Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 119
— 117 —
1959
Höfða. Engin teljandi slys á árinu,
aðeins smávægilegar skrámur.
Ólafsfí. Combustiones 11 (3 vegna
þess að börn kveiktu eld af fikti),
distorsiones 15, contusiones 20, abra-
siones cutis 8, vulnera incisa 27,
dilacerata 9, puncta 6, fract. phalangis
digiti 1, pedis 1, costae 1, colli femoris
1, supramalleolaris 1, luxatio acromio-
clavicularis 2, rupt. tendinis Achillis
1, corpus alienum conjunctivae 9,
corneae 3, digitorum 6, commotio
cerebri 1, morsus canis 1.
Dalvíkur. Allmörg slys, en flest smá.
Akureyrar. Dauðaslys: Hinn 4.
janúar flaug sjúkraflugvélin, sem var
staðsett hér, með þrjá pilta héðan frá
Akureyri til héraðsskólans að Laug-
um í Reykjadal. Veðurútlit var slæmt,
en piltarnir, sem í skólann ætluðu,
lögðu á það mikla áherzlu að komast
austur þennan dag. Flugmaðurinn
hafði flogið eina ferð austur að skólan-
um fyrra hluta sama dags i bezta
veðri og gengið vel að lenda. Mun
hann þvi hafa vonað, að veðrið héld-
ist svipað og var hér á Akureyri, er
hann lagði af stað i flugferðina. Er
austur í Ljósavatnsskarðið kom, var
komið svo dimmt hríðarveður með
norðaustan strekkingi, að ekki var við-
ht að lenda austur við Laugaskóla,
ug sneri þá flugmaðurinn við og ætl-
aði að fljúga til Akureyrar aftur. Er
komið var til baka að bænum Fjósa-
tungu í Fnjóskadal, sást til flugvélar-
mnar frá nefndum bæ, og f.'aug vélin
þar 2 hringi yfir túninu og mun senni-
'ega hafa ætlað að lenda þar, enda
*un það hafa verið tiltölulega auð-
yelt, en rétt í þessum svifum rofaði
nokkuð til, þannig að sæmilega bjart
var upp í svonefnt Bíldsárskarð, sem
hggur þarna skammt ofan Fjósatungu.
hlugmaðurinn mun hafa ætlað sér að
ná til að fljúga gegnum skarðið, með-
nn upprofið héldist, og komast þannig
nieð vél sina og farþega til Akureyr-
nr, en þótt ekki taki nema örfáar mín-
útur að komast þessa leið, skall hríðin
a aftur, áður en vélin komst yfir heið-
ina, og endaði ferðin þannig, að flug-
velin rakst á mel uppi á háheiðinni,
rétt sunnan Bildsárskarðsins, og biðu
allir í henni bana þegar í stað. Flug-
maðurinn hafði samband við flug-
turninn á Akureyri, um leið og lagt
var af stað frá Fjósatungu, og kvaðst
hann þá ætla að fljúga sjónflug til
Akureyrar. Er liðnar voru 10—15
minútur, án þess að vélin kæmi til
Akureyrar né í lienni heyrðist, var
hafizt handa um að undirbúa leit að
henni, þar eð auðsýnt þótti, að eitt-
hvað alvarlegt hefði komið fyrir. Veð-
ur var fremur slæmt, renningur og
dimm hríðarél alltaf annað slagið.
Kringum kl. 8 um kvöldið fannst vél-
in, mölbrotin, og lik allra mannanna,
sem i henni voru. Síðast heyrðist í
flugvélinni kl. 16,01. Dauðaslys varð
með þeim hætti, að tveir menn komu
i stórum trukkbíl að bæ. Er þeir höfðu
lokið erindi sínu, fóru þeir upp í bíl-
inn aftur og héldu af stað. A ók bíln-
um og ætlaði nú að snúa fconum við
með þvi að aka aftur á bak út úr göt-
unni og upp i hól, sem er þarna rétt
ofan við götuna. A sat vinstra megin
í bílnum, og var með höfuðið út um
v. glugga bílhússins til að sjá sem bezt
aftur fyrir bílinn, meðan hann var
að snúa við. Er upp í hólinn kom og
bilnum var nægilega snúið við til að
komast rétt að götunni, sá A, að hurð-
in hægra megin í bilhúsinu hafði
hrokkið upp og B dottið út úr biln-
um og lá úti hreyfingarlaus rétt ofan
við vegarbrúnina. A hljóp þegar út úr
bílnum B til aðstoðar, en B var með-
vitundarlaus, er að var komið, og and-
aðist strax á eftir. A heyrði ekki, er
hurðin opnaðist og B féll út úr biln-
um, enda með höfuðið út um glugga
hinnar hliðar bílhússins og mikill
hávaði frá vélinni. Ekki voru sýnilegir
áverkar á líkinu, en við krufningu
kom í ljós, að bæði lungu og lifur voru
rifin sundur og brotin 3 rif hvorum
megin, en öll rifin voru þó í eðlilegri
stellingu. Slysið mun því hafa orðið
með þeim hætti, að B hefur dottið út
um hurðina, sem opnaðist, t>g lent und-
ir hægra framhjóli hins þunga bíls
og hjólið farið yfir brjóstkassa manns-
ins neðanverðan með ofangreindum
afleiðingum. Báðir mennirnir voru
ölvaðir. 6 ára stúlka lenti með föt sín
í öxli, er lá milli dráttarvélar og sláttu-
vélar, er dráttarvélin dró, og slasaðist