Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Side 189
— 187
1962
4/1964.
Yfirborgardómari í Reykjavík hefur með bréfi, dags. 18. febrúar 1964,
skv. úrskurði, kveðnum upp á bæjarþingi Reykjavíkur s. d., leitað um-
sagnar læknaráðs í bæjarþingsmálinu nr. 3553/1963: M. E-dóttir vegna
sjálfrar sín, eiginmanns sins G. S-sonar og vegna ófjárráða dóttur sinnar
S. gegn S. K. og Samvinnutryggingum.
Málsatvik eru þcssi:
Fimmtudaginn 10. ágúst 1961 varð bifreiðaárekstur á þjóðveginum við
Víðihvammsleiti neðan við bæinn Hvamm í Norðurárdal í Mýrasýslu.
Rákust saman bifreiðarnar R ..., Pobeda-fólksbifreið, eign stefnda, og
E ..., Moskvitsj-fólksbifreið, eign eiginmanns stefnanda. Bifreiðunum
var stjórnað af eigendum þeirra. Við áreksturinn losnaði farangursgrind
af þaki R ... og kastaðist í framrúðu E ... með þeim afleiðingum, að
rúðan brotnaði og stefnandi, M. E-dóttir, sem sat í framsæti bifreiðar-
innar, skarst í andliti af rúðubrotunum.
I málinu liggur fyrir örorkumat Páls Sigurðssonar tryggingayfirlæknis,
dags. 18. maí 1963, svo hljóðandi:
„M. E-dóttir, ..., ...nesi, f. ... 1919.
Samkv. vottorði frá ..., yíirlækni sjúkrahússins á .. .nesi, þá var
ofannefnd kona lögð inn á Sjúkrahús ...ness 10. ágúst 1961, en þann
dag hafði hún lent í miklu bílslysi. Vottorð ... [yfirlæknisins] er dags.
5. okt. 1962, og segir þar svo:
„Hér með vottast, að hinn 10. ágúst 1961 var komið með M. E-dóttur,
..., ...nesi, hingað á sjúkrahúsið. Hafði hún orðið fyrir allmiklum
áverkum í bílslysi þá fyrr um daginn.
Við skoðun hér kom í Ijós, að konan hefur skorizt mjög illa í andliti.
Hefur hún hlotið 10 cm langan skurð frá nefi ofanverðu og liggur ská-
hallt niður á hægri kinn. Hann nær aiveg inn i bein. Ofar á kinninni er
annar skurður um 3 cm að lengd. Á höku og niður á háls hægra megin
er ennþá annar slcurður um 5 cm að lengd. Ekki hafði sjúkl. nein merki
um heilahristing, en var allmeðtekin, enda hafði hún misst töluvert blóð.
Strax kom i ljós, að hægra munnvik var slappt, og [höfðu] því greinar
af andlitstauginni þarna farið í sundur (nervus facialis).
Gert var að sárunum hérna á sjúkrahúsinu, og lá sjúkl. hér til 16. ágúst
1961. Sárin greru vel, en sjúkl. var samt lengi að jafna sig.
Síðar fór sjúkl. að bólgna á kinninni og var til rannsóknar þá nokkra
daga á Landspítalanum. Þar mun munnvatnsgangur hafa opnazt frá
glandula parotis, og bólgan hvarf.
Síðan hefur ástand sjúklingsins stöðugt farið batnandi. Slapplelkinn
í niunnvikinu minnkaði og er nú orðinn óverulegur.
Við skoðun í dag eru aðalkvartanir sjúklingsins:
L Dofi og annarleg tilkenning kringum örið á kinninni.
2. Oþægindi stöku sinnum frá munnvatnsrennsli, sem er slimkennt og
slæmt á bragðið.