Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 108
1962
— 106
svo á, að fyrir þá yrði ekki annað gert en að sjá fyrir líkamlegum þörf-
um þeirra og veita þeim nauðsynlega aðhjúkrun. Rannsóknir og reynsla
síðustu ára hafa leitt í ljós, að þessi skoðun er röng. Við fullkomin
skilyrði má koma þorra fávita til nokkurs þroska, að vísu mismikils, en
mörgum þó svo, að þeir geta unnið arðbær störf, jafnvel séð fyrir sér
að meira eða minna leyti, og notið þess í ríkum mæli að finna, að þeir
eru til gagns. Rök fyrir því að veita fávitum slíkt uppeldi eru því bæði
þjóðhagslegs eðlis og mannúðarrök.
Þar sem málefnum fávita er bezt skipað nú, er allt kapp lagt á að
rannsaka sem nákvæmast og í tæka tíð andlegt og líkamlegt atgervi þeirra
og ástand, leita uppi takmarkaða hæfileika þeirra og' veita þeim síðan
skipulega þjálfun og tamningu til þeirrar iðju, sem álitin er hæfa hverj-
um uin sig. Hér er með öðrum orðum leitazt við að örva á virkan hátt
til fyllsta þroska þá hæfileikaþætti eða -slitur, sem með hverjum ein-
staklingi kunna að leynast, í stað þess að láta þá visna í athafnaleysi
vegna skorts á nauðsynlegum örvunaráhrifum frá umhverfinu. Slíkt upp-
eldi má vafalaust stundum takast á heimilum, ef foreldrar eiga nægan
skilning, þrautseigju og' tíma til að sinna vangefnum börnum sínum. En
yfirleitt er þess þó ekki að vænta nema á stofnunum, og er nú fengin
mikil reynsla fyrir því, hvernig slíkar stofnanir eigi að vera úr garði
gerðar, hvers ltonar starfsliðs þær þarfnast og yfir hvers konar náms-
og starfstækni þær þurfa að ráða.
Fullkomin stofnun handa fávitum verður af fjárhagslegum og upp-
eldislegum ástæðum að vera allstór, eða nánara tiltekið ætluð a. m. k.
nokkrum hundruðum vistmanna. Hún greinist síðan í margar einingar
eða deildir, og eru vistmenn valdir þannig á hverja deild, að hópurinn
verði eins samstæður og unnt er. Við hópskiptinguna er farið eftir aldri,
kyni, greind og öðru ástandi, sem meta má til verulegrar hlítar með
nútímarannsóknartækni, bæði í upphafi vistar og að fenginni reynslu af
framförum hvers og eins. Stofnunin þarf að hafa á að skipa margs konar
sérmenntuðu starfsliði, og ber fyrst að nefna geðlækni, sér í lagi barna-
geðlækni, en einnig þarf hún a. m. k. að geta leitað til ráðgjafa úr ýms-
um greinum læknisfræði, svo sem barnalækna, taugasjúkdómalækna,
háls-, nef-, og eyrnalækna, augnlækna o. fl. Að öðru leyti er starfsliðið
skipað sálfræðingum, félagsráðgjöfum og siðast en ekki sízt sérmennt-
uðum kennurum í ýmsum greinum og sérmenntuðu gæzlufólki auk
annars venjulegs starfsliðs. Þá þarf slík stofnun að ráða yfir fjölþætt-
um möguleikum til margvíslegrar iðju, bæði inni og úti.
Sökum mannfæðar er loku fyrir það skotið að reka nema eina full-
g'ilda stofnun hér á landi, og er þegar góður vísir að slíkri stofnun í
Kópavogi. Þar sem verulegur skxúður hefur komizt á málefni fávita hér-
lendis á nokkrum undanförnum árum, aðallega fyrir tilstuðlan Styrktar-
félags vangefinna, fékk heilbrigðismálastjórn að tillögu landlæknis hing-
að til lands framkvæmdarstjóra þessara mála i Danmörku, forsorgschef