Þjóðmál - 01.06.2016, Page 66

Þjóðmál - 01.06.2016, Page 66
„ Móðir mín sagði stundum um okkur bræður þrjá, syni sína, að við hlytum að eiga kyn að rekja til araba og varþá að vísa til skaplyndis og að einhverju leyti til útlits’ um í Húnaþingi og þar var hann alinn upp. Móðuramma mín var úr Línakradal V-Hún. sem liggur í þjóðleið norður um land strax og komið er úr Miðfirði. Amma, fóstra mín, var á allan hátt eins og íslenskar kerlingar áttu að sér áður en markaðsþarfir fóru að setja mark sitt á þær eins og nú er aftur á móti. Móðir mín sagði stundum um okkur bræður þrjá, syni sína, að við hlytum að eiga kyn að rekja til araba og var þá að vísa til skaplyndis og að einhverju leyti til útlits. Föðuramma mín, Filippía hafði arabískt útlit, hún var grönn, hávaxin, svarthærð, dökk- eygð og móleit á hörund. Hún var fáskiptin, stolt, skaphörð. Langafi hennar, Gísli Konráðs- son fræðaþulur, hafði líkt lundarlag og jafnvel útlit ef marka þessa einu mynd sem til er af honum. Faðir minn var Skagfirðingur jafnt í ættir sem að útliti en skaplyndið bar með sér að vera lengra að komið. 2. Heimur araba sem veldur nú togstreitu víða um veröldina einkum vegna ósættis um landa- mæri er að miklu leyti tilbúningur Vestur- veldanna. Landamæri ófriðarlanda síðustu ára í Afríku og við Miðjarðarhafið voru dregin með reglustiku á fundi nýlenduvelda í Berlín 1888. Hinn kristni minnihluti Sýrlands inn af botni Miðjarðarhafs, sem varfrönsk nýlenda til ársins 1946, en síðan bresk um alllangt skeið, er nú á þessum dögum á flótta frá heimalandi sínu til Evrópu. Þetta flóttafólk sækir í velferð eins og þá sem núlifandi íslendingar hafa lifað við lengst af ævinnar og helst er að finna í Norður-Evrópu. Fyrir flótt- anum eru söguleg rök.Taktu eftir klæðnaði flóttafólksins af sjónvarpsmyndum, hlustaðu eftir málfari þess. Hvorttveggja ber vitni um megn evrópsk áhrif og þar með þá náin tengsl við nýlenduþjóðirnar báðar, Englend- inga og Frakka, sem löngum hafa ráðið lífi kynslóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Nú bankar þetta fólk uppá hjá Englendingum, Frökkum, Þjóðverjum með vanda sinn að lifa í samræmi við arabísk þjóðareinkenni, það vill að saman gangi á ný með þeim og nýlendu- drottnum liðinna tíma. Umrótið sem þeir 64 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.