Þjóðmál - 01.06.2016, Blaðsíða 10
Forsætisráðherra var nóg boðið, taldi
sig hafa verið blekktan til að sitja fyrir
svörum, stóð upp og gekk út. Var
þetta allt sýnt í sjónvarpinu. Höfðu
þáttargerðarmennirnir gert ráð fyrir
að viðbrögð ráðherrans yrðu á
þennan veg. Þeir sögðu síðar að þeir
hefðu þaulæftsinn hluta þáttarins
en ráðherrann var grandalaus. Hann
kom svo illa frá þættinum að þjóðin
stóð á öndinni.
fyrirframgreiddum föðurarfi sínum. í nóvember
2007 var svonefnt Wintris-félag stofnað um
þennan arf og 31. desember 2009 keypti
Anna Sigurlaug hlut Sigmundar Davíðs í
félaginu fyrir 1 dollar. Breytingar á íslenskum
tekjuskattslögum tóku gildi l.janúar 2010.
Þar sagði að tekjur erlendra fyrirtækja í lág-
skattaríkjum bæri að skattleggja hjá eigend-
um þeirra.
í sjónvarpsþættinum um Panama-skjölin
brást Sigmundur Davíð illa við þegar hann
var spurður um félagið Wintris enda taldi
hann til þáttarins stofnað til að ræða um
íslensk efnahagsmál. Sven Bergman, frétta-
maður sænska fréttaskýringaþáttarins
Uppdrag Granskning, tók viðtalið við for-
sætisráðherra og fikraði sig í átt að spurning-
unni um Wintris. Þegar þar var komið settist
Jóhannes Kr. Kristjánsson rannsóknar-
blaðamaður, eigandi Reykjavik Media, við
hlið sænska blaðamannsins og hóf að spyrja
Sigmund Davíð.
Útskrift á viðtalinu var birt á vefsíðunni
mbl.is. Forsætisráðherra var spurður hvort
hann hefði einhver tengsl við aflandsfélög.
Hann sagðist hafa starfað hjá íslenskum
fyrirtækjum sem kynnu að hafa haft tengsl
við aflandsfélög. Nefndi svo að það ætti
jafnvel við um verkalýðshreyfinguna, sagði
síðan að þetta væri óvenjuleg spurning. Þá
varforsætisráðherra spurður hvað hann gæti
sagt um fyrirtækið Wintris. Hann svaraði:
„Umm, það erfyrirtæki, ef ég man það rétt,
sem er tengt við eitt þeirra fyrirtækja sem
ég gegndi stjórnarmennsku í og það hafði
viðskiptareikning, sem eins og ég minntist
á, hefur verið talinn fram á skattskýrslu frá
því það var stofnað."
Forsætisráðherra var nóg boðið, taldi sig
hafa verið blekktan til að sitja fyrir svörum,
stóð upp og gekk út. Var þetta allt sýnt í
sjónvarpinu. Höfðu þáttargerðarmennirnir
gert ráð fyrir að viðbrögð ráðherrans yrðu á
þennan veg. Þeir sögðu síðar að þeir hefðu
þaulæft sinn hluta þáttarins en ráðherrann
vargrandalaus. Hann kom svo illa frá þættinum
að þjóðin stóð á öndinni.
Wintris var á lista yfir aflandsfélög í umsjón
Mossack Fonseca í Panama.
Eftir á að hyggja er stórundarlegt að Sig-
mundur Davíð skyldi ekki búa áhorfendur
undir það sem birtist í þættinum sögulega
áður en hann var sýndur.
Forsætisráðherra hafði tímann frá 11. mars
til 3. apríl til þess. Vissulega birti eiginkona
hans frásögnina á FB-síðu sinni og á páska-
dag 27. mars birtu forsætisráðherrahjónin
spurningar og svör um álitamál sem vaknað
höfðu eftir að greinargerð Önnu Sigurlaugar
birtist 15. mars. Birtist sameiginlegur pistill
hjónanna á FB-síðu Sigmundar Davíðs og
einnig hugleiðing hans 3. apríl sama dag og
samtalið fræga var sýnt í Kastljósinu.
Hvergi hafði Sigmundur Davíð á orði að sér
hefði í raun verið veitt fyrirsát í sjónvarpssam-
talinu. Hins vegar taldi hann svo ómaklega
vegið að eiginkonu sinni í ríkisútvarpinu að
hann neitaði staðfastlega að ræða við frétta-
menn þess eftir 11. mars.Tíunduðu frétta-
menn ríksútvarpsins rækilega að Sigmundur
Davíð léti þá ekki ná í sig. Reyndist þetta
lokaþátturinn í köldu stríði fréttamannanna
og Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra.
Hann starfaði um skeið á fréttasofunni og
gagnrýndi vinnubrögð starfsmanna hennar
frá fyrstu dögum sínum í embætti forsætis-
ráðherra.
II.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átti mjög
í vök að verjast strax eftir sjónvarpsþáttinn
8 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016