Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 85
— 83
1959
Selfoss. Náði nokkurri útbreiðslu í
janúar, febrúar og marz.
Hafnarfj. Stakk sér niður fyrra hluta
árs.
23. Heimakoma (erysipelas).
Töflur II, III og IV, 23.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 13 22 23 23 17
Dánir „ „ „ 1
Hafnarfj. 1 tilfelli á skrá, en hafa
vafalaust verið fleiri. Ekki óalgengt,
að fólk, sem vinnur i frystihúsum, fái
hana út frá beinstungum á höndum.
Hvammstanga. 2 tilfelli í janúar.
Vafalitið var samband milli þeirra og
hlaupabólunnar í ársbyrjun.
Ólafsfj. Einn sjúklingur skráður í
marz.
Seyðisfj. Þessi kvilli gerir ósjaldan
vart við sig. Farizt hefur fyrir að skrá
3 sjúklinga.
Kirkjubæjar. 2 tilfelli voru skráð á
árinu, og leit annað illa út, en snar-
batnaði við chloramphenicolgjöf.
Vestmannaeyja. Aðeins 2 tilfelii
skráð. Var annað tilfellið í húsi, þar
sem áður hafði gengið hlaupabóla.
Hafnarfj. Nokkur tilfelli.
24. Þrimlasótt
(erythema nodosum).
Töflur II, III og IV, 24.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. „12 12
Dánir
Aðeins skráð í einu héraði (Rvík).
25. Gulusótt (hepatitis infectiosa).
Töflur II, III og IV, 25.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 6 7 7 11 5
Þánir „ 1 „ „ 1
Álafoss. 3 tilfelli á farsóttaskrá.
Veiki þessi mun hafa borizt sunnan
frá Túnis með stúdent frá Varmalandi.
Hann veiktist í Reykjavík og var lagð-
ur i sjúkrahús, en svo kemur veikin
upp á Varmalandi, löngu eftir að hann
er farinn af sjúkrahúsinu. Ég vissi
ekki um veikindi hans, fyrr en veikin
kemur upp á heimili hans og á næsta
bæ. Sjúklingarnir voru strax fluttir á
sjúkrahús.
26. Ristill (herpes zoster).
Töflur II, III og IV, 26.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 73 71 62 69 112
Dánir
»> »» »» »» »»
Flateyrar. 1 slæmt tilfelli, sem ekki
var skráð.
27. Kossageit
(impetigo contagiosa).
Töflur II, III og IV, 27.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 65 51 41 20 22
Dánir ,, „ „ ,, „
28. Taugaveikisbróðir
(paratyphus).
Töflur II, III og IV, 28.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 11 „ „ „ „
Danir ,, ,, ,, ,, ,,
Ekki á skrá og hvergi getið.
29. Aðrar farsóttir
(alii morbi epidemici).
Adeno-virus-infectio:
Rvík. 109 tilfelli: 0—1 árs: m 1, k
6; 1—5 ára: m 15, k 14; 5—10 ára
m 12, lc 15; 10—15 ára: m 13, k 9
15—20 ára: m 7, k 2; 20—30 ára
m 4, k 3; 30—40 ára: m 1, k 3
40—60 ára: m 2, k 2. Mánuðina ágúst
til desember bar hér nokkuð á um-
gangsveiki, sem greind var sem veiru-
sjúkdómur, af sumum læknum sem
adenovirusinfektion. Vegna fráfalls dr.
Björns Sigurðssonar að Keldum var
ekki unnt að fá ræktað frá þessum
sjúklingum. Veikin hagaði sér líkt og
mænuveiki að öðru leyti en því, að
engar lamanir komu fram.