Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 180
1959
— 178
Tafla 1.
Ar Iirabbam. alls Krabbam. í brjósti Aths.
1891 11 *6 *2 þeirra nefnd tumor mammae
1892 10 2
1893 12 2
1894 15 0
1895 16 3
1896 14 1
1897 *25 3 *8 þeirra dóu á árinu.
1898 *19 2 *8 þeirra dóu á árinu.
1899 27 2
1900 22 4
1901 28 8
1902 38 10
1903 34 6
1904 32 4
1905 Ekki getið Ekki getið
1906 * 5 0 ‘Aðeins úr 1 héraði.
1907 Ekki getið Ekki getið
1908 Ekki getið Ekki getið
1909 46 Ekki getið
1910 64 Ekki getið
Alls 418 53
Athugasemdir lækna í skýrslunum
þessi ár, er einkum varða brjóstkrabba,
eru á þessa leið:
Árið 1891. 1. Læknishérað (Reykja-
víkurkaupstaður og nágrenni, héraðs-
læknir Jónas Jónassen): „Annað til-
fellið var um konu hér í bænum
(cancer en cuirasse). Hafði hún haft
meinið í mörg ár og dó af því. Hilt
tilfellið á miðaldra stúlku, er vildi
ekki láta eiga við það og fór heim“.
4. Læknishérað. (Læknissetur í
Stykkishólmi, læknir Hjörtur Jóns-
son). „Cancer mammae 1 tilfelli —
mors“.
15. Læknishérað. (Læknissetur á
Eskifirði, læknir Fritz Zeuthen).
„Tumor mammae 2“.
Árið 1892 segir Páll Blöndal, héraðs-
læknir í 3. læknishéraði (Borgarfjarð-
ar- og Mýrasýsla): „Ein kona dó úr
tumor mammae. Brjóstið annað á
henni hafði sumarið 1890 verið skorið
af i Reykjavík sakir meinsemdar í
því, en tók sig upp aftur“.
í 7. Aukalæknishéraði (sunnanvert
Snæfellsnes, vestan Straumfjarðarár)
telur Gísli læknir Pétursson 1 sjúkling
með cancer mammae þetta ár.
Árið 1893 minnast læknar í tveim
héruðum á brjóstkrabba, einn sjúkling'
hvor. (Ásgeir Blöndal, Suður-Þing-
eyjarsýslu, og Ólafur Guðmundsson,
Rangárvallasýslu).
í ársskýrslum árið 1895 segir svo:
„Sjúkdómurinn vekur litla athygli
lækna, því að þeir hafa ekkert uni
hann að segja. Varla er að efa, að þetta
framtal muni vera æði ófullkomið.
í 2. læknishéraði (Þórður Thorodd-
sen) er getið eins sjúklings og í 17.
læknishéraði (Vestur-Skaftafellssýslu)
getur Bjarni læknir Jensson um eina
konu með brjóstkrabba. Enn fremur
er getið um, að einn sjúklingur með
þann sjúkdóm hafi legið á sjúkra-
húsi Akureyrar, en ekki minnzt á að-
gerð á honum.
Árið 1896 getur Þórður Thorodd-
sen um, að hann hafi fundið 4 sjúk-
linga með krabbamein á árinu í sinu
héraði, þar af eina konu með krabba
í hægra brjósti. Finnst honum krabba-
mein fara mjög ört vaxandi í hérað-
inu. Telur hann upp þau tilfelli, sem
hann hafi séð undanfarin ár, eða 18
talsins árin 1891—1896, en engin árin
1883—1890.