Studia Islandica - 01.06.1940, Page 14
12
hans er í Landnámu nefnd Þuríður Þorleifsdóttirr
Ávangssonar í Botni. Tvö af börnum þeirra eru nefnd,
Jórunn, er átti Illugi rauði Hrólfsson á Innra-Hólmi
á Akranesi, — og Börkur. Börkur átti Hallvöru, son-
ardóttur þeirra Ketils gufu og Ýrar, dóttur Geirmund-
ar heljarskinns, — og var þeirra sonur Þórður, faðir
Auðunar í Brautarholti.1)
Af því, sem sagt er um Þormóð í Landnámu, virðist
mega ráða með fullri vissu, að það sé gripið úr lausu
lofti, sem sagt er í Hrafnkötlu, að ætt þeirra Þjóstars-
sona sé öll vestfirzk. Öll ætt og afkvæmi Þormóðar er
hér syðra, líka sonarsonur Barkar, þó að Börkur væri
kvæntur vestfirzkri konu.
Ekki virðist það heldur sennilegt, að Þormóður hafi
getað verið kvæntur Þórdísi Þórólfsdóttur frá Borg,
þar sem hvorki Egils saga né Landnáma geta þess og
Landnáma auk þess nefnir konu hans, eins og áður
er getið. Ef þingdeilan á að gerast nokkuru fyrir
miðja 10. öld, eins og verður að gera ráð fyrir, er
Þórdís (fædd um 935) þá ekki einu sinni gjafvaxta.
Það má líka heita, að þetta sé eina atriðið í mann-
fræði Hrafnkötlu, sem allir fræðimenn hafa rengt, þó
að þeir Guðbrandur Vigfússon og Finnur Jónsson tæpl
á því, að Þormóður geti hafa verið fyrri maður Þór-
dísar.2)
Um þá Þorkel og Þorgeir er það skemmst að segja,
að þeirra er hvergi getið nema í Hrafnkötlu. Er það
nokkuð kynlegt, að þeim skuli vera gert svo lágt.
undir höfði í Landnámu, í samanburði við Þormóð,
þar sem þeir þó hlyti að hafa verið miklu ríkari menn,
,ef nokkuð er hæft í því, sem sagan segir. „Iðunn var
dóttir Molda-Gnúps, er átti Þjóstarr á Álptanesi. Þor-
1) Um þessa ættfærslu eru heimildir ekki alveg sammála, en
það skiptir hér ekki máli. Sjá Landn. (1900), 40, 167; ættartöl-
una aftan við Geirmundar þátt í Sturlungu; Safn III, 514.
2) Safn I, 356; Litt. hist. II, 518.