Studia Islandica - 01.06.1940, Síða 22
20
Hrafnkels í Fljótsdal en þeirra Þjóstarssona í Þorska-
firði.1)
Hitt er annað mál, að af Droplaugarsona sögu, sem
áreiðanlega er eldri og reist á meiri sögusögnum en
Hrafnkatla, má sjá, að tveir sonasynir Hrafnkels búa
síðar á þessum slóðum, Helgi Ásbjarnarson og Hrafn-
kell Þórisson, eins og áður er getið. En þeir eru báðir
í mægðum við ættmenn Brynjólfs gamla, Helgi á
Droplaugu Bersadóttur, en Hólmsteinn Bersason Ás-
laugu Þórisdóttur, systur Hrafnkels. Þeir bræðrung-
arnir eiga goðorð saman, og gæti það vel verið erfða-
goðorð þeirra, ofan af Jökuldal, sem þeir hefði auk-
ið með þingmannastyrk úr Fljótsdal og af Héraði.
Það er ekki ósennilegt, að einhver vitneskja um þessa
afkomendur Hrafnkels eldra hafi gefið höfundi sög-
unnar hugmyndina að láta þetta mannaforráð þeirra
fyrir neðan heiði stafa frá eldra tíma.
Vel má vera, að höfundur Hrafnkötlu hafi þekkt
Dropl. sona sögu. Á það bendir, að hann talar um
Hallsteinssonu á Víðivöllum, Sighvat og Snorra. f
Dropl. s. s. er líka talað um Hallsteinssonu á Víðivöll-
um, Þórð, Þorkel og Eindriða. Þegar Jakob Jakob-
sen í formála Austfirðinga sagna telur, að hér sé átt
við sömu menn, ,en hitt sé óvíst, hvor sagan hafi rétt-
ari nöfn, þá gleymir hann alveg tímatalinu. Hall-
steinssynir Hrafnkötlu eru fulltíða menn um miðja
10. öld, en Hallsteinssynir Dropl. s. s. eru ekki ein-
ungis enn á lífi um 1000, heldur kvænist faðir þeirra
um það leyti í annað sinn. En hví ekki að berja hér í
brestina, eins og vant er, og gera ráð fyrir, að Hall-
1) Landnáma getur oft um bústaðaskipti landnámsmanna, þó
að þau verði ekki með svo sögulegum atvikum sem flutningur
Hrafnkels að Hrafnkelsstöðum. Það er nærri óhugsandi, að heim-
ildarmenn um landnám á þessum slóðum hafi þekkt nokkurar
sagnir um það atriði. Ef þær hafa verið til, hefði þær því átt að
myndast síðar en Landnáma var skrásett.