Þjóðmál - 01.06.2016, Blaðsíða 37
Þetta var beinlínis rangt. Brynjar óskaði
ekki eftir þingflokksfundi. Hann var í sumar-
bústað þessa páskahelgi og sá sig knúinn að
birta bloggfærslu strax eftir hádegisfréttirtil
að taka af öll tvímæli vegna matreiðslu frétta-
mannsins á viðtalinu. Brynjar skrifaði:
„Vitnað var í mig í fréttum RÚV fyrr í dag
vegna eigna eiginkonu forsætisráðherra
og krafna hennar í slitabúin. Mér fannst
það ekki mikil frétt enda sagði ég ekkert
annað en sem öllum er Ijóst. Umræðan
um málið er óþægileg fyrir ríkisstjórnina.
Stjórnarflokkarnir komast því ekki hjá því
að fara yfir málið og ræða það, sérstaklega
ef fram kemur vantrauststillaga á þinginu.
Ég hef ekki opinberlega tekið efnislega
afstöðu til málsins enda veit ég ekki allar
staðreyndir þess. Mér finnst hins vegar
afar langsóttar kenningar um vanhæfi
ráðherrans. Þá er ekki hægt að halda því
fram að ráðherrann hafi misfarið með vald
í framgöngu sinni gagnvart slitabúunum,
hvað þá að aðrir hagsmunir hafi ráðið
en almannahagsmunir, sem er auðvitað
aðalatriðið. Ég get hins vegar alveg skilið
óánægju margra að þessar hagsmunaupp-
lýsingar hafi ekki legið fyrir. Ég vil hins
vegar taka það fram, ef einhver skyldi vera í
vafa eftir fréttina, að ég er mikill stuðnings-
maður þessarar ríkisstjórnar sem og for-
sætisráðherra enda hefur þessi ríkisstjórn
unnið þrekvirki í stærstu hagsmunamálum
þjóðarinnar."
Þessa eindregnu stuðningsyfirlýsingu
Brynjars við forsætisráðherra hafði RÚV að engu
enda var dagskipun á fréttastofunni að keyra
málið áfram þannig að Sigmundur Davíð væri
sekur maður og nyti ekki trausts, ekki einu sinni
hjá samstarfsflokknum í ríkisstjórn.
RÚV heldur herferðinni áfram
Umræðan um vanhæfi sem RÚV hóf gegn
forsætisráðherra var slegin út af borðinu af
Sigmundurgrafi undan efnahagslegu
fullveldi
O25.03J2Ö16-19:43 lml*m Wnati-mM SQ&rm# f <#
„En þjóðarljölmiðillinn var ekki afbaki dottinn og fann
sér nýja viðhlæjendur Istjórnarandstöðunni og þar var
ósvífnin með eindæmum."
lögfræðingum án þess að fréttir yrðu sagðir
af því í RÚV. En þjóðarfjölmiðillinn var ekki af
baki dottinn og fann sér nýja viðhlæjendur í
stjórnarandstöðunni og þar var ósvífnin með
eindæmum.
Kvöldfréttir RÚV 25. mars hófst með þessari
fyrirsögn:
„Forsætisráðherra grefur undan efnahags-
legu fullveldi íslands með því að styðja við
starfsemi skattaskjóla. Þetta segir Svandís
Svavarsdóttir, þingmaðurVinstri grænna."
Þessi frétt var fyrsta fréttin í fréttatíma
kvöldsins. Það þýðir að þjóðarfjölmiðillinn
taldi ekkert eiga brýnna erindi við almenning
í landinu að en þessi hugljómun þingmanns
Vinstri grænna.
Sigmundur Davíð reyndi að bera hönd
yfir höfuð sér vegna fársins sem búið var til
á Efstaleiti. Þann 27. mars birti hann ítarlega
skýringu á sinni hlið málsins á heimasíðu
sinni. Sem fyrr lagði RÚV sig fram um að snúa
út úr orðum forsætisráðherra. í hádegisfrétt
var tekið fram að texti forsætisráðherra sé
heilar„12 útprentaðar blaðsíður."Forsætis-
ráðherra sendi ekki út prentað efni heldur
birti hann textann á heimasíðu sinni. í stað
þess að segja efnislega frá greinargerð for-
sætisráðherra gerði fréttamaður það sér að
í stað þess að segja efnislega frá greinargerð forsætisráðherra gerði fréttamaður
það sér að leik að prenta út textann, telja blaðsíðurnar og gefa þannig til kynna
að Sigmundur Davíð væri að grafa sannleikann í orðahrúgu.
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 35