Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Blaðsíða 120
1959
— 118 —
svo alvarlega, að hún lézt af sárum sín-
um, rétt á eftir að hún kom í Sjúkra-
hús Akureyrar. Meðal margra annarra
áverka, er hún hafði hlotið, var
fractura cranii, og mun það hafa verið
dánarorsökin. 81 árs karlmaður stóð
á bryggju á Dalvik, er bil! bakkaði
á hann með þeim afleiðingum, að hann
datt ofan í bát, er við bryggjuna lá.
Kom hann standandi niðui í bátinn
og virtist vera lítið sem ekkert meidd-
ur, gekk heim eftir slysið, en fór að
verða miður sín, fljótt eftir að heim
kom. Var fluttur í sjúkrahús Akur-
eyrar, þar sem hann lézt 2 dögum eft-
ir slysið. Við krufningu á líkinu
fannst ekkert sjúklegt, er upplýst gæti
dánarorsökina. 24 ára karlmaður lézt
í Þýzkalandi af brunasárum. 10 ára
drengur var að klifra í kiettum, er
steinn losnaði undan fótum hans,
þannig að bæði drengurinn og steinn-
inn hröpuðu niður, og var þetta all-
hátt fall. Svo óheppilega vildi til, að
steinninn lenti ofan á vinstra læri
drengsins, er niður kom, og braut lær-
legginn sundur. 31 árs karímaður var
að vinna við línustaur, er staurinn féll
um koll og lenti í fallinu á böfði hins
slasaða. Slasaði fékk bæði heilahrist-
ing og höfuðkúpubrot. 19 ára karlmað-
ur var fluttur ofurölvi á Sjúkrahús
Akureyrar vegna gruns um, að hann
hefði drukkið sterka sýru. Þetta
reyndist þó ekki vera, en í átökum,
er hann lenti i við starfslið sjúkra-
hússins, hlaut hann fract. ossis meta-
carpi V. manus dx. 59 ára karlmaður
féll af heyvagni ca. 3 metta hæð og
hryggbrotnaði. 7 ára drengur datt í
knattspyrnu, en var svo óheppinn, að
13 ára leikbróðir hans sté um leið ofan
á annan fótlegg hans með þeim afleið-
ingum, að fótleggurinn brotnaði. 35
ára karlmaður var að draga hey i
hlöðu, er vírarnir festust eitthvað. Er
slasaði var að losa vírana, lenti hann
á milli þeirra og hlöðuveggjarins með
þeim afleiðingum, að vírarnir skárust
inn í lófa hægri handar og skáru í
sundur sinar 3 fingra. 30 ára karlmað-
ur lenti í steypuvél, er hann var að
vinna við, og hlaut vulnus dilaceratum
digit. III manus og luxatio complicata
articuli metacarpophalangei digitorum
II—V manus. 46 ára karlmaður féll
niður af 2 metra vinnupalli, er hann
var að vinna á, og hlaut fract. com-
plicata tali. 6 ára stúlka var að leika
sér með öðrum börnum uppi á skúr-
þaki, en féll niður af þvi og hlaut
fract. tibiae. 58 ára kona datt i stiga
heima hjá sér og hlaut fract. columnae.
31 árs karlmaður fékk ruptura menisci
lateralis genus við það að beygja sig
djúpt i knjáliðum. 58 ára karlmaður
var á hestbaki, og hesturinn féll með
hann, þannig að vinstra læri hans
varð undir hestinum og brotnaði. 18
ára togarasjómaður varð fyrir höggi
úti á sjó og hlaut fract. antebrachii.
1 árs drengur hlaut 1. og 2. stigs bruna
framan á brjósti og upp á háls og
hægri öxl við það, að vatn skvettist
framan á hann. 11 ára drengur var í
leikfimi, er einn af félögum hans tók
í framhandlegg hans og ætlaði að
sveifla honum fram fyrir sig. Slasaði
hlaut við þetta fract. humeri sin. 26
ára karlmaður fékk smáglerbrot i auga,
er rúða var brotin í dansskála, er hann
var staddur í, og hlaut perforatio bulbi.
81 árs kona datt fram úr rúmi sinu
og kom svo illa niður á vinstri siðu,
að hún hlaut fract. costae. 28 ára karl-
maður var að vinna við bíl sinn á
bílaverkstæði. Þurfti hann að hreyfa
bílinn eitthvað og setti hann i gang,
þannig að framhurðin var opin og
maðurinn með annan fótinn inni í
bílnum, en hinn utan við. Er hann
steig á benzíngjöfina, rann bíllinn aft-
ur á bak út um dyr verkstæðisins, en
maðurinn klemmdist á milli bilhurð-
arinnar og dyrastafs verkstæðisins,
þannig að hann hlaut fract. colli
femoris. 11 ára stúlka datt á hálku og
hlaut fract. tibiae. 86 ára kona datt
á tröppum heima hjá sér og hlaut
fract. colli femoris. 57 ára kona var
að fara niður stiga, er hún steig á
pilsfald sinn og datt niður stigann
með þeim afleiðingum, að hún hlaut
commotio cerebri og vulnus contusum
capitis. 67 ára kona datt á hálku og
hlaut fract. columnae. 6 ára drengur
datt ofan af dráttarvél og hlaut fract.
femoris. 12 ára stúlka hlaut luxatio
acromio-clavicularis. 67 ára kona datt
á götu vegna hálku og hlaut fract.