Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 82
1959
80 —
18. Rauðir hundar (rubeolae).
Töflur II, III og IV, 18.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 1442 353 73 448 96
Damr ,, ,, ,, ,, ,,
Eyrarbakka. Nokkur tilfelli snemma
sumars.
19. Skarlatssótt (scarlatina).
Töflur II, III og IV, 19.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 66 158 154 51 92
Dánir „ „ „ „ „
Akranes. Skráð eru 7 tilfelli sumar-
mánuðina, öll væg.
Akureyrar. 6 tilfelli skráð á árinu.
Öll læknuð mjög auðveldlega með
pensilíngjöf og engar sóttvarnarráð-
stafanir gerðar.
Hafnarfj. Varð lítillega vart. Tilfell-
in væg. Engar varnir viðhafðar eða
sótthreinsanir. Antibiotica læknuðu
veikina á fáum dögum. Fylgikvillar
engir.
20. Munnangur
(stomatitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 20.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 357 373 458 519 511
Danir „ ,, „ ,, „
Akranes. Gerir talsvert vart við sig
að venju.
Hvammstanga. Tólf sjúklingar, allir
með stomatitis aphthosa af ókunnum
orsökum. Læknast af sjálfu sér á 1—2
vikum. Virðist stytta sjúkdómsskeiðið
að nota Siogen munntöflur frá Geigy,
5—6 á dag.
21. Kikhósti (tussis convulsiva).
Töflur II, III og IV, 21.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 321 58 7 1 3594
Dánir ,, „ „ „ 2
Skráð tilfelli af kikhósta hafa ekki
orðið jafnmörg síðan 1942, en það ár
eru talin fram 4413 tilfelli. Faraldur-
inn gekk aðallega 5 síðustu mánuði
ársins og náði hámarki í október.
Læknar telja hann yfirleitt hafa verið
vægan.
Rvík. Kikhósti gekk síðara hluta
ársins. í mai og júní voru tilkynnt 2
tilfelli, en ekkert i júli. Eftir það
færðist veikin í vöxt, náði hámarki
í nóvember, dvínaði síðan, og síðustu
tilfellin voru tilkynnt í marz 1960.
Veikin var væg, enda eru ónæmisað-
gerðir gegn kikhósta nú orðnar al-
mennar, en að visu eru engar tðlur
fyrir hendi um árangur af þeim að
þessu sinni.
Akranes. Skráð eru 3 tilfelli i mai,
en svo ekki aftur fyrr en í ágúst, þá
allmikill faraldur, sem nær hámarki
í október, en fjarar út í desember,
yfirleitt vægur. Þó fengu nokkur börn
slæmt sog og fylgikvilla. Talað hefur
verið um, að það hefði góð áhrif á
kikhósta að fljúga með sjúklingana upp
i háloftin. Ein hjón, sem mér er kunn-
ugt um, vildu reyna þetta við barn á
fyrsta ári, sem var allþungt haldið.
Daginn eftir að flogið var, hafði barn-
ið engin sog, en svo komu þau aftur
miklu vægari en áður og fóru svo
smáminnkandi, að þvi er foreldrarnir
sögðu mér.
Patreksfj. Gekk i héraðinu frá því i
ágúst. Árið áður höfðu börn á Patreks-
firði verið sprautuð með D. T. P. P.
bóluefni. í júlí hófst bólusetning með
sama efni í sveitum. Flest börn fengu
samt kikhósta, en mjög vægan. Aðeins
4 tilfelli má kalla slæm.
Flateyrar. Örfá tilfelli seint á árinu.
Súðavíkur. Fáein væg tilfelli af kik-
hósta.
Hólmavíkur. Kikhósti kom í héraðið
um sumarmál, en var vægur, enda
mörg barnanna sprautuð gegn veik-
inni.
Hvammstanga. Allútbreiddur far-
aldur í júlí og náði hámarki i október.
ÖIl tilfelli væg, enda öll börn bólu-
sett.
Blönduós. Barst inn i héraðið i júní,
og var slæðingur af honum út árið,
alls skráð liðlega 100 tilfelli, en hafa
sjálfsagt verið fleiri, þvi að mjög út-
breidd triple-vaccinatio var nýlega um