Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 101
— 99 —
1962
Skýrslur um berklapróf hafa borizt úr öllum héruðum nema Ólafs-
víkur, Flateyjar, Bíldudals, Súðavíkur, Hólmavíkur, Blönduós, Nes,
Kirkjubæjar og Hveragerðis. 1 yfirliti því, sem hér fer á eftir, er greint
frá berklaprófum á 29877 manns. Skiptist sá hópur eftir aldri og út-
komu sem hér segir:
0— 7 óra: 352, þar af jákvæðir 8 eða 2,3%
7—13 —: 20132, — — — 551 — 2,7%
13—20 — : 9393, — — — 374 — 4,0%
Niðurstöðum berklaprófa á fólki eldra en 20 ára er sleppt, þar sem
um er að ræða svo fámennan og sundurleitan hóp, að af prófunum yrði
engin ályktun dregin, og má segja hið sama um niðurstöður prófa í
þeim hópi undanfarin ár, þó að birtar hafi verið fram til þessa.
Skýrsla berklayfirlæknis.
Árið 1962 voru framlcvæmdar berklarannsóknir (aðallega röntgen-
rannsóknir) í 26 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 18265 manns, á
6 heilsuverndarstöðvum 17143, aðallega úr 8 læknishéruðum (berkla-
rannsóknir í Hafnarfirði og' Kópavogi eru stöðugt framkvæmdar af
Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík), en með ferðaröntgentækjum 1122
menn, aðallega úr 18 læknishéruðum. Fjöldi rannsókna er hins vegar
nokkru meiri, þar sem margir komu oftar en einu sinni til rannsóknar,
einkum á stöðvarnar. Námu þær alls 21278. Engin heildarrannsókn í
héruðunum fór fram á þessu ári. Á Eyrarbakka voru rannsakaðir 301
maður í sambandi við berklasjúkling', er þar fannst. Þá fór og fram
berklarannsókn í 8 læknishéruðum á Vesturlandi. Var farið með varð-
skipi og fólk, sem haft hefur verið undir eftirliti undanfarin ár, rannsak-
að þar, alls 123 manns. Voru rannsóknirnar eins og áður gerðar í sam-
ráði við héraðslækna.
Árangur rannsókna heilsuverndarstöðva er greindur sérstaklega (sbr.
bls. 140). Af 1122, sem rannsakaðir voru með litlum ferðaröntgentækj-
um í 18 læknishéruðum, fundust að þessu sinni 2 sjúldingar, sem taldir
voru með virka berklaveiki (1,8%C hinna rannsökuðu). Annar þessara
sjúklinga var áður þekktur, en hafði verið tekinn af berklaskrá.
3. fgulmygla (actinomycosis).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962
„ 1 3 1 „ „ 1 2 2
J> » » » » » » ” »
fgulmygla hefur nú verið tekin út af mánaðaskrám, en er skráð á árs-
yfirliti. Samkvæmt því eru tilgreind tvö tilfelli á árinu, 1 í Helluhéraði,
að því er virðist nýtt, og 1 í Breiðumýrarhéraði, en þess látið getið, að
sjúklingurinn sé albata. Raunverulega er þvi kunnugt um aðeins 1
sjúkling á árinu.
1953
Sjúkl.
Dánir