Rit Mógilsár - 2014, Side 29

Rit Mógilsár - 2014, Side 29
Rit Mógilsár 31/2014 29 áform um að fjarlægja núverandi nytjaskóga eða annan gróður sem vex nær ár- og vatns- bakka en 30 metra. Einungis er verið að setja fram stefnumörkun í nytjaskógrækt sem nýjar skógræktaráætlanir í Borgarbyggð taki mið af. Ýmsar takmarkanir eru settar á nytja- skógrækt, t.d. á svæðum undir landslagsvernd og „góðu ræktanlegu landi“ í aðalskipulagi sveitar félagsins. Því var mörkuð ný stefna í landnýtingu, að afmarka og skilgreina „gott ræktanlegt land“. Þegar aðalskipulagið var unnið á tímabilinu 2006-2012 var ekki mögulegt að flokka land eftir eiginleikum þess. Sveitarstjórn Borgarbyggðar taldi mikil- vægt að rýra ekki gott ræktanlegt land. Því var ákveðið að afmarka „gróflega“ það land sem talið var gott til ræktunar. Stuðst var við þekkingu staðkunnugs landbúnaðar - ráðunautar Vesturlands við þá vinnu. Í Borgarbyggð og víða um land er eftir að rannsaka og afmarka votlendi sem er innan þeirra svæða sem nefnd eru „gott ræktanlegt land“. Markmiðið er m.a. að byggð og skógrækt verði á svæðum sem ekki eru talin henta sem „gott ræktanlegt land“. Flatarmál góðs ræktanlegs lands í aðal- skipulagsáætlun er 29.806 ha (Aðalskipu- lag Borgarbyggðar 2010-2022) og er það sýnt á meðfylgjandi korti. Í þeim tilvikum þar sem landbúnaður nær yfir stóran hluta sveitarfélagsins þarf að gera sérstaka grein fyrir ræktuðum svæðum, uppgræðslu- og

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.