Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 161
— 159 —
1959
og súlfalyf virðast oft koraa að gagni,
ef gefin eru nógu snemma.
Grenivíkur. Á hverju ári ber nokkuð
á doSa i kúm um burS, eins krónisk-
um doSa, svo og júgurbólgu. Lamba-
blóðsótt hefur engan usla gert siðari
árin, ærnar sprautaðar viS henni tvisv-
ar eða bændur treyst á lyfjagjöf í
lömbin, sem reynzt hefur vel, ef þess
er gætt að gefa hverju lambi, um leið
og það fæðist eða rétt á eftir.
20. Framfarir til almenningsþrifa.
Akranes. í smiðum voru póst- og
simahús, gagnfræðaskóli, tvö fiskverk-
unarhús, 7 verkstæði, 1 oliugeymir, 17
bílageymslur og önnur smáhýsi. Auk
þess voru nokkrar byggingafram-
kvæmdir hjá sementsverksmiðjunni.
Súðavíkur. Byrjað á vatnsveitu. Ný
rækjuverksmiðja á Langeyrinni. GerS-
ar endurbætur á frystihúsinu o. fl.
Hólmavíkur. Reist var stórt slátur-
bús á árinu, sem slátrað var í um
haustið. Byrjað var á bryggjufram-
kvæmdum, en fyrirhugað er að stækka
hafskipabryggjuna og styrkja með stál-
Pili. Keypt var togskip til staðarins
°g Drangsness, en því hafði gengið
iha til áramóta. Vegabætur voru nokkr-
ar og haldið áfram nývegum, einkum
i Bjarnarfirði.
Hvammstanga. Senn er lokið smiði
verzlunarhúss Kaupfélags Vestur-Hún-
yetninga, sem er mikil og fögur bygg-
lng. Endurbætur miklar hafa verið
gerðar á sláturhúsi kaupfélagsins.
Brúasmíði hefur verið mikil á árinu,
°g hafa þessar brýr einkum komið
einum og einum bæ að gagni hver,
nema brú yfir Núpsá, sem er mikil
^amgöngubót fyrir allan Austurárdal.
1 á'vegalagning hefur verið talsverð, og
niun þetta hérað vera eitt bezt vegaða
‘æknishérað landsins.
RJönduós. Framfarir til almennings-
Pnfa hafa orðið allmiklar á árinu. Auk
s ækkunar Qg en(jurjj5ta £ vegakerfi
s>slunnar skal það nefnt, að komið
y.ar a samvinnu um brunavarnir rnilli
, eatra hrcppanna og í sambandi við
h,a.i . bættur að mjög verulegu leyti
0 kviútbúnaður hér á Blönduósi með
nýjum tækjum og fullkomnari en áður.
Haldið var áfram viðbyggingu við
Mjólkurstöðina, svo að hún tvöfaldast
að stærð eða meira, sömuleiðis var
lagður grunnur að mjög stóru félags-
heimili hér á Blönduósi og steypt að
nokkru stórt verkstæði til viðgerða á
landbúnaðarvélum og bilum. Þá var
og hafin allstór viðbygging við Ilótel
Blönduós, og bætir hún að nokkru úr
skorti á viðunanlegu gistirými. Enn
fremur var steypt nýtt kirkjuhús á
Höskuldsstöðum og viðgerð fram-
kvæmd á Bergsstaðakirkju. Hefur fjár-
festing oröið afar mikil í Austur-
Húnavatnssýslu síðustu 15 árin, enda
árferði yfirleitt verið gott, hagur
manna staðið með blóma, kotungshátt-
ur í hugsunarhætti og framleiðslu far-
ið minnkandi og trú á framtíð þessa
góða og fagra héraðs farið vaxandi. Vil
ég ljúka þessari síðustu ársskjrslu
minni með þeirri ósk, að svo megi fara
fram.
Ólafsfj. Vegagerð: Unnið í Múlavegi.
Komizt var alla leið inn í botn Ófæru-
gjár, og reyndist það auðveldara að
flestra dómi en ætlaö var. Leiðin frá
Ólafsfirði til Akureyrar styttist úr 230
km i ca. 65 km, þegar vegur þessi
verður fær. Gamla bryggjan lengd
töluvert með steyptu keri. Sanddælu-
skip hreinsaði mikinn sand úr höfn-
inni.
Þórshafnar. Á árinu var vatnsveita
þorpsins aukin og endurbætt, en
vatnsskortur var orðinn mjög bagaleg-
ur. Brunavarnastöð var reist á árinu og
keypt til hennar nauðsynlegustu
slökkvitæki. Þar eru og til húsa fanga-
klefar tveir, hvar i eru vistaðir
drukknir menn um nætursakir, ef þeir
fara með ófriði.
Nes. Mikið var unnið að fullkomnun
sildarverksmiðjunnar, mjölskemmur
reistar o. fl. Barst verksmiðjunni mjög
mikið magn síldar til vinnslu, en varð
að vísa frá sér mörgum tugum þúsunda
mála sökum skorts á þróarrými, sem
mestmegnis stafaði af því, að tilheyr-
andi yfirvöldum hafði þóknazt að
neita um nauðsynleg fjárfestingarleyfi
og valda þannig milljónatjóni verk-
smiðjunni og öðrum aðilum.
Eskifj. Endurbætur voru gerðar á