Rit Mógilsár - 2014, Blaðsíða 92
92 Rit Mógilsár 31/2014
Niðurstöður
Fréttir af ávaxtatrjám
voru mjög fáar á 19.
öld og á framan-
verðri 20. öld, en í
kjölfarið á hlýinda-
skeiði sem hófst
upp úr 1920 fjölg aði
slíkum fréttum mikið
(1. mynd). Á 4., 5.
og 6. áratug síðustu
aldar fór ársmeðalhiti
að jafnaði yfir 4°C þar
til upp úr 1960 þegar
kólnaði verulega
aftur (1. mynd). Fréttir
af ræktun ávaxtatrjáa voru flestar á 5. áratug
síðustu aldar þegar ársmeðalhiti var hár en
þeim fór fækkandi þegar kólna fór í veðri.
Samband meðalárshita áratuganna frá 1831
til 2000 og frétta af ávaxtatrjám var mark-
tækt (r=0.63; P=0,006; n=17).
Eplatré
Marktækur munur var á hæð eplayrkja í til-
raun GÍ haustið 2012 (P=0,001; ft=28). Hæstu
yrkin voru Förlovingsappel og Konfetnoje
en lægsta yrkið var Ranto-Aho-Delikatess.
Enginn marktækur munur var í lifun eða tíðni
kals á milli yrkjanna. Marktækur munur kom
hins vegar fram á vexti og þrifum eplayrkja
eftir staðsetningu vaxtarstaða í tilrauninni.
Hæð eplayrkja haustið 2012 lækkaði með
aukinni norðlægri breidd (r=-0,46; P=0,001;
n=139) og tíðni kals jókst einnig með aukinni
norðlægri breidd (r=0,18; P=0,02; n=168).
Hæð yrkja lækkaði einnig (r=-0,29; P<0,001;
n=139), tíðni kals jókst (r=0,22; P=0,004;
n=168) og lifun minnkaði (r=-0,16; P=0,023;
n=198) með aukinni vestlægri lengd. Hins
vegar jókst hæð plantna við aukna hæð yfir
sjávarmáli á vaxtarstaðnum (r=0,46; P<0,001;
n=139).
Perutré
Ekki var marktækur breytileiki milli peruyrkja
í tilraun GÍ, hvorki á hæð, tíðni kals né lifun.
Varðandi mun á þrifum eftir legu vaxtarstaða
þá var fylgni hæðar trjánna og norðlægrar
legu þeirra marktæk, en trén lækkuðu eftir
því sem norðar dró (r=-0,65; P=0,004: n=18).
Plómutré
Marktækur munur var í lifun milli plómuyrkja
(P=0,01; ft=6), en enginn marktækur munur
var á hæð eða tíðni kals milli yrkjanna. Yrkin
með bestu lifunina voru Smedman og Sinikka
en yrkið með lélegasta lifun var Onega gul.
Þá var fylgni hæðar trjánna og norðlægrar
legu þeirra marktæk, en trén lækkuðu eftir
því sem norðar dró (r=-0,55; P=0,003; n=27).
Kirsuberjatré
Enginn marktækur breytileiki var milli