Rit Mógilsár - 2014, Blaðsíða 9
Rit Mógilsár 31/2014 9
leyfisins. Hér er lagt til að þær verði einfaldar;
einungis að fyrirhuguð skógrækt samræmist
gildandi aðalskipulagsáætlun. Þá yrði það
verk starfsmanns sveitarfélagsins að ganga
úr skugga um að fyrirhuguð skógrækt
stangist ekki á við annað sem kann að vera
fyrirhugað á sama svæði og kemur fram í
aðalskipulagi. Sé sú forsenda lögð til grund-
vallar getur umsækjandi séð fyrir öllu slíku
fyrir fram og þá útheimtir það litla vinnu að
veita framkvæmdaleyfið.
Lokaorð
Eflaust verður misjafnt hvernig sveitarfélög
taka á þessum málum. Hjá sumum verður
tilhneiging til að flækja þau en hjá öðrum að
einfalda. Því er mikilvægt að skógar eigendur
láti í sér heyra um stefnumótun síns sveitar-
félags í skógarmálum. Einnig er mikilvægt að
opinberar stofnanir, sérstaklega Skipulags-
stofnun og Skógrækt ríkisins, aðstoði
sveitar félög við að koma sér upp skilvirkum
og stjórnsýslulega góðum verkferlum við
afgreiðslu framkvæmdaleyfis vegna
skógræktar.
Heimildir
Alþingi, 2014. Frumvarp til laga um breytingu
á lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfis-
áhrifum, með síðari breytingum (viðaukar,
tilkynningarskyldar framkvæmdir, flutningur
stjórnsýslu). Af vefsíðu: http://www.althingi.
is/altext/143/s/0813.html.
Eysteinsson, Þ. and Curl, S., 2007. Strange
ideas: Subjectivity and reality in attitudes
towards afforestation in Iceland.
Í (Gudmundur Halldorsson, Edda Sigurdis
Oddsdottir and Olafur Eggertsson eds.)
Effects of afforestation on ecosystems, land-
scape and rural development. Proceedings
of the AFFORNORD conference, Reykholt,
Iceland, June 18-22, 2005. TemaNord
2007:508. Bls. 235-242.
Hallgrímur Indriðason (ritstj.), 2008. Skógrækt
í skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Skógrækt
ríkisins og Skipulagsstofnun, sérrit: 18 bls.
Ingemarson, F. og Nylund, J.-E., 2013. From
common to private ownership: Forest
tenure development in Sweden 1500-2010.
Kungl. Skogs- och Lantbruksakademiens
Tidskrift. Árg. 152, nr. 7, 2013: 55 bls.
Skógræktarfélag Íslands, 2014. Skógrækt í
sátt við umhverfið. Af vefsíðu: http://www.
skog.is/index.php?option=com_content&
view=article&id=145%3Askograekt-i-satt-
vie-umhverfie&catid=24%3Averkefni&Item
id=104.