Þjóðmál - 01.06.2016, Blaðsíða 57
AUÐLINDIR
Bjarni Jónsson
Gallað auðlindamat
Verkefnastjórn um Rammaáætlun um
verndun og nýtingu náttúruauðlinda skilaði
af sér áfangaskýrslu um 3. áfanga Ramma-
áætlunar 31. marz 2016, og segja má, að um
snemmbúið aprílgabb hafi verið að ræða
vegna þeirra einhæfu sjónarmiða, sem þar
tröllríða húsum. Hér verða leidd að því rök, að
skýrsluna skorti vísindalegan trúverðugleika
og sé jafnvel meira í ætt við fúsk en vísindi.
Verkefnastjórn í öngstræti
Segja má, að Verkefnastjórnin hafi illilega
skotið sig í fótinn með skýrslunni og þar með
staðfest gagnrýni á tilvistarrétt sinn og það
fyrirkomulag, sem nú er við lýði um frum-
mat á auðlindanýtingu á landi hér. Skýrslan
er einhliða mat á„verndargildi" nokkurra
staða, en sleppt er í þessum áfanga að leggja
mat á samfélagslegt og efnahagslegt gildi
nýtingaraf öðrum toga en fyrirferðaþjónustu
og útivist. Þá er sleppt frummati á tugum
virkjanakosta, sem Orkustofnun lagði fyrir
Verkefnastjórn að leggja frummat á. Verk-
efnastjórn þessi er nú komin í öngstræti,
enda getur hún ekki sinnt hlutverki sínu með
núverandi aðferðarfræði.
Ný umhverfisógn
Nú er reyndar komið í Ijós, að stærsta ógnin
við náttúru landsins er fólgin í skipulagslítilli
áníðslu og átroðslu óhefts ferðamannafjölda.
Þessu hefurfráfarandi Landgræðslustjóri,
Sveinn Runólfsson, lýst á áhrifamikinn hátt
þannig, að ferðageirinn sé nú að ræna
framtíðarkynslóðir landinu. Það er ámælis-
vert, hversu hægt gengur að koma við
nægilegum mótvægisaðgerðum gegn land-
spjöllunum.
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 55