Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 160
1959
— 158
(thrombus) í aðalgrein kransæðar og
mun hafa valdið skyndilegum dauða
mannsins. Hinn 30. ágúst fannst kona
látin í rúmi sínu, og var grunur um, að
henni hefði verið styttur aldur. í sam-
ráði við landlækni og lögreglustjóra
var likið sent til krufningar á Rann-
sóknarstofu Háskólans. Reyndist hafa
verið um kyrkingu að ræða. Sá, er
verknaðinn framdi, var drukkinn.
Akureyrar. Hinn 4. janúar 1959 fórst
sjúkraflugvél og í henni 4 ungir menn
á Vaðlaheiði, rétt sunnan svo nefnds
Bíldsárskarðs. 3 mannanna voru rétt
við flak flugvélarinnar, en hinn 4. ca.
190 metra frá flakinu. Mennirnir voru
þessir: Karl, f. 27. sept. ’27. Höfuð
og háls liksins mjög aflagað og höfuð-
kúpan mölbrotin, einkum að framan-
verðu. Hægri handleggur brotinn og
mörg sár á handarbaki og fingrum h.
handar. H. lærleggur brotinn og fleiri
minna háttar áverkar annars staðar á
líkinu. Dánarorsök laesio interna
traumatica. Karl, f. 8. júní ’43. And-
lit iíksins var nokkuð skaddað, ca.
3 cm langur skurður á vinstra gagn-
auga rétt við hársrætur. Allmikil dæld
í vinstri augabrún og niður vangann,
er líklega stafar af höggi, en gæti þó
að einhverju leyti hafa myndazt við
það, að líkið hefði legið á einhverjum
hörðum kanti og frosið þannig til. Þó
virtist greinilega dæld í beinið á auga-
brúninni, en brot fannst þó ekki þar
utan frá skoðað. Mar og hrufl voru á
v. augabrún og vinstra vanga. Hægri
handleggur brotinn rétt ofan úlnliðs
og rifið upp i hægri þumalgreip all-
langt upp i vöðvana, en engin bein þar
brotin. Dánarorsök: Laesio interna
traumatica. Karl, f. 29. janúar ’38.
Hefur sýnilega fengið mikið höfuð-
högg, stórt sár framan á nefi og nef-
beinið brotið. Blóðugur vökvi rann úr
hægri hlust og benti til brots á höfuð-
kúpubotni. Smásár á hægri kinn og
marblettir og víða um enni og gagn-
augu. Báðir lærleggir brotnir og hægri
fótur mikið skaddaður, sár neðan og
framan við innöklann og niður í ilina
og liðhlaup og brot á ristarbeinum.
Dánarorsök: Laesio interna trauma-
tica. Karl, f. 26. sept. ’42. Mjög lítið
sást á líkinu, sem var mikið frosið,
einkum um höfuð og háls. Allstórt
blóðhlaup (haematom) undir húð á
enni. Skorið var í gegnum blóðhlaup-
ið inn að beini, en ekki sáust beinbrot
þarna. Lítilfjörlegt mar á neðri vör,
en i munni voru 3 framtennur og
vinstri augntönn brotnar, ásamt þynnu
úr kjálkanum að utan og tungan tætt
í sundur að framan. Hægri miðfram-
tönn að ofan hafði einnig brotnað rétt
við tannholdið. Litils háttar skrapsár
voru á nokkrum hnúum vinstri hand-
ar. Allir útlimir voru að sjá heilir og
af þeim áverkum, sem á líkinu sáust,
verður dánarorsök ekki ákveðin. —
Drengur, f. 18. nóvember ’53. Lenti
með fótinn i öxli milli dráttarvélar
og sláttuvélar og fékk mikla áverka
víða á líkamanum, meðal annars
fractura cranii, sem mun hafa verið
dánarorsökin. Karl, f. 7. júní ’12.
Datt úr þungri vörubifreið, sem
verið var að aka aftur á bak upp
hól og lenti undir öðru framhjóli bif-
reiðarinnar með þeim afleiðingum, að
hann fékk brotin 3 rif hvorum megin
og voru bæði lifur og lungu rifin af
þeim þrýstingi, sem þungi bifreiðar-
innar olli á brjóstkassa hins látna.
Bæði hinn látni og bilstjórinn voru
undir áhrifum áfengis. Dánarorsök:
Laesio interna traumatica. Karl, f.
1. apríl ’37. Framdi sjálfsmorð með
því að skjóta riffilkúlu gegnum hjart-
að. Dánarorsök: Vulnera sclopetaria.
Karl, f. 16. apríl ’78. Stóð á bryggju
á Dalvík, er bíll bakkaði á hann með
þeim afleiðingum, að hann datt ofan
í bát, er þarna var við bryggjuna.
Kom standandi niður og virtist ekki
hafa neitt meitt sig, gekk heim, en
fór að verða eitthvað slappur, er heim
kom, og var þvi fluttur í Sjúkrahús
Akureyrar, þar sem hann dó 2 dög-
um eftir slysið. Við krufningu fannst
ekki merki um heilablæðingu eða ann-
að, er benti til dánarorsakar.
19. Húsdýrasjúkdómar.
Djúpavíkur. Allmikið ber á doða i
kúm, og drepur hann nokkrar, þrátt
fyrir kalkinnspýtingar, sem tiðkast
mjög. Eitthvað hefur borið á svo kall-
aðri „súrheyseitrun“ í sauðfé. Pensilín