Rit Mógilsár - 2014, Page 10

Rit Mógilsár - 2014, Page 10
10 Rit Mógilsár 31/2014 Skógrækt á Íslandi í landsskipulagsstefnu Inngangur Unnið er að gerð landsskipulagsstefnu sem m.a. tekur til landnotkunar í dreifbýli. Mark- miðið er að setja fram leiðarljós um land- notkun, nýtingu lands og landgæða, sem tryggir öryggi og heildarhagsmuni við gerð skipulagsáætlana og stuðlar að sjálf- bærri þróun og skilvirkari áætlanagerð. Þá er landsskipulagsstefnu ætlað að stuðla að samræmingu í stefnumótun ríkis og sveitar- félaga um landnotkun og nýtingu lands. Landsskipulagsstefna felur í sér stefnu ríkisins í skipulagsmálum og almenn sjónarmið til leiðbeiningar við skipulagsgerð sveitarfélaga. Hún felur almennt ekki í sér fyrirmæli um nákvæma útfærslu land- notkunar nema að um hana sé fjallað í fyrirliggjandi áætlunum opinberra aðila. Landsskipulagsstefna Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur óskað eftir því að Skipulagsstofnun vinni með viðfangs efni í landsskipulagsstefnu sem tekur til landnotkunar í dreifbýli, sem verði til leið beiningar fyrir sveitarfélögin í sinni skipulags gerð. Í því felst grunn greining á ástandi og þróun og síðan tillögugerð varðandi aðgerðir til að stuðla að sjálfbærri landnýtingu í dreifbýli. Landsskipulagsstefnan dregur saman á einum stað stefnu ríkisins og áætlanir í ýmsum málaflokkum. Sveitarfélög skulu taka mið af stefnunni við gerð svæðis- og aðalskipulagsáætlana. Í skipulagslögum (Alþingi nr.123/2010) segir að telji sveitar- stjórn að ekki beri að taka mið af samþykktri landsskipulags stefnu við gerð skipulags, skuli hún gera rökstudda grein fyrir því. Málaflokkaáætlanir eða geiraáætlanir á ábyrgð ríkisins hafa með beinum hætti áhrif á skipulag. Rammaáætlun um orkunýtingu vatnsafls og jarðhita og samgöngu áætlun eru dæmi um slíkar áætlanir, sem jafn- framt hafa stoð í lögum og hafa mikil áhrif á skipulag sveitarfélaga. Landgræðslu áætlun er dæmi um áætlun sem ekki hefur stoð í lögum. Landshlutaáætlanir fyrir lands- hlutaverkefni í skógrækt sem á að vinna sam- kvæmt lögum en hafa aldrei verið formlega staðfestar eru einnig dæmi um áætlanir af hálfu ríkisins. Ræktunaráætlanir fyrir einstaka skógræktarverkefni taka mið af skipulagi. Tengsl aðalskipulagsáætlana og skógræktar eru mikið í umræðunni þessi misserin og bæði skógræktarfólk og fólk sem vinnur að skipulagsmálum er að fóta sig í því viðfangs- efni. Nokkur viðfangsefni sem hafa verið í um- ræðu síðustu ár og líklegt er að fjallað verði um í landsskipulagsstefnu er flokkun og ráðstöfun á landbúnaðarlandi, ferðamennska og þolmörk, bæði náttúru og samfélags, bújarðir sem hagkvæmar framleiðslu einingar, m.a. með hliðsjón af tíðri upp skiptingu þeirra, ástand lands og landnýting, nýræktun skóga og viðarvinnsla úr skógum landsins sem atvinnugrein, loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á landnotkun. Vinna við landsskipulagsstefnu er sam- ráðsferli ekki síður en samþættingarferli og á að geta verið tækifæri til að skiptast á sjónarmiðum á landsvísu og til að leita lausna. Út úr þessari vinnu allri getur komið ákall um faglegar leiðbeiningar: Hvar eru bestu skógræktarskilyrðin? Í hvaða sveitarfélögum eru mest tækifæri í timburskógrækt? Hvernig Björn H. Barkarson Skrifstofu landgæða í umhverfis- og auðlindaráðuneyti bjorn.helgi.barkarson@uar.is

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.