Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Síða 193
— 191 —
1962
álitið er erlendis, sbr. skýrsluform það, sem ég hef áður minnzt á og lagt
er fram í málinu.
Niðurstaða læknaráðs í þessu máli er því í algeru ósamræmi við fyrri
niðurstöðu þess, án þess að gerð sé nokkur grein fyrir því, að læknavís-
indin hafi komizt að nýjum sannindum í þessu efni. Enda er niðurstaðan
í fyrsta lagi byggð á staðreyndum, sem læknaráð getur ekki borið um, þótt
því kunni að vera kunnugt um venju í þessu efni, og auk þess svo varlega
orðuð, að vafinn verður samt eftir, sbr. „aukist varla finnanlega", en
allur vafi í máli þessu á að koma skjólstæðing mínum til góða.“
Málið er lagt fgrir læknaráð á þessa leið:
I. Getur ráðið skýrgreint nánar orðunina „varla finnanlega“ í ályktun,
sem staðfest er 15. ágúst 1962 varðandi mál þetta?
II. Treystist ráðið til að staðhæfa, að reducerandi efni í blóðúrtaki
geti ekki aukizt um 0.04%c, þá er húð við blóðtöku er hreinsuð með
meðalabenzíni?
III. Óskar læknaráð að tjá sig um þá gagnrýni, sem fram kemur hjá
ólafi Þorgi-ímssyni hrl., skipuðum verjanda ákærðs, þar sem hann telur,
að mótsagnar gæti í ályktun læknaráðs, sem greint er í I. hér að framan,
og ályktun þess í læknaráðsmáli nr. 10/1961?
Ad I. Þar sem Slysavarðstofa Reykjavíkur mun við blóðtöku nota
benzín við blóðhreinsun, en sú stofnun annast blóðtökur úr flestum þeirra
ökumanna, sem sakaðir eru um ölvun við akstur vélknúinna tækja, væri
mjög æskilegt, að læknaráð láti í té álit sitt um tölulegt hámark, sem
ráðið hyggur, að reducerandi efni í blóðúrtaki geti aukizt um, þá er slík
hreinsun á húð er um hönd höfð.
Ad II. Svo sem læknaráði mun kunnugt, hafa dómstólar hér á landi
litið svo á, að reynist reducerandi efni í blóðúrtaki, sem samsvarar 1.33%0
af alkóhóli, sé allt að einu ekki fram komin lögfull sönnun þess, að því
lágmarki, sem greint er í 4. mgr. 25. gr. umferðarlaga nr. 26/1958 sé
náð, þegar tekið er tillit til venjulegrar mælingarskekkju þeirra redu-
cerandi efna, annarra en áfengis, sem „eðlilega" eru í blóði manna. í
blóði S. J-sen fundust reducerandi efni, sem samsvara 1.37/c af alkó-
hóli, eða 0.04%0 umfram hámark það, sem fylgt hefur verið.
Tillaga réttarmáladeildar um áhjktun læknaráðs:
Ad I. Með „varla finnanlegt“ á deildin við það, að mismunurinn
sé svo lítill, að hann falli innan við þau takmörk, sem setja verður sem
skekkjumöguleika við kemislcar rannsóknir, eins og þær, sem notaðar
eru til að ákveða alkóhól í blóði.
Ad II. Að gefnu tilefni lét réttarmáladeild taka blóð úr báðum hand-
leggjum á 10 einstaldingum, sem ekki höfðu neytt áfengis. Öðrum megin
var þvegið með benzíni, en hinum megin stungið í æð án nokkurs þvottar.
í sex tilfellum var enginn munur, hvort sem þvegið var með benzíni eða