Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 106
1962
— 104 —
ingar. Ljóst er af framtali atvinnusjúkra, en þeir eru aðeins taldir 23 á
árinu, að læknar gera sér lítið far um þá skráningu, og hefur t. d. enginn
slíkur sjúklingur verið skráður í Reykjavík, síðan reglurnar gengu í
gildi. Læknum til nokkurra málsbóta getur þó verið það, að hugtakið
atvinnusjúkdómar er illa afmarkað og að til skamms tíma hefur almennt
verið litið svo á, og' sennilega einnig af læknum, að atvinnusjúkdómar
væru hér naumast til aðrir en heymæði. En með sívaxandi iðnaði, þar á
meðal ýmiss konar efnagerð, hljóta læknar að relca sig á sjúkdómstilfelli,
sem tvímælalaust verða talin til atvinnusjúkdóma. Læknum til upp-
rifjunar og hvatningar þykir rétt að birta reglur þær, sem nú eru í
gildi um skráninguna, ásamt tilkynningarforminu.
Reglur um skráningu og tilkynningu atvinnusjúkdóma.
1. gr.
Atvinnusjúkdómar eru sjúkdómar, sem eiga beint eða óbeint rætur
að rekja til óhollustu í sambandi við atvinnu manna, hvort heldur er
vegna eðlis atvinnunnar, tilhögunar vinnu eða aðbúnaðar á vinnustað.
Einkum koma hér til greina bæklunar-, bilunar-, eitrunar- og ofnæmis-
kvillar. Með atvinnusjúkdómum skal telja áverka af völdum slysfara,
sem tilhögun vinnu eða búnaði vinnustöðvar verður beinlínis um kennt,
en ekki áverka af öðrum slysum, enda þótt þau verði við vinnu eða á
vinnustað, og skiptir ekki máli, þótt slys verði metið bótaskylt að
lögum.
2. gr.
Starfandi læknar (sjúkrahús) skulu senda hlutaðeigandi héraðslækni
(í Reykjavík borgarlækni) tilkynningu um hvern sjúkling, er til þeirra
leitar með atvinnusjúkdóm. Tilkynningu skal rita á eyðublað, er land-
læknir lætur í té.
3. gr.
Þá er héraðslæknir (í Reykjavík borgarlæknir) fær vitneskju um
atvinnusjúkdóm, skal hann kynna sér, eftir því sem tilefni er til, atvinnu
hlutaðeiganda, tilhögun vinnu og aðbúnað á vinnustað og gera öryggis-
eftirliti ríkisins tafarlaust kunna niðurstöðu athugana sinna.
4. gr.
Héraðslæknar (í Reykjavík borgarlæknir) skulu senda landlækni,
ásamt ársskýrslu sinni, greinargerð um atvinnusjúkdóma, er þeir hafa
fengið vitneskju um á liðnu ári. Skal þar m. a. greind atvinna sjúklings,
eðli sjúkdóms og sjúkdómsorsök, eftir því sem næst verður komizt.
Reglur þessar eru settar samkvæmt ákvæðum 41. gr. laga nr. 23 1-
febr. 1952, um öryggisráðstafanir á vinnustöðum, sbr. 6. gr. laga nr. 52
20. mai 1955, um breytingu á þeim lögum, og öðlast gildi þegar i stað.