Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 99
— 97
1962
höfðu neytt í veizlu. í leifum af kjötinu fannst staphylococcus aureus.
Sennileg ástæða er inengun frá fingurmeini, er starfsmaður, sem fékkst
við að „útbeina" kjötið, gekk með. Allir sjúklingarnir náðu sér að fullu,
en sumir voru lengi að ná sér. í desember veiktust a. m. lc. 16 manns
eftir að hafa borðað kæfu, en í henni fannst einnig staphylococcus
aureus. Ekki er vitað, hvernig sýkillinn komst í kæl'una. Sjúklingunum
batnaði.
Meningismus:
Reykhóla. 5—9 ára: m 1.
Roseola infantum:
Rvik. 0—1 ára: m 8, k 7.
Salmonellosis typhi murium:
Rvík. I júní og júlí gekk í Reykjavík faraldur af salmonellosis typhi
murium. Fyrstu 2 sjúklingarnir (ekki á farsóttaskrá) veiktust snemma
í maí, en aðalfaraldurinn hófst í júní. Voru tilfelli strjál fyrstu vikurnar,
dreifð víðs vegar um boi’gina og án sjáanlegs sambands sín á milli. Hinn
12. júlí veiktust í einu 20 manns, er höfðu setið veizlu. Höfðu þeir allir
neytt majonnesu frá matvælaverzlun í borginni, og var sala henn-
nr þá stöðvuð. Mátti alls rekja sýkingu 150 manns til majonnesu frá
þessu fyrirtæki. Umfangsmikilli leit var haldið uppi allan tímann að
orsökum faraldursins, og fundust loks, hinn 31. júli, salm. typhi murium
í nýkiöktum andarungum í andabúi, er eigandinn að verzluninni rak
í nágrenni Reykjavíkur. Höfðu andaregg verið notuð í majonnesu á þessu
tímabili. Andabúið var lagt niður þegar eftir fund sýklanna. Að sögn
borgarlæknis leiddi það rannsakendur á villigötur og tafði mjög rann-
sóknina, að umrætt fyrirtæki gaf í fyrstu rangar upplýsingar. í fyrsta
lagi var því neitað, að veikindi hefðu gert vart við sig meðal starfsfólks
fyrirtækisins, en 26. júní frétti heilbrigðiseftirlitið á skotspónum, að
allmikil veikindi hefðu verið á starfsfólkinu að undanförnu, og um sama
leyti skýrði eigandinn borgarlækni frá því, að fyrrnefndar upplýsingar
hefðu verið rangar. Við rannsókn þá reyndust 5 starfsmenn Widal-
jákvæðir. Þá skýrði verzlunarstjórinn svo frá, að engin andaregg hefðu
komið í fyrirtækið í 3 mánuði, en samkvæmt afgreiðslubókum anda-
búsins höfðu þau verið send þangað þrívegis á timabilinu frá 22. maí
til 13. júlí. Þá tafðist rannsóknin einnig „til stórbaga“ vegna þrengsla
og mannfæðar á Rannsóknarstofu háskólans. Rannsökuð voru alls 630
sýnishorn af matvælum og 1300 sýnishorn af blóði og saur frá sjúkl-
ingum.
Sjúkdómstilfellin í nágrannahéruðum Reykjavíkur voru rakin til sömu
uppsprettu, en um hin fáu tilfelli úti á landi eru engar upplýsingar frá
héraðslæknum. Veikin varð engum að bana, en sumir urðu mjög veilcir,
og margir voru lengi að ná sér. Útbreiðslu veikinnar má sjá á með-
fylgjandi töflu.
13