Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 79

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 79
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 299 4. og 5. mynd. Þéttir dropsteinaskógar í hellinum TES-12. Hæstu dropsteinarnir eru meira en metri á hæð, en flestir undir 60 cm. – Dense growth of lava stalagmites in the cave TES-12. The tallest stalagmites exceed 1 meter, while most are less than 60 cm. Ljósm./Photo: Hellarannsóknafélag Íslands. 6. mynd. Dropsteinar og hraunstrá rétt við eitt hellisopanna í TES-12. Stærsti dropsteinninn er meira en metri á hæð. – Lava stalagmites and stalactites in TES-12, only a few meters from a nearby entrance. The tallest stalagmite rises above a meter from the floor. Ljósm./Photo: Daníel Freyr Jónsson. stráum og hraunrósum. Með þolinmæði og lagni geta vanir hellamenn farið þar um, en æskilegt er að einungis sé farið um svona svæði til rannsókna, kort- lagningar eða skrásetningar. Til þess að komast á milli dropsteinanna verður að smokra sér framhjá þeim á hnjánum og gæta þess um leið að reka ekki höfuðið í hraunstrá sem hanga um allt úr lofti. Hraunstráin eru örmjó og þola ekki minnstu snertingu (7. mynd). Gólfið er auk þess allt þakið þunnum glerungi sem helst mætti líkja við eggjaskurn sem brotnar undan minnsta álagi. Hvert skref og hver hreyfing þarf að vera vel hugsuð ef ekki á illa að fara. Þar sem skógarnir eru stærstir og þéttastir eru mörg hundruð dropsteinar í hverjum. Áferðin er grásilfruð og gljáandi, en sumir eru að hluta þaktir hvítum útfell- ingum. Glerungur í sama lit þekur þar einnig veggi, loft og gólf. Hellirinn TES-13 er líklega hluti af sömu hraunrás og TES-12. Sá fyrrnefndi dropsteinarnir ná allt að metra á hæð en flestir eru þeir 20–40 cm (4.–6. mynd). Alfarið er mælt gegn því að farið sé yfir dropsteinaskóga sem eru jafn þéttir og þarna. Ekki þarf nema eina ranga hreyf- ingu til að eyðileggja þessar ómetanlegu myndanir. Hægt er að sveigja framhjá mesta dropsteinaskóginum og fara inn í rás sem liggur til hliðar við hann. Þar er töluvert af grjóti sem hrunið hefur úr loftinu. Handan hrunsins eru lágar hliðarrásir þaktar dropsteinum, hraun-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.