Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 144
1962
— 142 —
Deildin sá um útgáfu bæklingsins „Meðan við bíðum“, sem allar konur
fá gefins við fyrstu komu á deildina.
Áfengisvarnadeild.
Á deildina komu alls 402 manns, þar af 52 í fyrsta sinn (50 karlar
og 2 konur). Alls kom þetta fólk 7508 sinnum. Læknar deildarinnar
fóru í 5 vitjanir á heimili drykkjusjúklinga og hjúkrunarkonan í 13.
Sálfræðingur deildarinnar hafði viðtöl við allmarga sjúklinga, alls í 73
skipti.
HÚ3- og kgnsjúkdómadeild.
Á deildina komu alls 637 manns, þar af 353 vegna kynsjúkdóma. Tala
rannsókna var 2251, þar af 1823 vegna kynsjúkdóma.
Af þessu fólki reyndust:
10 með sárasótt, 5 karlar, 5 konur. Ný tilfelli voru 4, 3 karlar (2
erlendir) og 1 kona.
183 — lekanda, 136 karlar og 47 konur.
7 — flatlús, 4 karlar og 3 konur. Höfuðlús sást ekki á árinu.
286 — aðra húðsjúkdóma, 88 karlar, 119 konur og 79 börn.
160 voru rannsakaðir vegna gruns um kynsjúkdóma, og fengu flestir
meðferð til vara.
Gerðar voru 394 smásjárrannsóknir í sjúkdómsgreiningarskyni. Tekin
voru 287 blóðpróf.
Geðverndardeild fgrir börn.
Áframhaldandi rannsókn og sállækning
frá árinu 1960 .............................................. 6
frá árinu 1961 .............................................. 52
Ný tilfelli tekin inn á árinu 1962 .............................. 143
201
Deildin hefur því aðstoðað 201 barn á árinu á eftirfarandi hátt:
Frá1960 Frá 1961 Frá 1962 Samtals
1. Viðtal við aðstandendur eingöngu - - 15 15
2. Geðrannsókn - 20 84 104
3. Sállækning 6 28 36 70
4. Rannsókn rofin 3 6 9
5. Sállækning rofin - 1 2 3
Samtals 6 52 143 201
Af þessum 201 börnum hefur deildin lokið aðstoð sinni við 145 börn.
Ýmislegt. Foreldrafundum þeim, sem byrjað var á í október 1961, var
haldið áfram, þar eð þeir virtust gefa góða raun. Aðsókn hefur verið
mjög mikil að deildinni allt þetta ár og virðist fara sívaxandi.
-v'