Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Síða 185
— 183
1962
Niðurstöður mínar af rannsókn minni á geðheilsu M. K-sonar eru:
Nálcomnir ættingjar M. eru haldnir geðveiki, bæði hugklofa (systkina-
börn) og hringhugasýki (psylt. man. depr., systir) auk inferioritas intellect.
(nefnd systir). Dóttir M er haldin hringhugasýki auk inferioritas
intellectualis (,,tregviti“), annað barn M. er fáviti, sonur psykopat (geð-
veill) og alkóhólisti. M. er treggáfaður (tregviti) að upplagi, en geðveikur
hefur hann verið árum saman, a. m. k. nærri stöðugt frá 1944 til seinni
hluta árs 1956. Á árunum 1957 til nóvember 1960 virðist hann hafa verið
að mestu laus við geðveiki, enda var hann þá til sjós og mun ekki hafa
neytt víns, a. m. k. ekki svo talið verði. í mörg ár hefur M. verið drykk-
felldur og mest borið á því á því tímabili, er hann mun hafa verið geð-
veikur.
Við athugun mína í ... kom greinilega í ljós, að M. er hringhugi
(psyk. man. depr.), og hefur hann verið geðveikur allan þann tíma, er
hann hefur verið vistaður þar. M. er auk þess alkóhólisti, en sennilegt er,
að alkóhólisminn standi í nánu sambandi við geðveiki hans. Ég tel, að M.
hafi ekki verið sjálfráður gerða sinna, er hann gerði árásina, sem um
getur i skýrslu rannsóknarlögreglunnar. Ég tel, að orsök þess sé geðveiki
hans og auk þess ölæði.“
Málið er lagt fgrir læknaráð á þá leið,
að óskað er umsagnar varðandi álit ..., sérfræðings í tauga- og geð-
sjúkdómum, á geðheilsu ákærða þriðjudaginn 17. júlí 1962, þá er hann
réðst að K. J-syni.
Tillaga réitarmáladeildar nm ályktun læknaráðs:
Læknaráð telur, að ákærði M. K-son sé geðveikur drykkjumaður og
hafi naumast verið sjálfráður gerða sinna þriðjudag'inn 17. júli 1962, er
hann réðst að K. J-syni. Fellst læknaráð því á niðurstöður þær, sem koma
fram í tveim síðustu setningum í áliti ..., sérfræðings í tauga- og geð-
sjúkdómum, dags. 9. febrúar 1963.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 26. maí 1964,
staðfest af forseta og ritara 14. júlí s. á. sem álitsgerð og úrskurður
læknaráðs.
Málsúrslit: Með dómi sakadóms Reykjavíkur, kveSnum upp 9. des. 1964, var ákærði
sakfelldur fyrir brot gegn 218. gr. alm. liegningarlaga, nr. 19/1940 og dæmdur til vistar
á viðeigandi hæli skv. 16. gr. sömu laga, þar sem talið var, að refsing bæri ekki árangur.
3/1964.
Þór Vilhjálmsson, borgardómari í Reykjavík, hefur með bréfi, dags.
14. aprll 1964, samkvæmt úrskurði, kveðnum upp á bæjarþingi Reykja-
viltur s. d., leitað umsagnar læknaráðs í bæjarþingsmálinu nr. 1100/1963:
B- K-son gegn E. R-dal og til réttargæzlu Vátryggingarfélaginu h.f.