Þjóðmál - 01.06.2016, Side 47

Þjóðmál - 01.06.2016, Side 47
arðsemi og öllu því sem markaðurinn á að skila. Fyrir mig eru það því gríðarleg vonþrigði að þurfa yfirleitt að þlanda mér í þessa hluti. Sumir segja að ég sé að reyna að rífa stoðirnar undan markaðinum en öll mín vinna hefur farið í það að taka valdið frá mér og mínum líkum. Það væri örugglega freistandi fyrir forystumenn í stjórnmálum að hafa meira og minna vald yfir öllu bankakerfinu. Ég get engin fyrirmæli gefið inn í bankakerfið. Ég get sagt skoðanir mínar og þess háttar en engin fyrirmæli gefið. Það tel ég vera hollt og gott. En þá verða þessir kappar líka að lúta leikreglum og ekki misnota sér stöðu sína og reyna að búa sér til yfirburðarstöðu í þeim tilgangi einum að eiga léttari leik, og að þurfa ekki að standa í samkeppni með heilbrigðum hætti." Það þarf dómara Davíð er áhugamaður um knattspyrnu og sótti líkingu til hennar til að skýra skoðanir sínar á viðskiptalífinu og leikreglum: „Ég hef séð það þegar ég er að horfa á fótbolta að þar ríkir oft sannkallaður íþróttaandi. En ef þar væri ekki kall með gult og rautt spjald þá myndu þessir gæjar haga sér þannig á vellinum að það yrði hreint blóðbað, slitnar sinar, brotin hné og hvaðeina. Leikurinn á að fá að fljóta eins eðlilega og mögulegt er. Ef menn byrja að þjösnast þá erdómarinn með gula og rauða spjaldið kominn, og hvað gerist þá, við sitjum heima að horfa á sjónvarpið og leikurinn er hundleiðinlegur af því að það eru komin tíu gul spjöld og fimm rauð spjöld. Meira að segja þeir menn sem hafa mestan áhuga á að horfa á eða spila með verða afhuga leiknum. Nákvæmlega sama reglan á við um markaðinn. Þar þarf að vera dómari með gult og rautt spjald en því minna sem hann þarf að nota þau, af því að menn haga sér betur, því skemmti- legri verður leikurinn og því meiri afrakstur verður af honum okkur öllum til handa." sem aðilar virtu það að vettugi. Davíð taldi nauðsynlegt að Fjármálaeftirlitið næði að starfa þannig að það vekti ekki upp falskar vonir neytenda og viðskiptavina. Hann sagði að lagarammi um starfsemi eftirlitsins væri veikur og því yrði að styrkja stöðu þess. Pólitískir andstæðingar Davíðs Oddssonar héldu því fram að ástæða þess að hann hefði brugðist jafn harkalega við og raun varð, þegar tilkynnt var um kaup Orca á hlutabréf- unum í FBA, hefði verið sú að væntanlegir eigendur hafi ekki verið honum að skapi. Þessu hefur Davíð alla tíð hafnað og sagt að hans eina markmið hafi verið að verja fjárhagslega hagsmuni ríkissjóðs og almenn- ings. Viðbrögð Davíðs, þegar fyrst var tilkynnt um kaupin og ekki var Ijóst hverjir væru raun- verulegir eigendur Orca, renna stoðum undir þetta. Á móti hafa andstæðingar Davíðs haldið því fram að hann hafi alla tíð lagt sérstaka fæð á Jón Ólafsson. Þeir fullyrða að Davíð hafi vegið, með óbeinum hætti að Jóni Ólafssyni í ræðu á Hólahátíð 15. ágúst (stuttu eftir að tilkynnt var um eigendur Orca). Davíð flutti aðalræðuna á Hólahátíðinni og hafði uppi varnaðarorð: Fargi var létt af frjálshuga fólki um allan heim þegar múrinn féll og kommúnisminn flaut yfir hrunið steypuvirkið og fjaraði út. En það mikla land Rússland með öllum sínum náttúrukynstrum og kostumfærekki notið sín, því stjórnkerfið og efnahagslífið nær ekki að þroskast og virðist um þessar mundir einkum lúta lögmálum glæpalýðs og eiturlyfjabaróna. Blóðpeningar þeirra flæða um Evrópu og skapa þar ótta og öryggisleysi. Menn sem engar leikreglur virða, leitast við að þvo illa fengið fé sitt í fjármálakerfum þjóðanna. Margir stjórn- málaforingjar í Evrópu telja þetta mestu ógnun sem nú sé við að eiga á Vestur- löndum. Davíð taldi að íslendingar, sem hefðu nýlega opnað hagkerfið, yrðu að gæta þess að verða ekki leiksoppar glæpamanna. Efna- hagskerfið verði að vera opið og einfalt, en um leið gagnsætt og byggt á trausti. Lykil- orðið í huga Davíðs var traust. ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 45

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.