Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 12
Náttúrufræðingurinn 232 Ritrýnd grein / Peer reviewed reit frá 1965 og 1970 í Káraskeri og frá 1988 og 1991 í Bræðraskeri. Ekki var marktækur munur á þekju æðplantna í reitum ólíkra skerja þegar um 30 ár voru síðan skerin komu upp úr jökli (t-próf; p = 0,053), þekju mosa (t-próf; p = 0,346) né fléttna (t-próf; p = 0,778). Tegunda- fjöldi æðplantna var hins vegar mark- tækt meiri í föstu vöktunarreitunum í Káraskeri en Bræðraskeri við sama aldur (t-próf; p <0,001) og einnig í Shannon H (t-próf; p = 0,016) og í Simp- son 1/D (t-próf = 0,009) (5. og 7. mynd). Þegar fjallavíðireitunum úr Káraskeri (sjá síðar) er haldið utan við saman- burðinn var munurinn á tegundafjölda æðplantna og fjölbreytnistuðlum við 30 ára aldur mun minni og ekki marktækur skv. Simpson 1/D (t-próf; p = 0,125). Fljótlega eftir að vöktun reita í Káraskeri hófst 1965 skildi á milli fram- vindu í mismunandi reitum og má flokka reitina þar gróflega í þrjá ólíka hópa (7. og 8. mynd). Fyrstu tveir hóp- arnir, annars vegar K2 og K4, hins vegar K1 og K5, sýndu svipaða framvindu, án þess að fjallavíðir yrði þar ríkjandi. Af þeim var hægust framvinda í reit K5 á þessu aldursbili, þ.e. 29 til 80 árum eftir að reiturinn kom upp úr jökli (6. mynd d, e og f ). Allir fjórir reitirnir sýndu kyrrstöðufasa í landnámi æðplantna fram til um 55 ára aldurs (7. mynd a), sem var nokkuð lengri kyrrstöðu- fasi en í Bræðraskeri. Því var ekki lengur marktækur munur á tegundafjölda æðplantna (t-próf; p = 0,556) – ekki heldur í Shannon H (t-próf; p = 0,893) eða 1/D (t-próf; p = 0,908) – milli þessara reita í Káraskeri og allra reitanna í Bræðraskeri við um 55 ára aldur (5. mynd a, b og c; 7. mynd a, b og c). Tegundum tók svo aftur að fjölga í reitunum upp úr 1991 og náði tegundafjöldi hámarki árið 2005 (við 69 ára aldur) með að jafnaði 10,0 tegundir í 1 m2 reit (7. mynd a). Báðir fjölbreytileika- stuðlarnir fóru hægt lækkandi í grónari reitunum (K2 og K4), sem bendir til að ákveðnar tegundir hafi orðið ríkjandi. Í hinum tveimur reitunum (K1 og K5) héld- ust fjölbreytileikastuðlarnir stöðugir til ársins 1991, hækkuðu þá aðeins aftur með auknum tegundafjölda en fóru svo lækk- andi eftir 2005–2010 (7. mynd b og c), sem sömuleiðis sýnir framvindu í átt að færri ríkjandi tegundum í gróðursamfélaginu. Æðplöntuþekjan þróaðist einnig með mismunandi hætti í Káraskeri, annars vegar í K2 og K4, hins vegar í K1 og K5 (7. mynd d). Hún jókst frá 1965 til ársins 1976 (Kárasker þá 40 ára) í þeim öllum en hægar í K1 og K5 (6. mynd c, d, e og f ). Þá var hún að jafnaði 51% og 36% í hópunum tveimur. Í kyrrstöðufasanum eftir 1976 hélst hún nokkuð svipuð en þó bara til 1997 (61 árs aldur) þegar hún byrjaði að minnka í K1 og K5 og var komin niður í 15% árið 2016. Í reitum K2 og K4 dró minna úr þekju. Þekjan jókst aftur eftir 2005 og var orðin 74% árið 2016 (7. mynd d). Mosaþekjan þróað- ist svipað og í Bræðraskeri þannig að hún var í hámarki um 40 árum eftir að Kárasker kom upp úr jökli en minnkaði eftir það, og meira í grónari reitunum (7. mynd e). Líkt og í Bræðraskeri náðu fléttur seint stöðugri fótfestu í reitunum í Káraskeri og það var ekki fyrr en við 60 ára aldur Káraskers sem þær námu þar land. Þær höfðu að jafnaði náð 3,4% þekju árið 2016 eftir 80 ár (7. mynd f ). Þriðji hópurinn í Káraskeri sam- anstendur af reitum K3, K7 og K8 (8. og 9. mynd). Þetta voru allt reitir með 8. mynd. Gróðurframvinda í reitum K3, K7 og K8 í Káraskeri í Breiða- merkurjökli. Að lokum er á reitun- um full þekja fjallavíðis (Salix arct- ica) en æðplöntutegundum hefur fækk- að. a) Breytingar á fjölda æðplöntu- tegunda í reit og á fjölbreytileikastuðlum þeirra, b) Shannon H- og c) Simpson 1/D-stuðlar; á d) yfirborðsþekju æð- plantna, e) mosa og f) fléttna með aldri í reit K7 og K8 (grænir og opnir hringir; fjallavíðir náði fullri þekju 2016 og 2010) og K3 (fylltir hringir; fjallavíðir náði fullri þekju 1971). Ath. að annar kvarði er not- aður fyrir þekju fléttna en æðplantna og mosa. – Successional changes in the Kárasker nunatak which end with a full Salix arctica cover and lower vascular plant species richness. a) Changes in species richness of vascular plants per plot and their biodiversity indices, b) Shannonʼs H and c) Simpsonʼs 1/D); in d) surface cover of vascular plants, e) mosses and f) lichens with age in the K7 and K8 plots (green and open circles; S. arctica reached full cover in 2016 and 2010, respectively) and in the K3 plot (filled circles; S. arctica reached full cover in 1971). Note the different scale for lichen cover compared to vascular plants and mosses. Aldur / Age 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0,0 14 12 10 8 6 4 2 0 1960 1980 2000 19401940 Ár / Year 1960 1980 2000 Þ ek ja / C o ve r (% ) Æðplöntur / Vasc. pl.Æðplöntur / Vasc. pl. K8 K7 K3 Mosar / Mosses Fléttur / Lichens Þ ek ja / C o ve r (% ) Þ ek ja / C o ve r (% ) S im p so n 1/ D S h an n o n H Te g u n d af jö ld i / S p . r ic h n es s 100 120 80 60 40 20 0 120 100 80 60 40 20 0 15 10 5 0 80 20 40 600 20 40 60 80 a) b) c) d) e) f)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.