Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Síða 94
1962
92
Kópaskers. Bárust hingað í júlí. Haldin var skemmtun í Ásbyrgi, og
var þar fjöldi fólks samankominn. Breiddist veikin því fljótlega út og
lagðist þungt á fullorðna, en allmargt eldra fólk í Kelduhverfi hafði
ekki áður fengið mislinga. Reynt var að gefa mótefni (gamma-globulin),
sem reyndist vel í flestum tilfellum. Þrír létust úr veikinni. Um haustið
var byrjað að bólusetja gegn mislingum. Fengið var bóluefni frá Keldum.
Raufarhafnar. Bárust hingað í ágústmánuði. Flest tilfelli voru í lok
september, og var skóla frestað af þeim sökum í vikutíma. Ég gaf
nokkrum veikluðum börnum gamma-globulin, og reyndist það vel.
Þórshafnar. Bárust í héraðið í ágúst eftir skemmtun í Ásbyrgi. Fólk
í sveitum reynir að verjast, og er það að vonum, því að liðfátt er í
sveitum, svo að fólk má sízt við því að veikjast um hábjargræðistímann.
Norður-Egilsstaða. Komu á nokkra bæi í Fljótsdal, en lögðust ekki
þungt á. Gaf allmörgum blóðvatn með ágætum árangri, en í Fljótsdal
er enn þá margt fullorðið fólk, sem á eftir að fá mislinga.
Eskifj. Faraldur byrjaði í ágústmánuði. Náði hámarki í nóvember, en
úr því smádvínandi. Engir alvarlegir fylgikvillar, enda gaf ég flestum,
sem voru veikir fyrir, gamma-globulin. Reyndist það mjög árangurs-
ríkt til þess að draga úr veikinni.
Víkur. Bárust í Skógaskóla í októberlok. Tóku þar í einu vetfangi
rúmlega 20 nemendur og jaðraði við neyðarástand þar um tíma sakir
þrengsla. Fimm fengu bronchopneumonia og tveir otitis upp úr misling-
um, en öllum batnaði vel.
Vestmannaeyja. Einstaka tilfelli af mislingum eru skráð sumarmánuð-
ina, en verulegur faraldur brýzt ekki út fyrr en í október, nær hámarki
í nóvember og fer svo dvínandi.
Hellu. Fremur væg'ur faraldur í desembermánuði.
Eyrarbakka. Allmörg tilfelli síðari helming árs.
Keflavíkur. Fyrstu tilfellin skráð í ágúst, og fór tilfellum fjölgandi, er
leið á árið.
17. Akureyrarveiki (morbus Akureyrensis).
Töflur II, III og IV, 17.
1962
Sjúkl.................................. „
Dánir ................................. „
Rétt þótti að taka svonefnda Akureyrarveiki inn á nýtt farsóttaskýrslu-
eyðublað. Af þessari veiki gekk mikill og' eftirminnilegur faraldur vetur-
inn 1948—1949. Var hann einna magnaðastur á Akureyri, en einnig
urðu allmikil brögð að honum í sumum öðrum landshlutum, einkum
á Vestfjörðum. Veikin var í fyrstu álitin mænusótt, en að mörgu leyti
hagaði hún sér ólíkt því, sem læknar áttu að venjast um þá veiki. Sams
konar faraldur er ótvírætt talinn hafa verið á ferð árin 1955 og 1956,
og urðu þá einkum brögð að honum á Patreksfirði og Þórshöfn. Síðan