Rit Mógilsár - 2014, Qupperneq 41
Rit Mógilsár 31/2014 41
umhverfi A/B.
Alaskaösp hefur góða aðlögun að íslensku
loftslagi og meðalgóða að borgarumhverfi
en þolir þó ekki mikinn skugga, verður teygð
og gisin við slíkar aðstæður. Klónaval skiptir
miklu máli. Hefur meðalgóða mótstöðu
gegn sjúkdómum en asparryð getur þó rýrt
útlit trjáa og valdið kali í vissum klónum í
slæmum ryðárum. Fagurfræðilegir eiginleikar
eru í meðallagi, laufgun vissra klóna á vorin
mjög falleg. Mikil óþrif af kvenplöntum
eru galli. Hún hefur oft valdið deilum,
sérstaklega vegna stærðar sinnar. Fólk
skiptist gjarnan í fylkingar með eða á móti.
Gæði og eiginleikar rótarkerfis meðal-
gott til slæmt og leitar víða. Það er til bóta
fyrir tréð en oft til skaða fyrir mannvirki.
Vaxtarlag og form er mjög breytilegt eftir
klónum, frá súlulaga hávöxnum til krónu-
breiðra og meðalhárra trjáa. Auðfjölgað sem
klóni. Mikið vindþol hjá sumum klónum,
annars meðalvindþol. Þurrkþol er í meðal-
lagi ef rótarkerfi nær að breiða úr sér, annars
fremur lítið. Hún er fremur skammlíf tegund
og hætta er á greinabroti hjá gömlum trjám.
Meðalgott salt- og mengunarþol. Þolir illa
mikið salt í jarðvegi, breytilegt eftir klónum.
Alaskaösp hentar í umhverfi A þar sem
Götu- og torg-
tré
Þol Athugasemdir
1. Aðlögun
að loftslagi
A, B, C A=Mikið aðlögunarþol að loftslagi, B=Meðal, C=Lítið
2. Mótstaða gegn
sjúkdómum
A, B, C A=Mikil mótstaða gegn sjúkdómum, B=Meðal, C=Lítið
3. Aðlögun að
umhverfi
A, B, C A= Mikil aðlögunarhæfni að umhverfi, B= Meðal, C=Lítið
4. Fagurfræðilegir
eiginleikar
A, B, C A=Miklir fagurfræðilegir eiginleikar, B=Meðal, C=Lítið
5. Félagslegir
þættir
A, B, C A=Jákvæðir félagsfræðilegir eiginleikar, B=Engir sérstakir félagsfræðilegir
eiginleikar, C=Neikvæðir félagsfræðilegir eiginleikar
6. Gæði og
eiginleikar
rótarkerfis
A, B, C A=Mjög gott rótarkerfi og heppilegir eiginleikar, B=Meðal, C=Lélegt
7. Vaxtarlag
og form
A, B, C A=Mjög gott vaxtarlag og form, B=Meðalgott vaxtarlag og form, C=Lélegt eða
breytilegt vaxtarlag og form
8. Vindþol A, B, C A=Mikið vindþol, B=Meðal, C=Lítið
9. Þurrkþol A, B, C A=Mikið þurrkþol, B=Meðal, C=Lítið
10. Hætta á
greinabroti
A, B, C A=Lítil hætta á greinabroti, B=Meðalhætta á greinabroti, C=Mikil hætta á
greinabroti
11. Þol gegn
mengun
A, B, C A=Mikið mengunarþol, B=Meðal, C=Lítið
12. Saltþol A, B, C A=Mikið saltþol, B=Meðal. C=Lítið
Tafla 1. viðmið við val á trjátegundum