Rit Mógilsár - 2014, Page 71

Rit Mógilsár - 2014, Page 71
Rit Mógilsár 31/2014 71 (Russula aeruginea), slímstautull (Gomphid- ius glutinosus), lerkisveppur (Suillus grevillei) og furusveppur (S. luteus). Engar opinberar upplýsingar liggja fyrir um umfang sveppanytja á Íslandi, en höfundur þekkir til þó nokkurs hóps einstaklinga sem tína og selja villta sveppi beint til veitinga- húsa og hótela. Verðið sem greitt er fyrir ferska villta ætisveppi er mismunandi á milli tegunda, en er frá því að vera svipað og það sem greitt er fyrir fersk bláber og upp í það að vera fjórum til fimm sinnum hærra per kíló. Leggja ber áherslu á það hér að það nægir ekki að menn tíni réttar tegundir. Flestar sveppategundir hafa lítið geymsluþol og því þarf að koma þeim til neytenda innan sólarhrings frá því að þær eru tíndar. Einnig er mikilvægt að menn tíni bara ný og fersk eintök, svo að þau séu enn neysluhæf þegar þau ná borðum neytenda. Ef menn eru það langt frá markaðinum að ekki er hægt að koma sveppum á markað samdægurs, eða ef þeir vilja koma sér upp lager til að geta tryggt kaupendum öruggt framboð, þá þarf að verka sveppina. Til eru margar aðferðir til að auka geymsluþol sveppa, en þær algengustu eru að frysta, þurrka, sýra, salta, sjóða niður eða geyma hráa í matarolíu. Eitt fyrirtæki á Austurlandi, Holt og heiðar ehf., selur frysta lerkisveppi sem tíndir eru á haustin á Fljótsdalshéraði. Verslun með ferska og þurrkaða sveppi Til að gera sér grein fyrir hversu stór markaðurinn er með ferska og þurrkaða sveppi hérlendis, þá aflaði höfundur sér upplýsinga um innflutning til landsins frá Hagstofunni (2014). Alls voru sveppir fluttir inn frá 26 löndum á tímabilinu, en mesta magnið kemur frá Hollandi, Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum (2. mynd). Um 90% af verðmætinu eru ferskar ræktaðar 2. mynd. Magn og verðmæti innfluttra ferskra og þurrkaðra sveppa til landsins árið 2012-2013. 3. mynd. Villtar túnkempur (Agaricus campestris) sem gjarnan vaxa á gömlum frjósömum túnum og til dæmis í fuglabyggðum (Ljósm. BDS).

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.