Þjóðmál - 01.06.2016, Blaðsíða 20
urinn á eftir Pírötum, Sjálfstæðisflokknum og
Vinstri grænum.
Benedikt Jóhannesson, formaður flokksins,
sagði á stofnfundi hans:
„Margir spyrja hverjir verði í framboði. Því
er til að svara að skipað verður á lista um
það bil tveimur mánuðum fyrir kosningar.
Ég get fullyrt að þar verður einvalalið. En
Viðreisn er óvenjulegur nýr flokkur. Viðreisn
er stofnuð kringum málefni, ekki menn."
Viðreisn er meðal annars óvenjulegur
flokkur vegna þess að hann felur núna helsta
stefnumál sitt, að ísland verði aðili að Evrópu-
sambandinu. Forystumenn flokksins hafa
aldrei viðurkennt að ESB-aðildarviðræðurnar
sigldu í strand vegna ágreinings í sjávarút-
vegsmálum. Bendir þetta til að þeir vilji ekki
draga ágreininginn fram svo að auðveldara
verði fyrir þá að slá af kröfum íslendinga fái
þeir tækifæri til þess. Þá neita þeir að viður-
kenna aðlögunarþáttinn í aðildarferlinu og
hafna þar með megin einkenni þess.
VII.
David Cameron, forsætisráðherra Breta,
boðaði þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi
á sínum tíma um aðild að ESB í von um að
sameina þar með íhaldsflokkinn í ESB-málum
og kippa löppunum undan UKIP-flokki
breskra sjálfstæðissinna. Atkvæðagreiðslan
fór fram 23. júní 2016 og 52% Breta studdu
úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu.
Cameron var sigurviss. Málstaður hans
hafði sigrað í þjóðaratkvæðagreiðslum um
kosningakerfið í Bretlandi og sjálfstæði
Skotlands. Hann leiddi fhaldsflokkinn síðan til
meirihlutasigurs í þingkosningum 2015 eftir
að hafa tekið áhættu með samsteypustjórn
með frjálslyndum í fimm ár. Að kvöldi 23. júní
hafði hann í höndunum niðurstöður könnunar
sem sýndu að aðildarsinnar myndu sigra með
alltað 10% stiga mun.
Allt kom fyrir ekki. Cameron tapaði og
sagði af sér að morgni föstudags 24. júní,
hann mundi sitja sem forsætisráðherra fram
18 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016
David Cameron, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands.
Hann boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusam-
bandið og var sigurviss.