Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Síða 162
1962
— 160 —
kg. Osta- og smjörsalan seldi í Reykjavik og út á land 900 554 kg af
smjöri, 476 316 kg af ostum, 106 642 kg af undanrennudufti og 31 000
kg af nýmjólkurdufti.
Reykhóla. Mjólkurbúi er verið að koma upp á Reykhólum, og var hús
þess fokhelt í haust.
Suðureijrar. Eins og að undanförnu hefur orðið að kaupa mjólk frá
Önundarfirði. Það er ógerilsneydd mjólk, og vegna stopulla ferða og
ófullkomins útbúnaðar við flutning' hennar verður oft verulegur hluti
hennar ónýt eða léleg fæða. Allveruleg úrbót fékkst, er kaupfélagið hóf
snemma í vor að fá mjólk í hyrnum frá samsölunni í Reykjavík. Reynd-
ist mjólkin geta geymzt án merkjanlegra skemmda í allt að 2—3 vikur,
ef hún var stöðugt höfð í kæli. En í nóvemberbyrjun i haust hætti sam-
salan afgreiðslu mjólkurinnar vestur hingað.
Bolungarvíkur. Heilbrigðisnefnd Hólshrepps hefur haldið nokkra fundi,
aðallega vegna mjólkurinnar. Sendar voru prufur af mjólk hér, fram-
leiddri á öllum árstímum. Kom þá í ljós, að mjög var ábótavant vöndun
á mjólkurframleiðslu.
Sauðárkróks. Mjólkursýnishorn send til rannsóknar nokkrum sinn-
um á árinu. Meðferð mjólkurinnar stundum ábótavant.
Akuregrar. Mjólkursamlag K. E. A. tók á móti 16 183 038 lítrum mjólk-
ur, þar af voru 3 404 978 lítrar neyzlumjólk, en afgangurinn fór til
vinnslu. Fitumagn mjólkurinnar var að meðaltali 3,81%. Framleidd
voru á árinu um 472 tonn af smjöri og 241 tonn af skyri.
Djúpavogs. Mjólkurstöð tók til starfa á Djúpavogi í janúar.
6. Áfengis- og tóbaksnotkun. Áfengisvarnir.
Rvík. Á árinu var selt áfengi úr áfengisútsölum í Reykjavík fyrir 189,6
milljónir króna, og er þar með talið áfengi selt gegn póstkröfu út á land.
í fangageymslu lögreglunnar við Síðumúla gistu 6365 manns á árinu,
flestir vegna ölvunar. Fram fór í samráði við fræðslustjóra og skóla-
stjóra viðkomandi skóla könnun á reykingavenjum barna í 10 til 12 ára
bekkjum í stærstu barnaskólum Reykjavíkur og í Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi. Niðurstöður könnunarinnar voru þessar: 1) I 10 ára
bekkjum er 10. hver drengur byrjaður að reykja, en aðeins tæplega 3
af hverjum 100 stúlkum. í 12 ára bekkjum reykir 7. hver drengur og
16. hver stúlka. 2) Samanburður við áður gerða könnun á reykingum
í unglinga- og gagnfræðaskólum bendir til þess, að reykingar aukist mjög
við það, að börnin fara úr barnaskólum upp í framhaldsskóla. Hjá
piltum nemur aukningin rúmlega helmingi, en hjá stúlkum er hún
þreföld. 3) Athugun þessi sýnir ljóslega, hver nauðsyn er á því, að haf-
inn sé áróður gegn reykingum þegar í fyrstu bekkjum barnaskólanna
og honum haldið uppi í öllum bekkjum barna- og gagnfræðaskóla.