/fatið) Brent Verne Global, sem rekur gagna- versstarfsemi á Ásbrú í Reykja- nesbæ, hefur sótt nýtt fjármagn upp á 27 milljónir dollara, jafnvirði 3,6 milljarða króna, til núver- andi hluthafa sinna. Ætlunin er að nýta fjármagnið til þess að halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Meðal hluthafa í fyrirtækinu, sem þátt tóku í fjármögnuninni, eru Wel- come Trust, Novator Partners, Stefnir og General Catalyst. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að fjármagnið muni nýtast til þess að styrkja stoðirnar undir háhraða- þjónustu fyrirtækisins. Viðskipta- vinir fyrirtækisins á því sviði eru fjármálafyrirtæki, fyrirtæki sem leysa þurfa flókin verkfræðileg úr- lausnarefni eða stunda flóknar vís- indarannsóknir og önnur iðnfyrir- tæki. Dominic Ward, forstjóri Verne Global, segir mikla eftirspurn eftir þjónustu fyrirtækisins sem komi afar vel út úr könnunum sem gerðar eru á þjónustustigi og viðhorfi viðskipta- vina þess til þess. Verne Global lýkur fjármögnun Dominic Ward STUTT „Maður er orðinn hæfilega bjart- sýnn hvað veturinn varðar, þó að auð- vitað sé um samdrátt í sölu að ræða. Ég bind vonir við að það verði tölu- verð traffík hingað til lands í vetur.“ Meðal annars segist Hallgrímur finna fyrir mikilli óþreyju hjá við- skiptavinum sínum í Þýskalandi, einkum eftir að ferðatakmörkunum á ferðum til Íslands var lyft þar í landi. Hann segir að starfsfólk Snæland- Grímssonar standi nú í ströngu við að svara spurningum um fyrirkomulag- ið á komu ferðamanna til landsins og um það hvernig skimunum í Leifs- stöð verði háttað. „Mér finnst að flug- félögin ættu að taka af skarið og sjá til þess að ferðamenn séu prófaðir áð- ur en þeir fara í flug. Það er áhætta fyrir fólk sem er að fara í dýrt ferða- lag að hætta á að lenda í sóttkví í 14 daga þegar hingað er komið.“ Hallgrímur telur að ef ferðamenn þurfa sjálfir að greiða fyrir skimun hér á landi verði það ekki þröskuldur. Litið verði á það sem hluta af ferða- kostnaðinum og menn muni ekki veigra sér við það. Hallgrímur segir að vöxtur hafi verið í komum hópa hingað til lands á vegum TUi síðustu ár. „Það hafa komið á bilinu 12-14 þúsund ferða- menn frá þeim á hverjum vetri. Á síð- asta ári var maður þó farinn að finna fyrir tregðu í sölu vegna hás gengis íslensku krónunnar. Verðlagið hér var orðið ofboðslega hátt af þeim sökum og því var það farið að hafa áhrif á öllum okkar mörkuðum. Gengi krónunnar skemmir fyrir í svona rekstri því það er svo óstöðugt. Við vinnum alltaf ár fram í tímann og því er erfitt að gera áætlanir. Þeir farþegar sem áttu að koma núna í sumar er sala sem átti sér stað síð- asta haust.“ Spurður um tjón sem Snæland- Grímsson hafi orðið fyrir vegna af- bókana segir Hallgrímur að þar sem Snæland-Grímsson sé fyrst og fremst á fyrirtækjamarkaði sé fyrir- tækið ekki í beinum samskiptum við ferðamennina sjálfa og fái því ekki greitt mikið fyrirfram. „En það er mikill kostnaður fólginn í því fyrir okkur að vera í sífellu að svara spurn- ingum og taka við afbókunum, þótt maður sé ekki búinn að fá ferðirnar greiddar.“ Færa ferðir fram á haustið Hallgrímur segir að margir þeir sem áttu ferðir bókaðar nú í sumar hafi fært ferðir sínar fram á haustið eða fram á næsta ár. „Það er mikill áhugi á Íslandi og öll umfjöllun um hve vel Íslendingar hafa staðið sig í að taka á veirunni hefur skilað sér mjög vel út á markaðinn. Ég hef trú á að þegar landið fer að opnast rúlli þetta frekar hratt af stað í júlí, ágúst og september.“ Snæland-Grímsson er með fjölda ferðaskrifstofa í viðskiptum og tugir þúsunda ferðamanna koma hingað til lands á þeirra vegum á hverju ári. Velta fyrirtækisins var um 2,3 milljarðar króna á síðasta ári en nú er útlit fyrir að fjórðungur þeirra tekna skili sér ekki vegna kórónu- veirufaraldursins. „Við skrúfuðum allt niður í byrjun mars og höfum nýtt okkur úrræði stjórnvalda til að halda lífi. Við munum svo keyra allt í gang hægt og rólega í takt við eftir- spurnina. Ég er sæmilega bjart- sýnn.“ Orðnir óþreyjufullir að koma Morgunblaðið/Sigurður Bogi Upplifun Breskir ferðamenn sem hingað koma á vegum TUi eru hrifnir af Gullfossi og norðurljósum. Áratugalöng saga » Fyrirtækið var stofnað af Snæland Grímssyni, afa Hall- gríms Lárussonar, árið 1945. » Eiga 35 bíla. » Flytja inn sína eigin ferða- menn. » 25-30 starfsmenn á skrif- stofu sinna skipulagningu og sölu á ferðum til erlendra að- ila. » Fyrirtækið veltir 2,3 millj- örðum króna á ári.  Stærsta ferðaskrifstofa í heimi hefur bókað þúsundir ferðamanna hingað næsta vetur  Mikill áhugi á Íslandi  Hátt verðlag hér á landi hafði áhrif á sölu á Íslandsferðum í fyrra hjá Snæland-Grímsson BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þúsundir breskra ferðamanna hafa nú þegar bókað sig í Íslandsferðir næsta vetur í gegnum bresk-þýsku ferðaskrifstofuna Tui, að sögn Hall- gríms Lárussonar, framkvæmda- stjóra Snæland-Grímssonar, sam- starfsaðila TUi hér á landi. Eins og Hall- grímur útskýrir er sérstaða TUi sem viðskiptavin- ar að í gegnum skrifstofuna koma ferðamenn til Íslands yfir vetrartímann, á fjögurra til fimm mánaða tímabili. Snæland-Gríms- son hefur átt í samstarfi við TUi í fimm til sex ár að sögn Hallgríms, en TUi er stærsti einstaki viðskiptavinur ferðaskrif- stofunnar. Áhugi á norðurljósum „Bretinn hefur mikinn áhuga á Ís- landi á veturna út af norðurljósunum. Það er mjög vinsælt að koma hingað í 3-4 daga, upplifa Gullfoss, Geysi og Bláa lónið. Svo er bónus að sjá norðurljósin,“ segir Hallgrímur í samtali við Morgunblaðið. TUi er stærsta ferðaskrifstofa í heimi og er með sitt eigið leiguflug frá Bretlandi til Íslands. Hallgrímur segist finna sterkt fyr- ir því hjá sínum viðskiptavinum er- lendis að menn eru farnir að sjá til sólar eins og hann orðar það. Mikið er farið að berast af fyrirspurnum frá ferðaskrifstofum erlendis sem verið hafa í viðskiptum við Snæland- Grímsson, að sögn Hallgríms. Hallgrímur Lárusson ● Stjórn fasteignafélagsins Eikar gerir það að tillögu sinni fyrir aðalfund fé- lagsins að ekki verði greiddur út arður vegna fyrra rekstrarárs. Aðalfundur fé- lagsins verður haldinn 10. júní næst- komandi. Í greinargerð stjórnarinnar segir að tillagan sé lögð fram í því skyni að viðhalda eins sterkri eiginfjárstöðu og kostur er á meðan óvissuástand ríkir vegna kórónuveirufaraldursins. Áður hafði stjórnin gefið út að tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 800 milljónir króna yrði lögð fyrir aðalfundinn. Eigið fé Eikar var 32,6 milljarðar króna um nýliðin áramót og eiginfjár- hlutfall 31,7%. Félagið tapaði hins vegar 235 milljónum króna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Stjórn Eikar vill ekki greiða 800 milljóna arð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.