Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Page 186
1962
— 184 —
Málsatvik eru þessi:
Laugardaginn 1. október 1960 var stefnandi máls þessa, B. Ií-son, tré-
smiður, ..., Reykjavík, að vinna við endurbætur og viðgerðir á kirkj-
unni að ..., ... hreppi, Árnessýslu. Húsasmíðameistari var E. R-dal, ...
Reykjavík. Nokkru eftir hádegi umræddan dag var stefnandi staddur
uppi á vinnupalli í kirkjuturninum i um það bil þriggja metra hæð frá
grunni, en vinnupallurinn var gerður með þeirn hætti, að plankar höfðu
verið Iagðir milli þverbitans í turngrindinni. Allt í einu brotnaði yzti
plankinn öðrum megin á vinnupallinum sundur í miðju undan stefnanda,
þannig að stefnandi féll til jarðar, en lenti að nokkru leyti utan í bnin-
inni á stáltunnu, sem stóð á grunni turnsins.
Stefnandi kveðst strax á eftir hafa fundið til mikils sársauka í síðunni
og öxlinni vinstra megin. Hann leitaði þó ekki læknis fyrr en mánudag-
inn 3. október s. á., en þá fór hann í sjúkrahúsið að Selfossi til að láta
athuga meiðslin. Læknisvottorð um athugun og meðferð þar liggur ekki
fyrir í málinu.
Samkvæmt framburði H. H-sonar verkstjóra......Reykjavík, fór stefn-
andi á ný að vinna við kirkjusmíðina um það bil viku eftir slysið og
vann við hana eitthvað á fjórða mánuð.
Stefnandi er fæddur ... 1901.
í málinu liggur fyrir örorkumat Páls Sigurðssonar tryggingayfirlæknis,
dags. 22. janúar 1962, en það hljóðar svo að loknum inngangsorðum:
„Slasaði, sem er trésmiður, var að vinna við turnbyggingu á kirkj-
unni að .. . Hann fékk þar byltu, og' samkv. vottorði dr. [med.] ...
[sérfræðings í bæklunarsjúkdómum], frá 9. febrúar 1961 var hann
talinn hafa fengið rifbrot.
Fljótlega fór að bera á miklum óþægindum í vinstri öxl, og var slasaði
sendur til meðferðar til ..., sérfræðings í gigtlækningum, og var þar
í meðferð frá 23. des. 1960.
Röntgenskoðun virðist fyrst hafa verið gerð 17. marz 1961, og segir
svo í umsögn röntgenlæknis:
„Periarticuler kölkun í vinstri axlarlið, tiltölulega neðarlega. I.iðurinn
að öðru leyti eðlilegur. R.diagn.: Periarthritis humero-scapularis sin.,
calcificans.“
Slasaði mun fyrst hafa komið til skoðunar hjá tryggingalæknum í sept.
1961. Hafði þá engin óþægindi lengur frá rifbrotinu, en kvartaði um
stirðleika og kraftleysi í vinstri handlim og sársauka við allar hreyf-
ingar í axlarlið.
Af viðtali við manninn þá kom í ljós, að hann hafði byrjað vinnu
nokkurn tíma eftir slysið, en varð að hætta vegna óþæginda í öxlinni
og hafði þá ekkert unnið síðan í janúar 1961.
Á s. 1. hausti kom slasaði aftur og aftur til eftirlits hjá trygginga-
læknum. Hann hætti i meðferð hjá ... [fyrrnefndum sérfræðingi í
gigtlækningum], þar eð það virtist ekki gagna mikið. Fór í geislameð-