Studia Islandica - 01.06.1940, Qupperneq 47
45
hastarlegum breytingum á ytri kjörum og miklum
umskiptum á skaplyndi, heldur líka gerð skýr grein
fyrir örlögum og einkennum ýmissa annara manna.
En sagan verður aldrei þurrt yfirlit, allt af virðist nóg
ráðrúm til rækilegra lýsinga stærri og smærri at-
burða. Lesandanum finnst hann í sögulokin hafa lif-
að þetta allt saman, hefur jafnvel stundum verið
hissa á, hversu nákvæmlega efnið er rakið og skýrt.
Og þegar hann svo lítur á blaðsíðutöluna í sögulokin,
trúir hann varla sínum eigin augum, að þetta skuli
allt hafa rúmazt í svo lítilli bók.
Vér skulum nú líta á þá tækni, sem beitt er í sög-
unni til þess að ná þessum árangri. Og er þá bezt að
víkja fyrst að því atriði í efnisvali, sem jafnan skiptir
miklu máli í fornsögum vorum: hversu margir menn
koma við hana og hver grein er gerð fyrir þeim. Mann-
fræði sagnanna er, eins og allir vita, ásteytingarsteinn
fyrir flesta nútímalesendur, villir þá og truflar, svo
að þeir eiga bágt með að halda þræðinum eða höndla
sögukjarnann.
I Hrafnkötlu eru nefndar 25 persónur. Sjö af þeim
koma aðeins fyrir í 1. kap., ættartala Haralds þár-
fagra og Arnþrúður ambátt, sem koma söguþræðin-
um ekkert við. Þau Þormóður Þjóstarsson og Þórdís
Þórólfsdóttir eru líka nefnd aðeins til fróðleiks. Nauð-
synlegt var að nefna föður Hrafnkels, konu hans og
sonu (4 nöfn). Þá eru þeir Hallsteinssynir og Hrólfs-
synir, sem nefndir eru meðal liðsmanna Hrafnkels í
förinni eftir Eyvindi (4 nöfn). Þetta eru 17 nöfn, og
ekkert annað en nöfnin tóm. Þá eru eftir 8 persónur
(auk tveggja ónefndra aukapersóna, griðkonu og
skósveins), sem verulega koma við söguna:
Hrafnkell,
Bjarni,
Sámur,
Eyvindur,