Rit Mógilsár - 2014, Qupperneq 48
48 Rit Mógilsár 31/2014
Val á úrvalsyrkjum og markaðssetning:
Yndisgróður hefur unnið að því að koma
nýjum íslenskum yrkjum á markað og voru
sumarið 2010 sjö ný íslensk rósayrki, sem
Jóhann Pálsson hefur kynbætt, sett í fram-
leiðslu á nokkrum garðplöntustöðvum.
Sumarið 2013 voru, í samráði við fagfólk
í Félagi garðplöntuframleiðenda, Grasa-
garðsins og fleiri, valin til ræktunnar 6 yrki
runna sem rannsóknir Yndisgróðurs sýna
að eru harðger og verðmæt. Það eru tvær
sýrenur, Bríet og Hallveig; garðakvistill
´Kjarri´; snjóber ´Svanhvít´; meyjarós
´Gréta´og bersarunni, kvæmi frá Cordova.
Gerðar hafa verið lýsingar á yrkjunum sem
munu m.a. nýtast við markaðssetningu á
þeim.
Útgáfa og fræðsla: Haldnir hafa verið fjöl-
margir fræðslufundir og „opnir garðar“ á
vegum Yndisgróðurs auk þess sem greinar
hafa birst í dagblöðum og tímaritum.
Rannsóknarskýrslur og ýmiss konar
upplýsinga efni og má nálgast á heimasíðu
Yndisgróðurs undir tenglinum Fróðleikur. Þar
er meðal annars að finna:
Rósir fyrir alla. Þar er fjallað um 30 rósayrki
sem geta talist örugg til ræktunar hérlendis.
Yrki af japanskvisti (Spiraea japonica) í safni
Yndisgróðurs á Reykjum. Hér er lagt mat á
ræktunargildi 17 yrkja japanskvists.
Tillaga að stefnumótun um ræktun götutrjáa
í þéttbýli og val á tegundum. Hér er fjallað
um ræktun götutrjáa og jafnframt sagt frá
helstu tegundum og yrkjum sem koma til
greina hérlendis.
efniskostnað við gerð og frágang garðanna.
Jafnframt sjá sveitarfélög um kostnað
vegna umhirðu og munu gera það sam-
kvæmt samningi í tíu ár eftir framkvæmd.
Í þeim görðum sem eru í landi Land-
búnaðarháskólans bar skólinn hluta af kost-
naði þó stærsti hlutinn félli á verkefnið.
Yndisgarðar eru eftirtaldir:
Reykir, sem er aðalsafn Yndisgróðurs,
gerður árin 2008-2013, með 385 yrki.
Blönduós,
gerður árin 2009-2012, með 97 yrki.
Sandgerði,
gerður árin 2009-2012, með 169 yrki.
Laugardalur í Reykjavík,
gerður árin 2010-2012, með 112 yrki.
Fossvogur í Kópavogi,
gerður árin 2010-2012, með 174 yrki.
Hvanneyri,
sem byrjað var á árið 2011, með 150 yrki.
Vöktun plöntusafna: Kal, laufgun, blómgun
og haustun auk stærðarmælingar hefur
verið skráð öll árin í aðalsafninu á Reykjum
í þrjú ár á Blönduósi og í Sandgerði og eitt
ár á Hvanneyri. Einnig hafa verið teknar 2-3
myndaraðir af nær öllum plöntum í öllum
görðunum vor, sumar og haust frá árinu
2008.
Meðmælalisti Yndisgróðurs: Á heimasíðunni
(http://yndisgrodur.lbhi.is/) má finna upp-
lýsingasíðu um einstaka tegundir og yrki
sem verkefnið mælir með og hægt er að leita
eftir á svokallaðri plöntuleit . Á meðmæla lista
Yndisgróðurs eru nú 120 tegundir og yrki
trjáa, runna og nokkurra fjölæringa sem eru
mikilvægar, harðgerar og nytsamar sam-
kvæmt skilgreiningu og lýst er á heimasíðu.