Rit Mógilsár - 2014, Page 34

Rit Mógilsár - 2014, Page 34
34 Rit Mógilsár 31/2014 trjátegundum sem eru ræktaðar á Íslandi. Þetta fer þó eftir þeim markmiðum sem sett eru með skógræktinni, ef t.d. er um að ræða landgræðsluskógrækt með birkiplöntum eru notaðar aðrar forsendur þar sem hitastig þarf einungis að ná 7,6 °C að meðaltali yfir sumarmánuðina (Wöll 2008). Niðurstöður forsendugreininga eru algerlega háðar þeim forsendum sem gefnar eru. Breyttar forsendur þýða aðrar niðurstöður. Í þessari forsendugreiningu falla svæði utan mögulegra skógræktarsvæða ef meðalhiti nær ekki 9,7 °C yfir sumarið. Þau svæði sem falla innan mögulegra skógræktarsvæða með tilliti til hitastigs geta skarast við ýmsa landnotkun og notuð eru landfræðileg gögn af ýmsu tagi til að afmarka þá landnýtingu. Gerð var landfræðileg greining þar sem notuð voru gögn á landsvísu til að útiloka möguleg skógræktarsvæði vegna annarrar landnýtingar. Í þessari greiningu er nánast allt tekið til sem getur skarast við skógrækt á einn eða annan hátt, en þó er ekki tekið til þátta á borð við útsýni og beit þar sem landupp lýsingagögn fyrir þau atriði liggja ekki fyrir um allt landið. Þegar þessi svæði hafa verið skorin frá standa eftir möguleg skógræktarsvæði þar sem meðalhitastig er hærra en 9,7 °C yfir sumarmánuðina og 3. mynd. Möguleg skógræktarsvæði á Íslandi samkvæmt forsendugreiningu.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.