Þjóðmál - 01.06.2016, Side 25

Þjóðmál - 01.06.2016, Side 25
að allar hugmyndir um lækkun skatta verði afturkallaðar, gamlir skattar verða endur- vaktir og aðrir hækkaðir. Enginn þarf að fara í grafgötur með vilja vinstri manna til að endurvekja auðlegðar- skattinn, hækka tekjuskatt fyrirtækja og einstaklinga, auðlindagjald á sjávarútveg, Ijármagnstekjuskatt o.s.frv. „Afsala sér tekjum" Hugmyndafræði vinstri manna byggir á þeirri trú að ríkissjóður sé að„kasta frá sér tekjum" með lækkun skatta og afnámi gjalda og tolla. Rauði þráðurinn í málflutningi þeirra er að ríkissjóður sé að„afsala sér tekjum". Lilja Rafney Magnúsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Katrín Jakobsdóttir, Stein- grímur J. Sigfússon, Oddný G. Harðardóttir, Helgi Hjörvarog Árni Páll Árnason eru meðal þeirra þingmanna sem líta svo á að ríkis- sjóður sé að„afsala sér tekjum" með lækkun skatta og opinberra gjalda. í september síðastliðnum hélt Páll Valur Björnsson, þing- maður Bjartrarframtíðar, því fram í þingræðu „að þessi ríkisstjórn hefur markvisst afsalað sér tekjum". Píratar munu ekki standa í vegi fyrir að skattastefna vinstri flokkanna verði innleidd að nýju. Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir það ekki vera stefnu Pírata að hækka skatta á þá launahærri í samfélaginu en það sé heldur ekki stefna flokksins að gera það ekki! Píratar hafa boðað stórkostlegaraukna skattheimtu en þeir vilja auka skatttekjur ríkisins um allt að 100 milljarða króna. Jöfnuður niður á við Ef lýsa á skattastefnu vinstri stjórnar Sam- fylkingar og Vinstri grænna, er best að leita í smiðju Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna: Ef það hreyfist skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það stoppar, settu það á ríkisstyrk. Sá er þetta skrifar hefur oftar en einu sinni dregið upp á mynd af vinstri mönnum að þeir hafi alltaf einfalda lausn á vandamálum MargretThatcher, fyrrverandi forsætis- ráðherra Bretlands, benti á að vinstri menn vilji jafna kjörin niður á við - hægri menn vilji bæta kjör allra. - allt frá rekstri ríkissjóðs til jöfnunar lífskjara: Skattarskulu hækkaðir. MargretThatcher, fyrrverandi forsætis- ráðherra Bretlands, benti á að vinstri menn vilji jafna kjörin niður á við - hægri menn vilji bæta kjör allra. Því meiri samneysla (útgjöld ríkis og sveitar- félaga) sem hlutfall af landsframleiðslunni (þjóðarkökunni) því meiri velferð. í velferðar- ríki vinstri manna skiptir stærð þjóðarkökunnar ekki mestu heldur hversu stóran hlut hið opinbera tekur af henni. Þannig er velferðin meiri þegar samneyslan er 50% af 1.500 milljarða þjóðarframleiðslu en ef ríki og sveitarfélög taka„aðeins" til sín 40% af 2.000 milljörðum. Engu skiptir þótt útgjöld hins opinbera séu 50 milljörðum meiri (800 í stað 750) þegar kakan er stærri. Það var með þennan mælikvarða að vopni sem formaður Vinstri grænna hefur gagn- rýnt skattalækkanir ríkisstjórnar Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Verst þykir skattaglöðum vinstri mönnum að í langtíma- áætlun skuli gengið út frá því að aukinn hluti hagvaxtar verði eftir í vösum einstakl- inganna. Þannig verður hlutfallsleg stærð ríkissamneyslunnar af þjóðarkökunni minni þegar kakan stækkar en engu að síður verður kökusneið ríkisins stærri. Þetta er eitur í beinum vinstri manna og svo virðist sem þeir trúi því í einlægni að með því sé velferðar- samfélaginu ógnað. Vinstri menn eru áhugasamari að stækka sneið hins opinbera af þjóðarkökunni en að baka stærri köku. Með sama hætti eru þeir uppteknir af því að auka jöfnuð í þjóðfélag- inu en hafa minni áhyggjur af því að bæta almenn lífskjör. Samfylkingar og vinstri grænir eru því hreyknir„árangri" hinnar norrænu velferðarstjórnar sem jók jöfnuðinn, en lífskjör allra versnuðu. í fyrirmyndarríki er betra að verkamaðurinn ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 23

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.