Rit Mógilsár - 2014, Page 7

Rit Mógilsár - 2014, Page 7
Rit Mógilsár 31/2014 7 auðlindar þjóni samfélaginu og umhverfinu sem best. Víða hefur þó reynst erfitt að finna þá blöndu og viðhalda henni (Ingemarson og Nylund 2013). Sænska dæmið sýnir að hægt er að ganga svo langt í setningu laga og reglugerða að það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir mikilvæga þætti í hagkerfi viðkomandi lands. Aldrei fór fram greining á því hversu langt væri eðlilegt að ganga í kvöðum, t.d. um vernd líffjölbreytni eða landslags. Þar réð hugmyndafræðin „því meira því betra“, enda eru lagaákvæði um vernd ekki háð mati á (efnahagslegum) umhverfis áhrifum. Afleiðingarnar fyrir skógariðnaðinn, þjóðar- búið og skóga í öðrum löndum komu einungis fram eftir á. Þróun í stjórnsýslu skógræktar Í skógrækt á Íslandi er einkum lögð áhersla á að rækta nýja skóga á áður skóglausu landi. Ræktun skógar hefur margháttuð áhrif á umhverfi og samfélag og um sum þessara áhrifa eru skiptar skoðanir. Áhrifin er einnig hægt að greina á ýmsan hátt: Sum eru hlut- læg, önnur huglæg, sum eru háð umfangi skógræktar, önnur staðsetningu og svo fram- vegis. Sum áhrifanna er tiltölulega auðvelt að eiga við með góðu skipulagi, önnur eru erfiðari viðfangs, sérstaklega þau huglægu. Hér á landi hefur andstaða við skógrækt hvað helst komið fram í formi gagnrýni á áhrif skógræktar á útsýni. Aðrir þættir sem gagnrýndir hafa verið eru áhrif á ásýnd lands, samkeppni skógræktar við aðra mögulega landnotkun, notkun innfluttra trjátegunda og ýmislegt annað (Eysteinsson og Curl 2007). Stundum er fótur fyrir gagnrýninni en oftar er hún byggð á tilfinningum einstaklinga frekar en staðreyndum og oft er hún veru- lega ýkt ef ekki beinlínis röng (Eysteinsson og Curl 2007). Það er t.d. ekki í samræmi við raunveruleikann þegar því er haldið fram að skógrækt sé óskipulögð og hömlulaus. Þorri skógræktar er þvert á móti vel skipulagður og skógrækt hérlendis eru settar umtals- verðar fjárhagslegar, lagalegar og náttúru- farslegar hömlur. Skógræktendur hafa ekki frjálsar hendur með það hvar og hvernig þeir rækta skóg. Þeir sem þiggja ríkisstyrki, sem eru nánast allir þeir sem rækta skóg á teljandi landsvæðum, þurfa að undirrita samning og fylgja áætlun um hvar og hvernig skógur verði ræktaður. Í þeirri áætlun er m.a. tekið tillit til náttúruverndar og fornleifa auk lands- lagsþátta (Hallgrímur Indriðason 2008). Til eru andstæðingar skógræktar sem bein- línis reka áróður þess efnis að koma þurfi böndum á „hömlulausa og skipulags- lausa“ skógrækt og sumt fólk tekur mark á áróðrinum, með þeim afleiðingum að innleiddar hafa verið sífellt meiri lagalegar hömlur í gegnum skipulagslög og lög um mat á umhverfisáhrifum. Það hefur leitt til þess að Skipulagsstofnun og sveitarfélög (ef þau kjósa) hafa nú ákveðið vald yfir skógrækt. Það gerðist vegna áróðursins og laga setningar frá útlöndum en ekki af því að neinn hafi sýnt fram á nauðsyn þess að færa þessum aðilum þetta vald hér á landi. Skógræktaraðilar börðust gegn þessari þróun á þeim forsendum að þegar væri tekið á atriðum er varða náttúruvernd, fornleifa vernd o.m.fl. í samningum, ræktunar áætlunum og stefnu um skógrækt í sátt við umhverfið (Skógræktarfélag Íslands 2014). Einnig var

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.