Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 140
1959
— 138
i notkun á nokkrum stöðum úrelt gerð
séríláta.
í tveim lyfjabúðum gaf ófullnægj-
andi búnaður vegna ílátahreinsunar
tilefni til athugasemda. Á nokkrum
stöðum er lágmarkskröfum um búnað
ekki enn fullnægt.
Rannsóknir á lyfjum o. fl. Lyfja-
rannsóknir voru eins og undanfarið
ýmist framkvæmdar á staðnum eða þá
að sýnishorn voru tekin og farið með
þau til athugunar, en þá var jafnframt
skilið eftir í vörzlu lyfsala innsiglað
sýnishorn sams konar og það, sem tek-
ið var til rannsóknar.
1. Skammtar. Rannsakaðar voru 82
tegundir skammta. Reyndist þungi 78
þeirra vera innan óátalinna þunga-
frávika lyfjaskrár, en þungi 4 (4,9%)
utan. (1958: 57 innan og 9 utan, eða
13,6%.)
2. Limbelgir. Gerð var athugun á
8 tegundum heimagerðra límhylkja.
Reyndust 7 þeirra vera innan óátal-
inna frávika lyfjaskrár, en þungi eins
(12,5%) utan.
3. Eðlisþyngdarmælingar. Mæld
var eðlisþyngd 317 lausna. Reyndist
eðlisþyngd 30 (9,5%) þeirra víkja um
skör fram hjá réttu marki. (1958: 29
af 262 eða 11,1%.)
4. Önnur heimagerð lyf. Virk efni
voru ákvörðuð i 71 heimagerðu lyfi.
Reyndist innihald 20 (28,2%) lyfja
þessara vera utan tíðkanlegra óátal-
inna frávika lyfjaskrár. (1958: 15 utan
af 42, eða 35,7%.)
Þau lyf, er oftast reyndust utan
marka, voru súrvatn (8 sýnishorn af
9, eða 77,8%) og askorbinsýrusaft (8
sýnishorn af 21, eða 38,1%).
5. Gerlarannsóknir. Sæfingarpróf
var framkvæmt á 6 tegundum heima-
gerðra augndropa, 14 hreinsuðum tóm-
um augndropaglösum, 21 hreinsuðu
lyfjaglasi og 2 heimagerðum stungu-
lyfjum. Gerlagróður fannst enginn,
hvorki í augndropunum né stungulyfj-
unum. Hins vegar fundust gerlar i 3
(21,4%) augndropaglösum (1958: gerl-
ar í 4 af 11, eða 36,4%) og 7 (33,3%)
lyfjaglösum. (1958: gerlar i 2 af 2, eða
100%.)
6. Síðastliðið ár gaf ófullnægjandi
eftirlit lyfjabúðanna með lyfjum, er
fyrnast eða ganga úr sér við geymslu,
víða tilefni til athugasemda. Varð þetta
til þess, að landlæknir ritaði öllum
lyfsölum bréf 16. júní 1959, þar sem
lagt var fyrir, að hert skuli á eftirliti
þessu og með hverjum hætti. Skyldu
lyf þessi m. a. skráð i sérstaka bólc,
framleiðslu- og fyrningardags getið og
jafnaðarlega með þvi fylgzt að farga
lyfjum þessum, um leið og þau fyrnast.
Varð þetta til þess, að aðhald í þess-
um efnum jókst stórlega i lyfjabúðun-
um, og er ávallt að færast i betra horf,
frá því sem var.
7. Nokkur brögð hafa verið að þvi í
lyfjabúðunum, að farizt hafi fyrir að
gera gildandi lyfjaskrá svo úr garði,
að treysta megi bókinni, þ. e. að
fella í hana breytingar, viðauka og
leiðréttingar, jafnóðum og birt er —
og var því sérstaklega um það athug-
að á árinu, hversu ástatt væri i þess-
um efnum, en aðgæzluleysi hér að lút-
andi leiddi til misferlis i tveim lyfja-
búðum á árinu.
Leiddi athugun þessi í ljós, að í að-
eins sex lyfjabúðum voru lyfjaskrár
gerðar úr garði á viðunandi hátt.
Þessu var hins vegar kippt i lag víð-
ast hvar fyrir skoðun næsta ár á eftir.
8. Vogarlóð voru athuguð í nokkr-
um lyfjabúðum, og í tveim voru sam-
tals 25 vogarlóð tekin úr umferð, þar
eð þau stóðust ekki próf, sbr. tilskipun
nr. 1 13. marz 1925.
Bækur og færsla þeirra: Stöðugt er
betur vandað til færslu fyrirskipaðra
bóka, sbr. 6. gr. augl. nr. 197 19. sept.
1950, um búnað og rekstur lyfjabúða,
og vaxandi skilningur á þeirri nauð-
syn að vanda hér til verka.
í einni lyfjabúð (hinni sömu og árið
áður) gaf m. a. vanræksla í þessum
efnum tilefni til mjög alvarlegra
áminninga, en í lyfjabúð þessari hefur
gætt óvenjulegrar óreiðu um margra
ára skeið, enda var lyfsala þessum
gerður sá úrslitakostur að undangeng-
inni skoðun lyfjabúðarinnar, að hann
gæti vænzt þess að missa leyfið, ef
ekki yrði tafarlaust gagngerð breyt-
ing til bóta á rekstri lyfjabúðarinnar.
Fer hér á eftir nokkurt yfirlit um
færslur bóka þessara.
Vörukaupabækur (spjaldskrár) voru