Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 153
— 151
1959
kom vel út, og óhöpp komu ekki fyr-
ir. Bólusett var gegn barnaveiki, kik-
hósta og stífkrampa. NotaS var triim-
munol og triple-vaccine. Eftirspurn
eftir mænuveikibólusetningu var sára-
litil. Meinsvörunar varð ekki vart við
þessar ónæmisaðgerðir.
Keflavíkur. Kúabólusetning og ó-
næmisaðgerðir gegn kikhósta, tetanus
og lömunarveiki fóru fram.
Kópavogs. Héraðslæknir bólusetti
þá fáu, sem til hans leituðu, en mest-
ur hluti alls eftirlits, bæði með ung-
börnum, einltum eftir 6 mánaða aldur
(hjúkrunarkonurnar líta eftir ung-
börnum á heimilunum til 6 mánaða
aldurs), þunguðum konum o. s. frv.,
fór fram á Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur, þá einnig ónæmisaðgerðir.
Fullorðna fólkið mjög sinnulítið um
mænusóttarbólusctninguna. Hinn 14.
desember boðaði stjórn H. R. bæjar-
stjóra (hreppsnefndaroddvita) og
béraðslækna nágrannahéraðanna, Ála-
foss, Hafnarfjarðar, Keflavíkur og
Kópavogs á fund í húsakynnum sínum
í Reykjavík. Á fundi þessum var til-
kynnt, að H. R. sæi sér ekki fært að
annast öllu lengur þá þjónustu um
ungbarnaeftirlit o. fl. fyrir utanbæjar-
fólk, sem hún hafði haft með höndum
um sinn, nema því aðeins að full
greiðsla kæmi fyrir, og þó tæpiega.
Lýsti þá bæjarstjóri Kópavogs því yfir,
að þess mundi freistað að taka þá
starfsemi upp i Kópavogi hið fyrsta
°g skyldi taka til framhaldseftirlits
ungbarna, eftir 6 mánaða aldur, ásamt
ónæmisaðgerðum og eftirliti með
þunguðum konuin, þrátt fyrir algeran
skort á húsnæði og öðrum skilyrðum.
18. Mannskaðarannsóknir og önnur
réttarlæknisstörf.
Frá Rannsóknarstofu Háskólans
hefur borizt eftirfarandi skýrsla um
rettarkrufningar, sem þar voru fram-
kvæmdar á árinu 1959:
1- 8. jan. Óskirt meybarn, 8 mánaða
gamalt. Hafði verið óvært síðustu
daga, en hitalaust morguninn, sem
það dó. Fékk hita upp úr hádeg-
inu, sem hækkaði ört, og það lézt
á leiðinni í sjúkrahús kl. rúmlega
22.00 sama kvöld. Álylrtun: Mikil
blæðing fannst í báðum nýrna-
hettum og greinileg lungnabólga
í báðum lungum (Waterhouse-
Friderichsen syndrom).
2. 12. jan. Kona, 55 ára. Hafði átt
erfitt með svefn. Veiktist skyndi-
lega að morgni og var flutt í
spítala. Lysollykt lagði frá vitum
hennar. Þegar leitað var á heimili
konunnar, fannst þar í ruslafötu
vatnsglas með lysolþef, enn frem-
ur 100 g glas undan lysoli, tómt,
og annað sams konar glas, einnig
í fötunni. í maganum fannst mik-
ið af dökkum, gruggugum vökva,
sem megna lysollykt lagði af.
Froða, sem líktist sápufroðu, varð
eftir á slimhúðinni, þegar mag-
inn var tæmdur. Magaslímhúðin
var hörð og börkuð og allur
magaveggurinn harður sem leð-
ur, og eins var þindin yfir fundus
magans. Ályktun: Phenol-eitrun,
sennilega af kresolsápulegi eða
lysol.
3. 2~2. janúar. Karl, 32 ára verzlun-
armaður. Féll fram af tröppum á
steinsteyptan pall við hús í Rvik,
þar sem hann var gestkomandi.
Var meðvitundarlaus, er að var
komið. Ályktun: Við krufninguna
fannst mikið brot á höfuðkúpu
og kúpubotni og mikið mar á
heila.
4. 24. janúar. Kona, 48 ára. Hvarf
að heiman, og fannst lík hennar
tveim dögum seinna sitjandi í
skoti undir beru lofti. Hafði ver-
ið þunglynd og átt erfitt um
svefn. Ályktun: Við krufninguna
fannst enginn sjúkdómur og eng-
in áverkamerki, en svörun fyrir
svefnlyfjum (barbiturefni) í þvagi.
Sennilegast, að konan hafi tekið
svefnlyf, sofnað úti og króknað.
5. 31. janúar. Óskirt meybarn,
tveggja mánaða. Snemma morguns
virtist barnið ekki eins frisklegt
og vanalega, og um hádegi var
það látið. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst bráð lungnabólga
báðum megin. Við ræktun fund-
ust streptokokkar og B. coli.