Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 58
Náttúrufræðingurinn
278
Ritrýnd grein / Peer reviewed
21. mynd. Hafursstaðahlíð austan Bárðardals. Menn virða fyrir sér byggðaleifar. – Hafursstaðir slope east of Bárðardalur. Men viewing ancient
farm remains. Ljósm./Photo: Hjörleifur Guttormsson 2007.
SAMSKIPTI SKAFTFELLINGA
OG MÖÐRUDÆLINGA
Traustar heimildir verða að teljast
fyrir samskiptum manna í Öræfasveit
og Möðrudal þvert yfir Vatnajökul fram
eftir öldum. Sagnir um hestaferðir og
flutning með skógvið norður yfir jökla
styðjast meðal annars við Möðrudals-
máldaga frá 1575 og ritaðar heimildir
frá öndverðri 18. öld, auk munnmæla,
svo að vart ætti að þurfa að efast um að
lengi var farið á hestum yfir jökulinn.
Þannig segir Árni Magnússon um 1700:11
Úr Öræfum skal hafa verið áfangi
að Möðrudal á Fjalli. Frá Skaptafelli í
Öræfum skal farið hafa verið rétt norður
[milli lína skrifað: austur] og upp frá
Skaptafelli. Vegur þessi skal til hafa verið
í seculo 16 [á 16. öld] skömmu eftir 1500.
Nú er hann öldungis sperrtur af jöklum.
Menn segja og fyrir munnmæli, að
bóndinn í Skaptafelli hafi haft bú í Bárðar-
dal og verið þangað til messu heiman
frá Skaptafelli reiðandi konu á baki sín.
Litlu síðar bætir Árni við:11
Minnahérað, kallað Litlahérað, eru
þeir sem meina að heiti so i henseende
til Fljótsdalshéraðs austur. Skal á milli
þessara héraða hafa verið almenn
ferð, og vegurinn legið upp á fjallið upp
frá Skaptafelli (sem er vestasti bær í
Öræfum), milli Öræfajökuls og Skeið-
arárjökuls. Sá vegur er nú öldungis af
jöklum ófær orðinn. Segja menn það hafi
ei meir en dagsferð verið milli Öræfa og
Fljótsdalshéraðs og eins langt skuli verið
hafa úr Öræfum að Möðrudal á Fjalli.
Elsta þekkt heimild sem gefur til
kynna að formleg tengsl hafi verið
milli Skaftafells og Möðrudals yfir
jökul er Möðrudalsmáldagi Gísla bisk-
ups Jónssonar frá árinu 1575. Þar segir
að Möðrudalskirkja eigi „xij trog-
saudlahøgg í Skaptafellsskog“.25
Þá segir í Jarðabókarágripi Ísleifs
Einarssonar sýslumanns í Felli 1709 um
ítök Skaftafells:26
Beit 14 hrossum á Möðrudalsör-
æfum er jörðunni eignuð um sum-
artíma, krossmessna á milli. Verður
aldrei brúkað fyrir jöklum.
Um þetta fjallar Sveinn Pálsson eftir
að hafa dvalist í Skaftafelli 1794 (bls.
475, 483 og 493):13
Að öllum líkindum hefur í fyrndinni
legið leið yfir jökulinn norður af
Skaftafelli norðaustur um Dyngjufjöll
[Kverkfjöll], en nánar um hana í 14. gr.
Í framhaldi segir hann (22. mynd):
Morsárjökull gengur niður í
Morsárdal ... norðan við Skaftafell, og
á hann upptök sín þar, sem Öræfa-
jökull rennur í raun og veru saman
við Klofajökul á milli Miðfells að
norðan og Skarðatinda að sunnan.
Á þessum stað er álitið, að fyrrum
hafi verið leið eða samgöngur milli
Skaftafells og Möðrudals (12. gr.), því